Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Drukkinn ökumaður drap 14: „Þegar hann nálgaðist byrjaði hann að dreifa peningum á götuna“

Eins og sjá má eru margir mótorhjólakappar skrautlega klæddir á hátíðinni.
Eins og sjá má eru margir mót­or­hjóla­kappar skraut­lega klæddir á hátíð­inni. Mynd: Lubbi

Að minnsta kosti 14 manns eru látnir og 24 slasaði eftir að bíl var keyrt á hóp fólks í Nígeríu.

Ökumaður keyrði á hóp fólks sem horfði á bifhjóla­kappa á vinsælli hátíð í nígerísku hafnar­borginni Calabar. Létust að minnsta kosti 14 manns og 24 slösuðust.

Samkvæmt

BBC

segja vitni af harm­leiknum að ökumaðurinn hafi verið að keyra hratt en misst stjórn á bílnum. Á ljós­myndum, sem dreift var á veraldar­vefnum rétt eftir slysið, sjá lík á víð og dreif á götunni.

Hátíðin stendur yfir í heilan mánuð en þar er boðið upp á hina ýmsu viðburði en síðan fyrsta hátíðin var haldin árið 2004 hefur hún dregið sífellt fleiri að. Er hún auglýst sem stærsta götuhátíð Afríku og dregur hún að sér bæði Nígeríubúa sem og erlenda ferðamenn í desember­mánuði.

Í ár var fyrsta hátíðin í tvö ár haldin en hún féll niður á meðan Covid-faraldurinn stóð sem hæst.

Slysið í gær varð er vinsæl móturhjólaskrúðganga stóð yfir á aðalgötu hátíðarinnar en henni hafði verið lokað fyrir venjulegri umferð. Í skrúð­göngunni keyrðu mótorhjóla­kappar víðs vegar af landinu, þar á meðal frægir einstaklingar og sýndu listir sínar, sumir íklæddum skraut­legum búningum.

Lögreglan segir að ökumaðurinn, sem hafi verið drukkinn, hafi verið hand­tekinn. Hann hafi misst stjórn á bílnum með þessum hörmulegu afleiðingum.

Faðir 15 ára drengs sem slasaðist í slysinu sagði BBC að bílnum hafi verið ekið „glanna­lega“.

„Ökumaðurinn hafði sikksakkað á milli akreina en þegar hann nálgaðist mann­fjöldann byrjaði hann að dreifa peningum á götuna. Við það hópaðist fólk á götuna til að taka upp peningana en það var þá sem hið ljóta slys varð,“ útskýrði Musa Kutama.

Sonur hans, Abdulsalam Musa Kutama slapp með rispur í andliti og sár á læri.

Ríkis­stjóri svæðisins, Ben Ayade prófessor, sagði að yfirvöld væru að rannsaka hvernig bíllinn gat komist framhjá svo mörgum öryggis­ráðstöfunum á hátíðinni. Slaufaði Ayade restinni af mótorhjóla­skrúð­göngunni en aðrir viðburðir halda sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu