Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Auðunn hleypur í minningu Orra sem féll fyrir eigin hendi: „Hann skildi eftir sig mikla sorg“

Auðunn Lúthersson
Auðunn Lúth­ers­son

Tónlistar­maðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur undir nafninu Auður, ætlar að hlaupa hálf­maraþon í Reykja­víkur­maraþoninu næsta laugardag. Hann hleypur fyrir Minningar­sjóð Orra Ómars­sonar. Málefnið stendur Auðunni nærri, en Orri var honum kær. Hann lést í sjálfs­vígi.

„Ég hleyp í minningu Orra Ómars­sonar vinar míns sem féll fyrir eigin hendi. Hann skildi eftir sig mikla sorg sem fjöl­skylda hans hefur umbreytt í stuðning við aðra aðstand­endur sjálfs­víga og forvarnar­starf,“ segir í tilkynningu sem Auðunn sendi frá sér.

„Hann fór alltof ungur og ég sakna hans mikið. Orri var 10x betri en ég í fótbolta og handbolta svo ég mun leggja mig allan fram við að heiðra minningu hans, keppnis­skapið og það góða starf sem Minningar­sjóðurinn og Sorgar­miðstöðin hafa unnið. Orri, þetta er fyrir þig!“

Líkt og áður sagði féll Orri fyrir eigin hendi. Hann var þá einungis 16 ára gamall, stundaði nám í Mennta­skólanum í Reykjavík og spilaði knatt­spyrnu með FH.

Sjóðurinn var stofnaður í minningu Orra og er markmið hans að vinna að forvörnum gegn sjálfs­vígum, auk þess að veita aðstand­endum stuðning sem missa ástvin með þeim hætti. Sjóðurinn styrkir ýmis verkefni sem styðja við sömu markmið.

„Sjóðurinn í samvinnu við önnur félög og stofnanir þ.e. Rauða krossinn, Heilsu­gæslurnar, Pieta, Geðhjálp, Sorgar­miðstöð, Land­spítala, Þjóð­kirkjuna og Embætti land­læknis vill stuðla að ábyrgri umræðu um sjálfsvíg, vinna að forvörnum, benda á úrræði fyrir þá sem upplifa sálarkvöl og auka umræðu um mikilvægi þess að styðja við aðstand­endur sem missa nákominn fyrir eigin hendi,“ segir í lýsingu á minningar­sjóðnum.

Hægt er að heita á Auðunn og styrkja Minningar­sjóðinn hér.

Auðunn hleypur í minn­ingu vinar síns.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið