Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fleiri forsetar Suður-Ameríku styðja málstað Assange: „Það er ekki boðlegt að standa hjá þegjandi“

Kristinn og hluti þeirra sem hann hefur hitt í ferð sinni.
Kristinn og hluti þeirra sem hann hefur hitt í ferð sinni. Mynd: Facebook

Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson heldur áfram að safna stuðningi fyrir máli Julian Assange, sem situr nú í fangelsi í Bretlandi fyrir að birta viðkvæmar upplýsingar frá bandaríska hernum, á vef sínum Wikileaks.

Kristinn sagði frá því um daginn að bæði forsetar Brasílíu og Kólómbíu hefðu lýst yfir áhyggjum sínu og stuðningi við Assange en ritstjórinn hvíthærði er nú á ferðalagi um Suður-Ameríku ásamt fylgdar­fólki í þeim tilgangi að finna samherja. Nú er svo komið að forseti Argentínu hefur bæst í hópinn sem stuðnings­maður Assange og fjölmiðla­frelsis í heiminum.

„Fleiri forsetar á okkar bandi.

Alberto Fernandez, forseti Argentínu, lýsti því yfir á fundi okkar í Buenos Aires í gær að hann teldi blaða­mennsku í hættu ef Bandaríkja­stjórn léti ekki af fordæma­lausri málssókn gegn Assange. Hann ætlaði að stilla saman strengi með öðrum þeim forsetum Rómönsku Ameríku sem við höfum nú átt fundi með, Gustavo Petro í Kólombíu og Lula da Silva í Brasilíu. Við hittum einnig Christinu Fernández de Kirschner (CFK) vara­forseta Argentínu (og fyrr­verandi forseta) sem staðfesti sinn stuðning.Forsetaparið er merkileg eining í pólitískri sögu Argentínu. Síðar í dag fellur dómur í undir­rétti í málssókn gegn CFK vegna ásakana um spillingu. Flestum ber saman um að hún verði sakfelld. Sumir sem telja hana seka um einhvern hluta ásakananna telja þó samt að pólitískur blær sé á allri máls­sókninni og sannanir ákæru­valdsins ákaflega þunnar. Hún getur áfrýjað.Ótvíræður stuðningur pólitískrar forystu Argentínu er mikilvæg viðbót. Fernandez forseti, var sérlega áhuga­samur um lagalegar hliðar málsins gegn Julian, enda fyrr­verandi laga­prófessor og lyfti brúnum iðulega yfir ótrúlegum (en sönnum) sögum um réttar­brotin gegn honum, yfirgang Bandaríkja­stjórnar og snúninga Breska stjórn­kerfisins til að þóknast heims­veldinu.Kjölfesturríki heillar heimsálfu styðja nú málstaðinn. Ef það dugir ekki til að breyta kúrs Bandaríkja­stjórnar verða pólitískir leiðtogar Evrópu að taka málið upp. Það er ekki boðlegt að standa hjá þegjandi þegar gróft mann­réttinda­brot er framið og versta ógn gegn fjölmiðla­frelsi Vestur­landa blasir við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis