Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Segir Miðflokkinn geta boðið bandaríska sendiherranum á þorrablót

„Þar sem hann getur reytt af sér brandara um skrælingja á Grænlandi og á Gaza og hversu vel ungir Miðflokks­menn myndu smell­passa í brún­stakka ICE þegar Ísland er orðið 52. ríkið.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Kristinn skýtur föstum skotum á Mið­flokk­inn Mynd: Víkingur

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, gagnrýnir harðlega Nóbels­verðlaunin og bandaríska utan­ríkisstefnu í Facebook-færslu á dögunum, sem hann skrifaði í kjölfar heim­sóknar Maria Corina Machado til Donald Trump í Hvíta húsinu. Í leiðinni skýtur hann föstum skotum á Miðflokkinn.

Machado, sem nýverið hlaut friðar­verðlaun Nóbels, færði Trump sjálfan Nóbels­gull­peninginn að gjöf eins og frægt er orðið. Kristinn túlkar gjörninginn sem þakklætis­vott fyrir hernaðar­aðgerðir Banda­ríkjanna gegn Venesúela og segir:

„Væntanlega í þakklætis­skyni fyrir að hafa drepið 200 manns í árásum á ættjörð hennar og hafsvæðið í grennd, rænt forseta landsins og olíu­auðlindunum í leiðinni.“

Kristinn heldur áfram og segir að þetta hafi ekki átt að koma á óvart þar sem Machado hafi sjálf hvatt Trump til þessara aðgerða áður en hún var sæmd verð­laununum:

„Þetta á ekki að koma á óvart enda hvatti Machado Trump til þessara verka áður en hún var sæmd verð­laununum í Osló og með velgjörðar­merki Nóbels sín megin, varð léttara fyrir Bandaríkja­forseta að láta til skarar skríða.“

Í færslunni bendir Kristinn jafnframt á það sem hann kallar „magnaða niður­lægingu“ Machado, þar sem Trump hafi sama dag gert lítið úr pólitísku vægi hennar:

„Það er svo mögnuð niður­læging fólgin í því að Trump, sama dag og hann tekur á móti gjöfinni, ítrekar hann að Machado sé ekki þess verð að leiða landsmenn sína og njóti ekki til þess trausts. Trump vill miklu heldur gera díla við Delcy Rodriguez, eftirmann Maduros.“

Kristinn segir að með þessu hafi einnig verið vegið að sjálfri Nóbels­akademíunni og trúverðug­leika friðar­verð­launanna:

„Niður­læging Nóbels­akademíunnar er líka alger og vandséð að friðar­verðlaunin nái nokkru sinni til baka einhverri virðingu. Norska pressan er hins vegar uppfull af vandlætingar­röddum um þetta framsal gull­peningsins til Trumps. Fáir lýsa yfir vandlætingu yfir þeirri stjörnu­gölnu ákvörðun að veita Machado verð­launin í upphafi.“

Í færslunni tengir Kristinn jafnframt þróun mála í Venesúela við umræðu um Grænland og segir friðar­verðlaunin hafa orðið hvati að frekari hernaðar­hyggju:

„Nóbels­verðlaunin urðu hvati til þess að Trump gaf grænt ljós á árásirnar á Venesúela og var varla búinn með verkið þegar það græna ljós futtist yfir á Grænland, enda kóngurinn í Hvíta húsinu kominn í ham. Norska nóbels­nefndin á því hlutdeild í því að Grænlendingar eru flemtri slegnir að búa sig undir innrás bandaríkja­hers.“

Í lok færslu sinnar beinir Kristinn Hrafnsson einnig spjótum sínum að íslenskum stjórn­málum og nefnir þar sérstak­lega Miðflokkinn í samhengi við væntanlegan sendi­herra Banda­ríkjanna á Íslandi.

Kristinn bætir því við að ummæli Long um að Ísland gæti orðið 52. ríki Banda­ríkjanna hafi verið dregin til baka af meiri pólitískri skynsemi en sjáist stundum hér á landi:

„Á sama tíma virðist verðandi sendi­herra Banda­ríkjanna á Íslandi hafa áttað sig á því að það sé ekki pólitískt taktíst að gantast með að Ísland verði 52. ríki Banda­ríkjanna (Grænland væntanlega 51.) nema Billy hafi meiri snert af sóma­tilfinningu en sumir íslenskir stjórn­málamenn sem greindar­keppa við þurrkaða þorsk­hausa og hafa sjaldnast betur.“

Hann segir að stuðnings­menn Billy Long innan flokksins geti tekið vel á móti honum í óformlegum félagskap:

„Áðdáendur Billy boy í Miðflokknum geta samt sem áður boðið honum á þorrablót þar sem hann getur reytt af sér brandara um skrælingja á Grænlandi og á Gaza og hversu vel ungir Miðflokks­menn myndu smell­passa í brún­stakka ICE þegar Ísland er orðið 52. ríkið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda