Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Starf útfararstjórans er ómissandi – Viðkvæmt mál ef rangur aðili er lagður í kistuna

Þegar staðið er frammi fyrir andláti náins ættingja eða ástvinar ber að huga að ýmsum ákvarðana­tökum er varðar útförina. Kostnaður hennar getur hlaupið á háum upphæðum og spurningar hafa vaknað er varðar kostnaðar­liði útfara. 

Íslenskir skatt­greiðendur greiða að hluta til fyrir þennan kostnað með kirkju­sjóðsgjaldi og má þar nefna legstað í kirkju­garði og bálför. Starf prestsins var innifalið en það var afnumið  fyrir tveimur árum síðan. Einhver verkalýðs­félög greiða dánar­bætur til maka og aðstand­anda sem standa strauminn af kostnaði útfararinnar.  Ef neyðin er mikil grípur sveitar­félagið inn í og greiðir hluta kostnaðar að því er nemur 250 þúsund krónur.

Í nýjasta blaði Mannlífs er ítarlega farið yfir kostnað jarðar­fara.

Hér er brot úr greininni:

Óþörf útfararþjónusta?

Flestir hafa séð lík í kvik­myndum, farið í kistu­lagningu nákomins ættingja eða aðstand­anda. Að frátöldu heilbrigðis­fólki vita fæstir raun­verulega hvernig lík lítur út. Mikilvægt er að koma hinum látna sem fyrst í kælingu en eftir andlát byrjar rotnunin, húðin blánar, augun sökkva og munnurinn gapir. Eins er það algengt að líkams­vessar og vökvar fari að leka frá líkinu úr öllum helstu opum, sem óreyndir kunna illa við og á. Ganga þarf frá líkinu á viðeigandi hátt, bera á það smyrsl til að forðast útblástur og koma í veg fyrir önnur einkenni rotnunar. Jafnvel getur það gerst eftir kistu­lagningu að allt innvols og klæðnaður í kistunni rennblotnar.

Á líkhúsinu er hinn látni merktur með nafni og strika­merki enda er það mjög viðkvæmt mál ef rangur aðili er lagður í kistuna. 

Dæmi hefur heyrst af fólki sem taldi útfara­stjórann óþarfan og vildu sniðganga útfarar­þjónustuna til að spara kostnað. Þrennt mætti með hinn látna á sendi­ferðabíl í líkhúsið. Burðurinn frá bílnum gekk brösulega þar sem ekki voru líkbörur. Fólkið ætlaði svo sjálft að snyrta og klæða. 

Ekki gekk það betur en svo en innan skamms voru til þrír starfs­menn kirkjunnar mættir til að hjálpa – sitt sýnist hverjum en ætla má að starfs­menn kirkjunnar hafi ekki fundist að nokkur aðstandandi ætti að standa í slíku.

Aðkoman að hinum látna getur verið mismun­andi og hafa flestir heyrt sögur um einstæðinginn sem legið hafði einn dögum og jafnvel vikum saman. Þangað til lyktin kom upp um afdrif hans.  

Starf útfarar­stjóra er víðtækt og ber þess að geta að þeim ber að fjarlægja og passa að ekki séu lagðir aðskota­hlutir sem geta valdið sprengingu eða óþarfa mengun. Vert er þar að nefna að hafi hinn látni hjarta­gangráð þá er verk útfara­stjóra að tryggja að hann sé fjar­lægður.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni í nýjasta blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning