Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Helgi segir Útvarp Sögu leika á lögregluna léttilega: Segja „glóbalistar“ en meina gyðingar

Helgi Hrafn Gunnarsson.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son.

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrr­verandi þingmaður Pírata, hraunar yfir Útvarp Sögu í nokkuð löngu máli á Facebook í dag. Hann segist hafa fengið hausverk við að hlusta heimskulegar samræður á stöðinnni fyrr í dag. Hann segir að stöðin sé eitt besta dæmið um hvers vegna haturs­orðræðu­löggjöf Íslands sé mein­gölluð, þrátt fyrir heimsku þá komast þau framhjá löggjöfinni auðveldlega.

Helgi skrifar: „Stundum fæ ég líkamlegan hausverk af því að hlusta á Útvarp Sögu. Asnaðist til þess núna fyrir hádegi. Þar sátu forsprakkar rásarinnar tveir ásamt ytri viðmælanda og espuðu hvort annað upp í heimskulegar samsæris­kenningar með því að kasta á milli sín sífellt heimskulegri full­yrðingum byggðri á sífellt blöskrunarlegri vanþekkingu á bókstaf­lega öllu sem ég heyrði þau tala um. Það er ekki bara að þetta hafi verið ein og ein staðreynda­villa, heldur var þetta þvílíkt flóð af kjaftæði að manni fannst eins og leður­blaka með hundaæði væri að sleikja innra eyrað á manni. Sem veldur hausverk.

Og á köflum er orðræðan þannig að hún veldur ekki hausverk fyrir að vera svona heimskuleg, heldur magaverk fyrir óttann og hatrið sem hún miðar að því að espa upp.

Svo ég fór að pæla aðeins í fyrirbærinu hatursáróðri, sem hefur mér reyndar verið hugleikið lengi.“

Hann segir löggjöfina gegn haturáróðri á Íslandi vonlausa. „Nú er haturs­orðræðu­löggjöfin á Íslandi í besta falli óskiljanleg. Ef maður les hæstaréttar­dómana um hvernig henni hefur verið beitt, verður hún ennþá óskiljanlegri. Hún er ófyrirsjáanleg, ónákvæm, og virðist henni ekki bara ætlað að fyrir­byggja hatur, ofbeldi og réttinda­missi jaðarhópa, heldur líka til að verja fólk gegn allt öðrum hlutum, eins og móðgunum. Fyrir vikið er sú löggjöf í skásta falli mestmegnis gagnslaus, ef ekki stundum hreinlega skaðleg. Í löggjöf er það ekki hugurinn sem gildir, heldur afleiðingarnar, og þessi löggjöf er að sjálfsögðu sett af góðum hug, en hún þarf að vera gerð af einhverri alúð. Fólk sem vill eitthvað rökræða þetta við mig skal fyrst hafa lesið a.m.k. einn hæstaréttardóm um þetta, því ég er ekki að mótmæla tilvist haturs­orðræðu­greinar – ég aðhyllist að hafa slíka – en hún má ekki vera gagnslaus og enn síður skaðleg mark­miðinu sem við erum að reyna að ná,“ segir Helgi.

Hann segir marga núans á þessu þó. „Okkur hættir til að réttlæta vondar lausnir með því að tala endalaust um vanda­málið. En þetta er tvennt ólíkt. Það er hægt að vera sammála um vanda­málið en ósammála um lausnina. Því miður er lítill greinar­munur almennt gerður á þessu í íslenskri orðræðu­hefð. Það hefur aldrei verið mikið pláss fyrir núansa, en upplifun mín er allavega sú að plássið minnki jafnt og þétt.

En við Íslendingar dettum ennfremur alltof oft í laga­hyggju þegar kemur að nokkru sem varðar tjáningar­frelsið. Hvað sé í samræmi við Mann­réttinda­sáttmála Evrópu. Hvað standist stjórnar­skrána. Hvernig lögfræði virki. Og gott og vel, það er alveg gagnlegt, en það er hinsvegar ekki það sem þetta snýst um.“

Svo beinir hann aftur sjónum að Útvarp Sögu og hvernig þau leika á lögregluna. „Eftir stendur nefnilega, að fólk getur espað upp ótta og hatur í hvoru öðru, án þess að segja neitt dónalegt, og reyndar jafnvel án þess að nota staðreynda­villur, ef bara heimskan er næg, útúr­snúningurinn nógu einbeittur eða tilfinningarnar eru nógu frum­stæðar. Þetta er nákvæmlega staðan á Útvarpi Sögu. Staðreynda­villur eru reyndar frekar algengar þar, en aðallega er það ályktanirnar sem eru dregnar sem eru út úr kú, í sambland við snældu­sturlaða heimsmynd, þar sem svarið er alltaf einfeldningslegasta útgáfan af einhvers konar samsæri „þeirra“ sem ætla að taka allt frá „okkur“.

Það væri reyndar áhugavert að heyra hvernig fólki litist á Útvarp Sögu ef skipt væri út orðinu „glóbalistar“ fyrir orðið „gyðingar“. Auðvitað mættu þau það ekkert, en vitiði hvað, það er ekkert mál að nota þá bara eitthvað annað orð. Ég veit að það er fullt af fólki sem túlkar „glóbalistar“ einfald­lega sem gyðinga, vegna þess að ég hef talað við það fólk.“

Hann reynir svo að herma eftir umræðunni á stöðinni. „Það eru útlendingarnir sem vilja taka auðlindirnar okkar, samkvæmt þeim, en síðan er til ennþá verri hópur: Íslendingar sem vilja það, í stað þess að verja landið. Íslenskir svikarar. Svo voru glæstir dagarnir þegar Sjálfstæðis­flokkurinn barðist fyrir sjálf­stæði, áður en glóbalistarnir neyddu okkur til að afsala okkur auðlindum til sín í leitan sinni að heims­yfirráðum. Þetta er bara niður­soðna útgáfan af þessu þverstæðu­kennda kjaftæði sem ég heyrði áðan, en það þarf að hlusta á efnið beint, og þekkja til orðræðu aktúal fasista (sem skammast sín ekki þegar þeir eru kallaðir það), til að öðlast skýra mynd af því hversu ógeðsleg orðræðan þarna raun­verulega er.“

Niður­staðan sé að það er barna­leikur að dulbúa haturs­orðræðu á Íslandi. „En hér er vandinn. Þau sögðu ekkert sem væri hægt að ákæra fyrir haturs­orðræðu. Það er nefnilega algjör barna­leikur að dulbúa viðbjóðs­legan málstað með orða­gjálfri sem segir aldrei beint út hvaða hóp um ræðir, og notar engin fúkyrði. Það er ekkert mál að snúa út úr stað­reyndum og búa þannig til ótta úr bábiljum. Það eina sem þarf til að spúa út tauga­veiklun og hatri, er rétt samblanda af heimsku og frum­stæðum tilfinningum.

Það er vonandi augljóst að heimska og frum­stæðar tilfinningar verða ekki upprættar með því að banna þær. Það bara virkar ekki, sama hversu mikið við myndum vilja. Alveg eins og að það hefur ekki virkað að banna dóp. Það þýðir ekki að dóp sé gott, það bara virkar samt ekki. Og er ekki að virka, hvorki hér, né í Þýska­landi né annars staðar.“

Að lokum segist hann telja að besta leiðin til að draga úr áhrifum Útvarp Sögu væri einfald­lega með samkeppni. Eins og er þá sé hún með einokun á spjall-útvarpi. „Það er óhugsandi í mínum huga að við þessu verði brugðist með löggjöf. Jafnvel með löggjöf sem gengi svo langt að hún mölbryti í bága við stjórnar­skrána og Mann­réttinda­sáttmála Evrópu. Það verður að takast á við þetta með upplýsingu, þ.e. með því að koma réttum upplýsingum, réttri rökfræði og smá full­orðins yfirvegun til fólks sem annars étur þetta upp hrátt. Á útvarps­markaði á Íslandi er vandinn sá, að Útvarp Saga er eina almenna, raun­verulega spjall-útvarpið. Ef þig langar að heyra spjall hvenær sem er dagsins, á meðan þú ert að keyra (leigubíl – just sayin’), eða taka til í garðinum, eða vaska upp, eða hvaðeina, þá er þetta það eina sem er í boði.

Það versta sem gæti komið fyrir Útvarp Sögu, væri virk og almennileg samkeppni á þeim markaði. Samkeppni við þátta­stjórnendur sem geta drullast til að kynna sér það sem þeir eru að þvaðra um.

En jafnvel ef það tækist, þá væri það bara útvarpið. En vandinn er langt frá því að vera allur þar.

Eftir stendur þetta helvítis internet, sem er orðin gróðrar­stía haturs og andlegs ofbeldis af allri sort og úr mörgum áttum. Bergmálshellirnir stjórna heiminum, hvar sem maður stendur. Það er mögulegt að stíga út fyrir þá, en það krefst frum­kvæðis sem flest fólk hefur ekki, og er reyndar erfitt jafnvel þá, vegna þess að gervi­greindin er farin að draga ályktanir um hvað eigi að bjóða okkur, út frá eigindum okkar sem við erum ekki einu sinni meðvituð um.“

Helgi segir heimsku vera rót vandans. „Þannig að ef einhverjum hérna finnst ég vera að gera lítið úr vandanum, þá er viðkomandi ekki að hlusta. Vandinn er miklu, miklu, miklu stærri og alvarlegri heldur en fólk heldur. Sum mikil­vægustu nágranna­ríkin okkar eru á hraðri leið í átt að vald­hyggju, og næstu árin í bæði austri og vestri munu hafa úrslita­áhrif á hvort við eigum einhvern séns á að sníða framhjá því sjálf. Og þegar fólk heldur að það sé að leysa eitthvað með haturs­orðræðu­löggjöf, þá er það auðvitað að reyna að gera eitthvað gott, en aftur: vandinn er mun stærri en að einhver móðgist eða tilfinningar særist, heldur líka brotin rökfræði og rangar ályktanir, sem án allra móðgana eða kæranlegra orða­samsetninga, espir upp ótta og hatur, réttlætir stríð og dregur úr tiltrú á bæði frelsið og lýðræðið.

Bensínið á þessa orðræðu eru krist­altær heimska og gerræði frum­stæðra tilfinninga, í stað yfir­vegaðrar og heiðarlegrar sannleiks­leitar. Ef haturs­orðræðu­löggjöf er helsta vopnið sem við höfum, þá erum við í megin­atriðum vopnlaus og þetta stríð, eða hvað sem þetta er, er þegar tapað.

Veit ekki með ykkur, en mig langar ekkert til að tapa því.

En þá þarf að ráðast á rót vandans, og rót vandans er botnlaus heimskan sem ræður ríkjum í mannlegu samfélagi. Að vinna bug á slíku vandamáli er óþægilegt, erfitt og flókið, en við komumst ekki hjá því að gera það. Í því verkefni reynir ekki bara á Alþingi heldur á samfélagið sjálft, og samfélagið allt. Líka þig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið