Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fyrsta plata Sigur Rósar í 10 ár kemur út í dag: „Heimurinn þarf á því að halda núna“

Sigur Rós – 2023 – ljósmynd Tim Dunk
Sigur Rós – 2023 – ljós­mynd Tim Dunk

Sigur Rós sendir frá sér nýja breið­skífu, þá fyrstu í tíu ár. Átta er tíu laga plata og má lýsa sem innhverfri og tilfinninga þrungni. Hún verður fáanleg í stafrænu formi frá og með föstu­deginum 16. júní en verður gefin út á CD og vínyl 1. september. Fyrsta smáskífa plötunnar „Blóðberg“ var gefin út síðasta mánudag og hægt er að hlýða á lagið á öllum helstu streymis­veitum. Hér er hægt að hlusta á „Blóðberg“.

Hljómurinn á ÁTTA litast af núverandi samsetningu hljóm­sveitarinnar, þríeykinu Jónsa, Georgi Hólm og Kjartani Sveins­syni—sem er aftur kominn til liðs við hljóm­sveitina eftir að hafa hætt árið 2012. Félagarnir þrír leyfðu stemningunni í hljóð­verinu að tala til sín og „vildu bara hafa látlausar trommur og að tónlistin væri gisin, fljótandi og falleg,” segir Jónsi. „Við erum að eldast og erum kaldrifjaðri en áður, takmarkið mitt var bara að hreyfa við okkur þannig að við myndum finna fyrir einhverju”. Kjartan er sammála: „Við vildum gefa okkur svigrúm til þess að vera dramatískari og fara langt með útsetningarnar. Heimurinn þarf á því að halda núna. Því er erfitt að lýsa en mér finnst allt vera alltaf opið fyrir túlkun. Fólk hugsar og trúir því sem það vill”.

Platan var hljóð­rituð í Sund­lauginni í Mosfellsbæ, Abbey Road stúdíóinu í Bretlandi og nokkrum hljóð­verum í Banda­ríkjunum. Á ÁTTA má heyra viða­miklar útsetningar og platan snertir á flestu sem hefur gert Sigur Rós að einni lofuðustu hljómsveit seinni tíma en á sama tíma má líka heyra ný blæbrigði sem teygja sig í átt til framtíðar. London Contemporary Orchestra spilar inn á plötuna undir stjórn Robert Ames og gamlir vinir hljóm­sveitarinnar, brass­bandið Brassgat í bala spilar einnig inn á plötuna. Paul Corley hljóð­blandaði tónlistina en hann kom líka að upptöku­stjórn ásamt meðlimum Sigur Rósar. Mynd­verkið sem príðir plötu umslagið er eftir Rúrí. Platan kemur út á vegum BMG en Smekk­leysa sér um útgáfuna á Íslandi.

Eftir farsótt í heimi sem er sundur­tættur vegna stríða, efnahags­kerfum í uppnámi, menningar stríðum og orðræðum sem valda sundrung er tónlistin á ÁTTA sefandi og samheldin. „Þetta var það sem tónlistin krafðist af okkur og hún talar fyrir sig sjálf,” segir Georg Hólm. „Platan hljómar eins og Sigur Rósar breið­skífa en tónlistin er innhverfri en áður. Hún er teygir út anga sína í gegnum strengja­útsetningarnar en horfir inn á við frekar en út.“

Jónsi er líka á því að bæði Sigur Rós og ÁTTA lifi algjör­lega í núinu og endur­spegli samtímann. „Í gegnum hvert ferli tölum við alltaf um hverja plötu eins og hún gæti verið okkar síðasta,” og bætir við: „Við erum alltaf að hugsa um loftslags­breytingar, dómsdags skroll og að fara til helvítis. Við upplifðum heiminn fremur hráslaga­legan á meðan upptökum stóð en kannski er von. Þar sem er myrkur er alltaf ljós.”

Sigur Rós – ÁTTA lagalisti

  1. Glóð
  2. Blóðberg
  3. Skel
  4. Klettur
  5. Mór
  6. Andrá
  7. Gold
  8. Ylur
  9. Fall
  10. 8
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt