Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Céline Dion slaufar Evróputúrnum vegna veikinda: „Ég vil að þið vitið að ég er ekki að gefast upp“

Céline Dion
Céline Dion Mynd: Trausti Hafsteinsson

Céline Dion er búin að slaufa tónleika­ferðalagi sínu um Evrópu vegna veikinda.

Söng­drottningin Céline Dion sagði frá veikindum sínum í desember síðastliðnum en hún greindist nýlega með afar sjaldgæfan tauga­sjúkdóm sem á ensku heitir Stiff-person syndrome. Sjúk­dómurinn veldur vöðva­krömpum sem hafa áhrif á lífsgæði söng­konunnar. Hún hafði þrátt fyrir veikindin stefnt á tónleika­ferð um Evrópu sem bar heitið Courage World Tour en í dag tilkynnti hún aðdáendum sínum á Instagram að hún væri ekki tilbúin og þyrfti að slaufa tónleika­ferðinni.

„Mér þykir svo leitt að valda ykkur vonbrigðum enn og aftur,“ skrifaði Dion í skila­boðunum. „Ég vinn hörðum höndum við að endur­heimta minn fyrri kraft, en tónleika­ferðir geta verið mjög erfiðar, jafnvel þegar þú ert 100 prósent. Það er ekki sann­gjarnt gagnvart ykkur að fresta sífellt sýningum, og jafnvel þó það sé mér afar sárt, það er best að við slaufum öllu núna þar til ég er tilbúin að stíga aftur á sviðið. Ég vil að þið vitið að ég er ekki að gefast upp og ég get ekki beðið eftir að sjá ykkur aftur!“

Í desember sagði Dion frá því í tilfinningaþrúngnu myndbandi á Instagram, að hún hefði verið greind með hinn sjaldgæfa tauga­sjúkdóm.

„Ég hef verið að glíma við heilsu­vandamál í langan tíma og það hefur verið mér afar erfitt að standa andspænist þessum áskorunum og tala um það sem ég hef verið að ganga í gegnum,“ sagði Dion meðal annars í mynd­bandinu.

„Því miður hafa kramparnir áhrif á alla þræði míns daglega lífs,“ hélt hún áfram. „Stundum hafa þeir valdið vanda­málum þegar ég geng eða þegar þeir leyfa mér ekki að nota radd­böndin til að syngja á þann hátt sem ég er vön.“

Dion tók fram að hún væri með frábært teymi í kringum sig, þar á meðal lækninn hennar og börn, René-Charles, 22 ára og 12 ára tvíburarnir Eddy og Nelson, sem hún átti með eigin­manni sínum René Angélil sem lést fyrir nokkrum árum.

„Ég hef von um að ég sé í bataferli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt