Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Tvær af þyngstu konum heims misstu 500 kíló eftir skilnaði við eiginmenn: „Kannski breytist hann “

Tvær af feitustu konum í heimi, Christina Phillips og Zsalynn Whitworth , losuðu sig samanlagt við ríflega 500 kíló eftir skilnað við ofbeldis­fulla eiginmenn sína.

Konurnar komu fram í þáttunum „600 punda líf mitt“ en þeir fjalla um líf einstaklinga í mikilli ofþyngd. Christina var þá um 320 kíló en Zsalynn 272 kóló. Snerist þátturinn mikið til um löngun kvenna í ofþyngd til þess að eignast börn og hvort aðgerð þyrfti til að aðstoða þær við þyngdar­missinn. Konurnar voru báðar á þeim stað að eiga eiginmenn sem vildu ekki sjá kílóin fara, þær þurftu því að ákveða hvort þær héldu áfram óheil­brigðum lífstíl sem myndi að öllum líkindum draga þær til dauða eða missa maka sína.

Margar kvennana voru rúmliggjandi og ekki færar um að hugsa um sig sjálfar, eiginmenn þeirra voru þá margir í því hlutverki að hjúkra konum sínum.

Eigin­maður Zsalynn, Gareth, var algjör­lega mótfallinn því að sjá hana missa kíló, hann viðurkenndi að það sem heillaði hann aðallega við konu sína væri þyngdin, að honum þætti stærri konur aðlaðandi.

Þegar Zsalynn tók ákvörðun um að breyta lífi sínu til hins betra, var eigin­maður hennar allt annað en stuðnings­ríkur. Hann sá að mestu um þarfir Zsalynn, hún þurfti aðstoð við allar daglegar þarfir. Þegar hún bað mann sinn um að kaupa fyrir hana salat, neitaði hann. „Ég er ekki að fara að kaupa fyrir þig salat. Ef þú villt borða gras geturðu farið út í garð.“ Gareth hélt áfram að kaupa skyndi­bita og tók ekki þátt í því að aðstoða Zsalynn við þyngdar­missinn.

Zsalynn áttaði sig fljótt á því að tilraunir hennar til að halda í eiginmann sinn væru að drepa hana. „Ég átta mig á því að ég hafi lifað í lygi sem var rólega að drepa mig. Stór stærð getur ekki verið fallegt ef það leiðir til þess að dóttir mín eigi enga mömmu. Hann hafði enga hugmynd um hversu nálægt dauðanum ég var komin.“

Þrátt fyrir mótmæli eigin­manns síns, fór Zsalynn í maga­ermisaðgerð og losaði sig við rúm 270 kíló. Henni fór að líða betur, bæði líkamlega og andlega. Þrátt fyrir það var Gareth ósáttur, hann vildi hafa hana feita. „Það er kominn tími til þess að horfast í augu við það að þetta er búið. Hann hefur ekki fundið mikið jákvætt við breytingarnar,“ sagði Zsalynn og hélt áfram: „Ég held að ég eigi skilið öðruvísi ást. Kannski breytist hann einn daginn.“ Zsalynn flutti frá eigin­manni sínum og býr nú í Texas með dóttur sinni.

Christina Phillips kom fram í sama þætti og Zsalynn. Henni var sagt að ekki væri möguleiki fyrir hana að fara í maga­ermisaðgerð, hún þyrfti fyrst að léttast en hún var þá rúmlega 320 kíló. Hún sagðist vera fangi eigin líkama. Eigin­maður hennar Zach, var ekki tilbúinn að styðja hana. Að lokum fóru þau hvor í sína áttina. Christina segist finna fyrir frelsi eftir skilnaðinn, að hún geti gert allt sem hana langar til en eftir nokkurn þyngdar­missi, fór hún í aðgerðina. Hún er nú um 83 kíló og á von á öðru barni sínu á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu