Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Mogginn nötrar vegna Dags

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son.

Háspenna ríkir nú um að í borgar­stjórn­málunum. Stóra spurningin er  hvað Einar Þorsteinsson, leiðtogi Fram­sóknarmanna, hyggist gera vegna óumflýjanlegs meirihluta­samstarfs. Nokkuð augljóst er að Sjálfstæðis­flokkurinn kemst ekki í meirihluta vegna þess að Samfylking, Sósíal­istar, VG og Viðreisn hafna flokknum. Morgun­blaðið nötrar og hefur farið hamförum vegna þessa og reynir allt til að koma Degi B. Eggerts­syni borgar­stjóra út í buskann. Nokkur fjöldi frétta um að Dagur svari ekki símtölum frá Hildi Björns­dóttur er einkenni tauga­veiklunar blaðsins.

Fremstur í flokki í skrifum Moggans er Andrés Magnússon, yfirmaður minningar­greina blaðsins og einn öflugasti liðsmaður Skrímsla­deildar Sjálfstæðis­flokksins, sem skrifar hvern uppsláttinn af öðrum um mögulega og ómögulega meirihluta. Andrés er vel kunnugur innri málum borgar­stjórnar­flokksins því hann er bróðir Kjartans Magnússonar borgar­fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins. Lítið fer þó fyrir skrifum Moggans um þá óeiningu sem ríkir innan borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sem þykir óstjórn­tækur vegna innri klofnings og hjaðningarvíga.

Einar Þorsteinsson er sætasta stelpan á ballinu og ætlar að taka ákvörðun um meirihluta­viðræður í dag.  Flestir veðja á að hann taki stökkið og hefji viðræður við Dag og félaga og að Einar fái borgar­stjóra­stólinn, að minnsta kosti hálft kjör­tímabilið. Samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn sé einfald­lega pólitískur ómöguleiki. Sýnt þykir að Dagur þurfi ekki að svara símtölum Hildar ….

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Slúður