Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Lenya spyr hvers vegna Sigmundi er hleypt í útvarpið: „SDG er að reyna að búa til fasískt fylgi“

Lenya Rún
Lenya Rún

Lenya Rún Taha Karim, vara­þingmaður Pírata, spyr á Twitter hvers vegna rætt er við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, í útvarpinu. Hún segir nýjasta útspil hans sé að reyna að flytja til Íslands haturs­orðræðu í garð trans­fólks frá Bretlandi og Banda­ríkjunum.

Sigmundur Davíð karpaði við fyrr í dag við Helgu Völu Helga­dóttur, þingkonu Samfylkingarinar, í Sprengis­andi Heimis Karls­sonar á Bylgjunni. Mest rifust þau um málefni trans­fólks, nýjustu skotspón menningar­stríðs Vestur­landa.

Lenya skrifar: „Afhverju er yfir höfuð verið að gefa Sigmundi Davíð platform til að koma sínum skaðlegu og misvísandi skoðunum á framfæri? SDG sér að fasismi og haturs­orðræða í garð trans fólks er að virka meðal íhalds­samra pólitíkusa í BNA og Bretlandi og vill nýta sér þessa pólitík á Íslandi.“

Halldór Auðar Svansson, fyrr­verandi borgar­fulltrú Pírata, tekur undir og segir þetta furðu augljóst hjá Sigmundi. „Já, hann segir þetta meira að segja beint út sjálfur. Vísar alltaf í erlenda umræðu og kvartar yfir því að það sé minni umræða hér. Hann vill deilur um þessi mál af því hann sér fyrir sér að hann muni hafa þar hlutverk og fylgjendur.“

Lenya er spurð hvað sé hægt að gera í málinu. „En hvernig verður það lagað? Ef það væri ekki SDG að þá væri einhver annar tækifærisinni að nýta sér þessar skoðanir fólks.Andskotans skoðana­frelsi,“ skrifar maður nokkur.

Hún svarar: „Kannski einstak­lega hættulegt því SDG er að reyna að búa til eitthvað fasískt fylgi hér á Íslandi og nýta sér það í pólitíkinni. Það munu alltaf vera manneskjur með ömurlegar skoðanir en um leið og maður hefur platform til að breyta þessum skoðunum í lög er það hættulegra.“

Fleiri gagnrýna Bylgjuna að hleypa Sigmundi í útvarpið, líkt og Ugla Stefanía Kristjönu­dóttir Jóns­dóttir, fyrr­verandi formaður Trans Íslands. Hún segir í pistli sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan að flest sem Sigmundur sagði hafi verið bull. Ugla segir líkt og Lenya og Halldór að vegferð Sigmundar sé augljós.

„Sú tilraun til að grafa undan réttinda­baráttu trans fólks og hinsegin fólks með vísun í kven­réttindi er því lítið annað en illa ígrunduð yfir­hylming og vanþekking á þessum mála­flokkum. Svona taktík er sambærileg þeim aðferðum þegar réttindum öryrkja og eldra fólks er etjað gegn innflytjendum og hælis­leitendum. Þessar aðferðir eru því mjög lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan réttinda­baráttu frekar en að vernda fólk,“ skrifar Ugla.

Pistill Uglu í heild sinni

Var að hlusta á Bylgjuna af einskærri tilviljun í morgun — og þar voru þau Helga Vala og Sigmundur Davíð að tala um kynvitund. Þar fór SDG með allskonar fleipur um lög um kynrænt sjálfræði, og talaði ítrekað niður til réttinda­baráttunar, eða aktívisma, og mikilvægi hennar í tengslum við laga­setningar.

Þar má helst nefna að hann talaði um að það hefðu verið hópar aktívista sem skrifuðu lög um kynrænt sjálfræði, og þar hefði löggjafinn verið að afsala sér völdum til þeirra.

Þetta er auðvitað stórkost­lega mikil þvæla — og líka gríðarleg vanvirðing við það starf sérfræðinga og fagfólks sem kom að smíðum frumvarps um kynrænt sjálfræði.

Sá hópur sem kom að smíðum þessa frumvarps var fólk úr gras­rótinni, lögfræðingar, kynja­fræðingar, félags­fræðingar, siðfræðingar, þingfólk, og spreng­lært fólk og aðrir sérfræðingar í málefnum hinsegin fólks.

Þessi vinna tók hátt í fjögur ár og var haft ríkt samráð við allar helstu stofnanir, hagsmuna­félag, kven­réttinda­félög og önnur mann­réttinda­samtök. Að smætta vinnu þessa hóps niður í einhvern “hóp aktívista” á niðrandi hátt lýsir engu nema vanþekkingu og vanþóknun hans á réttinda­baráttu hinsegin fólks.

Þegar að frum­varpið fara svo í hendur ráðuneytis og inn í ferli á Alþingi þá fór það algjör­lega úr okkar höndum. Þá fer frum­varpið inn í nefnd, í margar umræður á Alþingi og þar af lokum í atkvæða­greiðslu. Í því ferli breyttist ýmislegt frá frum­varpinu sem við skiluðum af okkur, enda löggjafinn með valdið til þess. Þegar kemur að atkvæða­greiðslu þá tekur þingfólk meðvitaða ákvörðun út frá því ferli og áliti sérfræðinga — og kusu nær allt þingfólk með frum­varpinu, að undan­skyldum Miðflokknum. Þetta á ekkert við um þetta frumvarp, heldur væntanlega öll frumvörp, sem eru unnin í samráði við sérfræðinga á viðeigandi sviðum.

Svo eru stað­hæfingar að þessi lög stangist á við réttindi kvenna auðvitað úr lausu lofti gripin— enda studdu öll helstu mann­réttinda­samtök frum­varpið, þar með talið Kven­réttinda­félag Íslands. Samstarf milli Kven­réttinda­félagsins og Trans Íslands hefur til að mynda verið mjög gott undan­farin ár, og er TÍ eitt af þeirra meðlimum.

Það hlýtur að teljast vandræðalegt fyrir SDG að gera sig út fyrir að vera verndari kven­réttinda — en kynja­halli hafði ekki verið meiri í hans ríkis­stjórnartíð en síðan 1999, þar sem eingöngu þrjár af níu ráðherrum voru konur. Þess má geta að hann kaus líka á móti rýmkunar til þungunar­rofs á sínum tíma, og getur því seint talist vera mikill kven­réttinda­frömuður, þótt fátt sé nefnt.

Sú tilraun til að grafa undan réttinda­baráttu trans fólks og hinsegin fólks með vísun í kven­réttindi er því lítið annað en illa ígrunduð yfir­hylming og vanþekking á þessum mála­flokkum. Svona taktík er sambærileg þeim aðferðum þegar réttindum öryrkja og eldra fólks er etjað gegn innflytjendum og hælis­leitendum. Þessar aðferðir eru því mjög lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan réttinda­baráttu frekar en að vernda fólk.

Ég held það væri því betra að miðlar eins og Bylgjan myndu frekar ræða við raun­verulega sérfræðinga sem búa yfir þekkingu á mála­flokkum. Slíkt myndu skapa mun betri og málefnalegri umræður um þessi málefni sem eru til þess að upplýsa og fræða — í stað þess að hræða og afvega­leiða

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá