Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Framkvæmdastjóri Gildis um brottrekstur Eggerts – Gerir ekki athugasemd við ákvörðun stjórnar

Árni Guðmundsson
Árni Guð­munds­son Mynd: Gildi.is

Ólga er innan hluthafa­hóps Festar vegna skyndi­legs brott­hvarfs Eggerts Þórs Krist­ófersson frá Festi. Eins og Mannlíf fjallaði um á sunnudag sagði Eggert ekki sjálfur upp heldur var honum sagt upp vegna þrýstings frá einka­hluthöfum.

Fram kom í fjöl­miðlum að meirihluti þeirra 20 stærstu hluthafa í Festi hafi frétt fyrst af málinu er tilkynning var send til Kaup­hallarinnar og fréttir tóku að berast í fjöl­miðlum. Alls eru 13 af 20 stærstu hlut­hafanna lífeyris­sjóðir sem saman eiga um 70 prósent af hlutafé félagsins.

Mannlíf sendi tölvupóst á þrjú stéttar­félög sem eiga mest í Festi og spurði út í málið. Þau eru LSA, Gildi lífeyris­sjóður og Lífeyris­sjóður Verzlunarmanna.

Spurningar Mannlífs:

„Nú er orðið ljóst að forstjóri Festis, Eggert Þór Krist­ófersson var rekinn þaðan þrátt fyrir að hafa staðið sig með prýði í starfi sínu. Þetta herma heimildir bæði Mannlífs og Viðskipta­blaðsins. Viðskipta­blaðið fullyrðir að ólga sé meðal fjárfesta í fyrir­tækinu og vildi ég athuga hvað þú hefðir um málið að segja, er það satt að ólga sé vegna málsins? Hyggst Gildi bregðast við á einhvern hátt?“

Aðeins hefur forstjóri Gildis, Árni Guðmundsson hefur svarað spurningum Mannlífs. Svar hans er nokkuð loðið því hann segir stjórnina og Eggert hafa „náð samkomu­lagi um starfslok forstjórans“ en slíku samkomu­lagi er hægt að ná hvort sem mönnum sé sagt upp eða segi upp sjálfir.

Hér er svar Árna:

„Eins og fram hefur komið hafa stjórn og forstjóri Festi hf. náð samkomu­lagi um starfslok forstjórans.

Eðli máls samkvæmt heyra slíkar ákvarðanir undir stjórn félagsins og Gildi gerir ekki athugasemd við niður­stöðuna.“

Berist svör frá hinum lífeyris­sjóðunum verða þau birt hjá Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá