Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Markús hugðist öðlast bandarísk skipstjórnarréttindi – Stunginn í hjartastað á köldu janúarkvöldi

New Orleans 1968
New Orleans 1968

Maður nokkur er á gangi með hundinn sinn á þessu kalda janúar­kvöldi í New Orleans. Allt í einu tekur hann eftir manni sem stóð vart í lappirnar þar sem hann stóð við útidyr húss. Maðurinn með hundinn hleypur að til að hjá hinum manninum en sér þá að ekki er allt með felldu. Manninum blæddi. Þegar lögregluna bar að garði sá hún blóðslóð frá íbúðar­húsi mannsins og alveg að tjörn þar skammt frá. Maðurinn hafði verið stundið tvívegis í hjarta­stað og lést stuttu síðar. Maðurinn hét Markús. F. Sigurjónsson.

Morgun­blaðið fjallaði um málið:

ÍSLENDINGUR MYRTUR VESTANHAFS
– Morðinginn ófundinn

MARKÚS F. Sigurjónsson, skip­stjóri, var myrtur fyrir utan heimili sitt í New Orleans að kvöldi sunnu­dagsins 7. janúar síðastliðinn. Fannst Markús á götunni liggjandi í blóði sínu um kl. 21.45 og kl. 22-56 lézt hann af völdum sára sinna.

Ættingjum Markúsar heitins barst í gær bréf frá skóla­stjóra Page Navigation School, þar sem þeim var tilkynnt lát hans, en Markús hafði innritazt í skólann, þar eð hann hugðist öðlast bandarísk skip­stjórnar­réttindi.
Í einu af dagblöðum New Orleans birtist frétt um morðið. Þar segir, að Markús hafi látizt
af völdum sára, er hann hafi hlotið og árásar­maður veitti honum. Að áliti lögreglunnar
hefur morðinginn ekki búið í hverfinu.
Maður sem var á gangi með hundinn sinn sá Markús, sem riðaði frá neðri enda Washingtonstrætis, að útidyrum húss, sem síðar reyndist vera heimili hans. Maðurinn hljóp til og ætlaði að hjálpa, en sá þá að honum blæddi og kallaði því á lögregluna. Lögreglan fann blóðslóð alveg frá íbúðar­húsi Markúsar að tjörn, er var skammt frá.
Markús hafði verið stunginn í hjarta­stað tvisvar með mjög beittum hníf eða rýtingi. Lögreglan telur, að ekki sé um að ræða rán, því að Markús var bæði með úr sitt á sér
er hann fannst, svo og peninga. Ennfremur segir lögreglan, að engar líkur séu til, að Markús hafi lent í ryskingum. Lögreglan hefur engan grunaðan um þetta svívirðilega morð
að svo komnu máli.

Markús F. Sig­ur­jóns­son f. 11.júlí 1910 d. 7. jan­úar 1968

Þess má geta, að sama dag og Markús er myrtur birtist í Mbl. grein, sem byggð er á framhalds­grein úr tíma­ritinu Ægi eftir Markús. Birtist hún í Ægi fyrir tveimur árum.
Mbl. hafði í gær tal af Pétri Thorsteinsson sendi­herra íslands í Washington og spurði hann
hvort nokkuð nýtt hefði komið fram í morðmáli Markúsar. Pétur sagðist þá vera nýbúinn
að tala við lögreglu­yfirvöldin í New Orleans og hefði sér verið tjáð að lögreglan hefði enn engan grunaðan. Fáir hafi verið á ferli umrætt kvöld enda kalt í veðri. Málið er í rannsókn.

Markús var einungis 58 ára er hann hann var myrtur árið 1968 en blaða­maður Mannlífs fann hvergi upplýsingar um það hvort morðingi hans hafi nokkurntímann náðst. Allar ábendingar eru vel þegnar.

Baksýnis­spegill þess birtist áður 6. maí á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning