Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Össur minnist Hrafns: „Ég syrgi hann í dag, og alla daga”

Hrafn Jökulsson var borinn til grafar í dag að viðstöddu fjölmenni.

Gamli stjórnmála­skörungurinn Össur Skarp­héðinsson ritaði fallega grein um Hrafn, sem var öllum þeim er til hans þekktu ógleymanlegur persónu­leiki í alla staði:

SÓLFARARRÆÐA HRAFNS

Ég hitti Hrafn fyrst við tafl í Mela­skólanum, örlítinn, kotroskinn pjakk. Hann var þá 10-11 ára gamall. Strax þá var hann orðinn sá sem við öll þekktum: Ótvíræður foringi, uppreisnar­gjarn, og fullur af þeirri réttlætis­kennd sem einkenndi allt hans líf. Nokkrum árum eftir skákirnar í Meló var ég allt í einu ungur ritstjóri Þjóð­viljans og réði hann sem blaðamann. Hann reyndist hvalreki; hamhleypa til verka, eitur­skarpur og skrifaði stíl sem minnti á vorgolu. Jafnvel á Þjóð­viljanum, þar sem allir voru Íslands­meistarar í stíl­snilld, dáðust menn að töfrum hans.. Engum kom því á óvart þegar Hrafn – aðeins 21 árs – var gerður að umsjónar­manni Helgar­blaðsins. Það var þá einn helsti vettvangur menningar­umræðu í landinu. Hann beið ekki boðanna, og leiddi fram á sviðið nýja kynslóð lista­manna, fólk einsog Gerði Kristnýju, Jón Gnarr og marga fleiri.

Á þessum dögum var Þjóð­viljinn bardaga­blað sem skaut fast og hikaði ekki við að draga andstæðinga sundur og saman í háði. Þar var Hrafn á heima­velli. Þunga­vigtarmenn kveinkuðu sér og sumir gripu til varna með hörðum greinum í Mogganum. Einn ráðherra sakaði hann um að æsa upp skrílinn. Vestfirskur ráðherra, sem talaði klassíska íslensku, Sverrir Hermannsson, skrifaði fræga grein og sagði að unglingurinn á Þjóð­viljanum hefði étið óðs manns skít.

Þá daga var Hrafn í essinu sínu, okkar manni leið best í fremstu víglínu. Rauði þráðurinn sem rann í gegnum öll hans skrif var þessi: Hrafn var alltaf á bandi lítilmagnans, alltaf fullur af réttlætis­kennd, alltaf í sókn fyrir þá sem áttu undir högg að sækja. Einu gilti hvort það voru fangar, fólk með geðraskanir eða börn: -hann var alltaf talsmaður hinna hrjáðu og smáðu, hinna jaðar­settu, þeirra sem ekki var pláss fyrir. Það var hans fólk.

Síðasti sigur hans var að ná því fram að afleiðingar ómannúð­legs aðbúnaðar barna á vöggu­stofum fyrri tíðar yrðu rann­sakaðar. Sjálfur var hann eitt þeirra barna. Hann taldi að dvölin þar hefði markað óafmáanleg spor í líf hans síðar.

Á Pressunni, hjá Gunnari Smára, skrifaði hann greina­flokk um aðbúnað fanga, sem síðar varð eitt af temum hans sem ritstjóra Alþýðu­blaðsins. Í það skrifaði Hrafn sína frægustu grein um ríkislögreglusjóra – glæpamanna­fram­leiðanda ríkisins – og var umsvifa­laust kærður fyrir ærumeiðandi ummæli. Skeleggur héraðs­dómari, Guðjón St. Marteinsson, sýknaði Hrafn. Ríkis­saksóknari áfrýjaði fyrir hönd ríkis­lögreglu­stjórans, en sigur Hrafns var stað­festur í Hæstarétti. Í kjölfarið breytti svo Alþingi lögum. Þetta var söguleg niður­staða.

Hrafn Jökulsson, einn síns liðs og með ekkert að vopni nema hið örsmáa Alþýðu­blað, breytti íslenska réttar­kerfinu og jók málfrelsi Íslendinga svo um munaði. Á þessu skeiði var hann einnig mjög virkur í stjórn­málum og markaði miklu dýpri spor en margir skilja. Á Þjóð­viljanum gekk hann inn í ungt samfélag sem var í uppreisn gegn forystu flokksins, Alþýðu­bandalaginu – sem átti blaðið – og vildi uppgjör við fortíðina sem teygði sig aftur í kommúnisma Sovétsins og A-Evrópu. Matthías Johannessen, ritstjóri Morgun­blaðsins, kallaði Þjóðvilja­hópinn „lýðræðis­kynslóðina”.

Hrafn varð partur af henni. Hrafn varð lykil­maður í stofnun Birtingar, sem var uppreisnar­félag sem lýðræðis­kynslóðinni tengdist. Þegar Birting knúði fram uppgjör á einum harðasta átaka­fundi í sögu Alþýðu­banda­lagsins var Hrafn – rétt tvítugur – helsti talsmaður hópsins, og sá, sem flutti tillöguna, sem átökin snérust um. Tíu árum síðar var Alþýðu­bandalagið ekki til.

Hrafn tók síðan virkan þátt í sameinuðu framboði lýðræðis­sinnaðra jafnaðar­manna í Reykjavík, Nýjum Vettvangi, sem ruddi brautina fyrir Reykja­víkur­listann. Síðan hafa öfl félags­hyggjunnar nær óslitið ráðið borginni. Hrafn var partur af því ferli. Hann var líka í öðru sæti fyrir Alþýðu­flokkinn á Suður­landi árið 1995, þar sem héraðs­blöð greina frá því að kosninga­fundir hafi meira og minna snúist um hann, og tók tvisvar sæti á Alþingi.

Jómfrú­ræða hans, sem flutt var blaðlaus í hita augna­bliksins, snérist vitaskuld um mann­réttindi. Mér er enn minnis­stætt að þáverandi utan­ríkis­ráðherra setti dreyrrauðan undir vandar­höggum hins unga þingmanns.

Hrókurinn var næsti áfanga­staðurinn á lífs­göngunni. Þegar félagið hafði sigrað allt sem hægt var að sigra – og orðið Íslands­meistari skák­félaga þrjú ár í röð – var kvæðinu vent í kross og kröftum félagsins beint að útbreiðslu skákarinnar, hér á landi og í Grænlandi. Hann skipulagði einstakt skákstarf meðal eldri borgara, fólks með geðraskanir, fanga, innflytjenda, og Hrafn heimsótti alla grunn­skóla á Íslandi og næstum allar byggðir Grænlands. Frá 2003 fór hann með Hróks­mönnum í vikulegar heim­sóknir á Barna­spítala Hringsins.

Síðustu 20 árin voru því að heita má helguð velferð barna. Árið 2015 hlaut hann fyrir þau störf viðurkenningu Barna­heilla – Save the Children.

En hann átti fleiri strengi því hann var líka skáld svo af bar. Hann gaf út fjórar ljóða­bækur, sem glitruðu af einhverjum ósýni­legum galdri, flos­mjúkar, einfaldar en samt djúpar einsog sjálft hafið. Stór­virkið var þó bókin „Þar sem Vegurinn endar” sem allt eins má kalla óð til Árnes­hrepps. Þar lifði hann sínar bestu stundir sem barn og þangað snéri hann aftur og aftur, síðast til að hreinsa Kolgrafarvík. „Þar sem Vegurinn endar” er þó ekki bara óður til nyrstu Stranda heldur miklu fremur rannsókn á honum sjálfum, og því sem hann kallaði lífs­gátuna. Spurningin -sem þó var hvergi beinlínis skrifuð -var í reynd þessi: Hvers vegna er ég eins og ég er?

Hrafn var alltaf að reyna að skilja orsaka­samhengið í lífi sínu, og skilja uppruna þeirra demóna sem ásóttu hann allt lífið, Bakkus, depurð, jafnvel þunglyndi, eða það sem hann kjarnaði í erfiljóði um vin sinn og kallaði hina „spreng­hlægilegu angist.”

Hann þjáðist yfir því að geta ekki fest rætur, og geta ekki tengst þeim nægilega sem hann elskaði. Hann elskaði börnin sín en þjáðist af því að hafa vanrækt þau. Hann leit á það sem bölvun sína.

Óperasjón Mikaels snérist um að lifa lengur til að bæta fyrir þær syndir.

Við, vinir hans, eigum að muna Hrafn fyrir það sem hann stóð fyrir, það sem hann gerði, fyrir alla gleðina sem hann færði, og fyrir það óeigingjarna starf sem hann vann í þágu þeirra sem standa höllum fæti.

Sólfarar­ræðu Hrafns er varla hægt að ljúka með öðru en orðum hans sjálfs: Fram til sigurs!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning