Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf

Móðir jörð heiðruð

Eygló og Eymundur í Vallanesi fengu lífrænu viðurkenninguna
Eygló og Eymundur í Valla­nesi fengu líf­rænu við­ur­kenn­ing­una Mynd: Móðir Jörð

Hjónin Eygló Björk Ólafs­dóttir og Eymundur Magnússon, eigendur fyrir­tækisins Móðir jörð í Vallanesi, hafa hlotið viðurkenningu atvinnuvega­ráðherra fyrir fram­úrskarandi árangur í lífrænni fram­leiðslu. Viðurkenningin var afhent á degi lífrænna afurða þann 19. september síðastliðinn.

Móðir jörð á Fljótsdals­héraði hefur um árabil verið braut­ryðjandi í lífrænni ræktun og matvæla­framleiðslu hér á landi. Býlið fékk formlega lífræna vottun árið 1995 en ræktun með þeim aðferðum á sér mun lengri sögu í Vallanesi.

Í dag er stunduð fjöl­breytt ræktun á korni og grænmeti á bænum, auk þess sem þar fer fram full­vinnsla matvæla úr hráefni sem að stórum hluta er ræktað á staðnum. Þá hefur verið lögð mikil áhersla á skógrækt, skjól­belti og að auka notkun á íslensku byggi til manneldis með þróun næringar­ríkra vara og rétta.

Áhrif langt út fyrir eigin starfsemi

Í rökstuðningi kemur fram að árangur þeirra Eyglóar og Eymundar verði ekki aðeins mældur í uppbyggingunni í Vallanesi. Þau hafi rutt brautina í nýtingu stað­bundinna auðlinda og miðlað dýrmætri þekkingu sem stuðlað hefur að auknum skilningi á mögu­leikum lífrænnar ræktunar á Íslandi.

Atvinnuvega­ráðuneytið óskaði eftir tilnefningum til verð­launanna, en til greina komu aðilar sem þykja hafa skarað fram úr á sviði fram­leiðslu, nýsköpunar, vöru­þróunar, markaðs­setningar, sölu eða kynningar á lífrænum vörum. Afhending viðurkenningarinnar er liður í aðgerða­áætlun stjórn­valda til að efla lífræna fram­leiðslu.

Eymundur tók við viðurkenningunni fyrir hönd þeirra hjóna úr hendi Bjarka Pjeturs­sonar, sérfræðings á skrif­stofu landgæða og velferð dýra í atvinnuvega­ráðuneytinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“