Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vítalíumálið vefur upp á sig: Forstjórinn malaði gull, fordæmdi kynferðisofbeldi og missti starfið

Eggert Þór Kristófersson
Eggert Þór Krist­ó­fers­son Mynd: n1.is

Mikil átök hafa verið að tjalda­baki eftir að Vítalía Lazareva sagði frá áreiti í pottaferð með viðskipta­jöfrum í árslok 2020. Tveir pott­verjanna, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson eru í hópi stærstu eigenda Festi sem rekur meðal annars Krónuna, N1 og Elko. Þórður Már vék úr stjórn Festi og Hreggviður hætti sem stjórnar­formaður Veritas vegna ásakananna. Málið hefur nú dregið dilk á eftir sér. 

Það vakti athygli í vikunni þegar Eggert Krist­ófersson, forstjóri hjá Festi, sendi tilkynningu til Kaup­hallar Íslands um að hann hafi ákveðið að láta af störfum. Tilkynningin kom fjár­festum í opna skjöldu og lækkaði hlutabréfa­verð fyrir­tækisins um 3,7 prósent í viðskiptum gærdagsins. Í forstjóratíð Eggerts hefur Festi og fyrirtæki samstæðunnar skilað vænum hagnaði. Ávöxtun hluthafa hefur verið með því hæsta sem sést hefur á Íslandi frá fjármála­hruni. Þykir Eggert hafa verið einstak­lega farsæll í starfi og vel liðinn innan fyrir­tækisins. Síðastliðna 12 mánuði hafa hlutabréf í Festi hækkað um tæp 11 prósent og frá skráningu fyrir­tækisins á hlutabréfa­markað hefur gengi bréfa í Festi og forvera þess hækkað um 865 prósent.

„Fordæmir allt ofbeldi og kynferðisbrot“

Tilkynningin bar þess merki að Eggert sjálfur hefði skyndi­lega ákveðið að láta af störfum. Heimildir Mannlífs herma að svo var ekki. Eggerti var sagt upp störfum og honum tjáð að stjórn fyrir­tækisins vildi „breyta til“, samkvæmt heimildum Mannlífs. Heimildir herma að það hafi meðal annars verið fyrir tilstilli hlut­hafanna Þórðar Más og Hreggviðs að forstjórinn var látinn fjúka. Þórður Már neyddist til að segja sig úr stjórn Festis og Hreggviður hætti sömuleiðis í stjórn Veritas eftir að fjöl­miðlar upplýstu um meinta ósæmilega hegðun þeirra gagnvart Vítalíu Lazareva í sumar­bústaðar­ferðinni frægu. Vítalía greindi frá því í mars að hún hefði kært tvímenningana ásamt Ara Edwald til lögreglu vegna málsins. 

Í ágúst 2021 steig Eggert fram og gagnrýndi forystu KSÍ vegna meintra kynferðis­brota sem þá voru til umfjöllunar. Festi hefur verið einn af stærstu bakhjörlum sambandsins. Í samtali við mbl.is sagði Eggert: 

„Við hjá Festi samstæðunni […] fordæmum allt ofbeldi, og kynferðis­brot er eitthvað sem við líðum alls ekki. Mikilvægt er að tekið sé á slíkum málum af fagmennsku með hagsmuni brotaþola að leiðar­ljósi.“

Heimildar­menn Mannlífs segja þá Þórð og Hreggvið vart hafa rætt við Eggert frá því meint kynferðis­brotamál þeirra kom upp í fjöl­miðlum. Þeim deilum hafi lokið í vikunni, þegar Eggert hætti störfum.  

Nýr forstjóri kynntur á næstu tveimur vikum

Í tilkynningu segir að Eggert hætti störfum þann 1. ágúst næst­komandi. Þar seg­ir að Festi standi nú á tíma­mót­um eft­ir mikla upp­bygg­ingu und­an­far­inna ára og að Eggert telji að nú sé æski­legt að leitað verði til nýs ein­stak­lings til að leiða starf­semi þess.  Samkvæmt heimildum Mannlífs hófst leit að nýjum forstjóra í vikunni. Ýmis nöfn hafa verið nefnd og heimildir herma að nýr forstjóri verði kynntur til sögunnar á næstu tveimur vikum. Telja heimildar­menn að stjórn hafi nú þegar augastað á konu í forstjóra­stólinn. Ef af þeirri ráðningu verður má ætla að það yrði hæstlaunaðasta kona í sögu Kaup­hallar Íslands ef hún nyti sömu launa­kjara og Eggert.   

Laun Eggerts á árinu 2020 voru um 73 milljónir króna og heimildir Mannlífs herma að ráðninga­samningur Eggerts tryggi honum ein árslaun hið minnsta. Líklegt má þó telja að stjórn fyrir­tækisins hafi kosið að gera enn betur við forstjórann farsæla sem malað hefur gull fyrir hluthafa sína, gegn því að hann tjái sig ekki um starfs­lokin.

Mannlíf heyrði í Eggerti og spurði hann hvort satt væri að hann hafi í raun verið látinn hætta hjá Festi. „Ég held að þetta sé algjör­lega úti á túni, því miður.“

Ekki náðist í þá Hreggvið og Þórð við gerð fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið