Rannsókn lögreglu á innflutningi mikils magns af fíkniefnum miðar vel.
Greint var frá því í fjölmiðlum síðastliðið föstudagskvöld að lögreglan hafi lagt hald á miklu magni af fíkniefnum. Fíkniefnin voru í tugatali en um var að ræða sameiginlegar aðgerðir lögreglu. Voru fjórir einstaklingar úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 17. ágúst í þágu rannsóknarinnar líkt og áður hefur komið fram.
Samkvæmt lögreglu hefur rannsókn málsins staðið yfir síðastliðna mánuði en að henni koma embætti lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.
Ekki telur lögreglan sig geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir