Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fleiri stíga fram vegna plássleysis á sjúkrahótelum á Akureyri: „Hefur neikvæð andleg áhrif“

Kona frá Austur­landi sem þarf að fæða barn sitt á Akureyri, kemst hvergi að á sjúkra­hótelum. Er þetta annað dæmi á stuttum tíma sem upp kemur um pláss­leysi sjúkra­hótela á Akureyri.

Sjá einnig: Rannveig á að eiga á Akureyri í sumar en fær ekki inn á sjúkra­hótelum: „Ég er svo reið og sár“

„Ef ekki væri fyrir náð og miskunn vinafólks foreldra minna á Akureyri þá værum við bara í hörmulegum málum þegar okkar fyrsta barn á að koma í heiminn,“ segir Guðgeir Einarsson á Egils­stöðum í samtali við Austur­frétt.

Um miðjan ágúst eiga Guðgeir og kona hans, Ragna Lind Ríkarðs­dóttir von á barni sínu en vegna þess að meðganga Rögnu flokkast sem áhættu­meðganga er aðeins í boði fyrir þau að fæða á Akureyri eða í Reykjavík en ekki á umdæmis­sjúkra­húsinu í Neskaups­stað eins og þau vonuðu.

„Okkur var gert ljóst  að þar sem um áhættu­meðgöngu er að ræða og sykursýkis­meðgöngu sömuleiðis gætum við ekki átt barnið í fjórðungnum okkar hér fyrir austan. Okkur var gert að fæða barnið fyrir sunnan eða norðan og af tvennu slæmu þá völdum við Akureyri en komumst fljótt að því að þar er enga gistingu að hafa. Hvorki á sjúkra­hótelum né heldur í íbúðum stéttar­félaga. Við könnuðum málið hjá einum sjö mismun­andi stéttar­félögum en allt var uppbókað.“

Guðgeir segir í samtali við Austur­frétt að meðgangan gangi vel og tilhlökkunin sé mikil hjá þeim að eignast sitt fyrsta barn. Vandræðin við að redda gistingu hafi þó skyggt á gleðina.

„Okkur langaði bæði að eignast barnið í þeim lands­fjórðungi þar sem við búum en í staðinn þurfum við til Akureyrar og burtséð frá húsnæðis­vandræðum þá er þetta alls ekki boðleg heilbrigðis­þjónusta. Á Akureyri verðum við ein og fjarri vinum og ættingjum sem auðvitað hefur neikvæð andleg áhrif á einhverri mestu gleði­stund sem nokkur manneskja getur átt. Mér er mikið til efs að barns­hafandi mæður fyrir sunnan myndu sætta sig við svona þjónustu.“

Er Austur­frétt spurði Guðgeir hvort starfs­fólk Heilbrigðis­stofnunar Austur­lands hafi ekki hjálpað þeim við að skipuleggja ferðina norður, svaraði hann því til að sú hjálp hafi falist í að benda þeim á sjúkra­hótel og íbúðir í eigu stéttar­félaga.

„Ég vil ekki lasta starfs­fólkið neitt enda ekki þeim að kenna að svona er staðan en þau gáta bara bent okkur á hluti sem við vissum fyrir. Mér finndist einhvern veginn eðlilegt að ef fólk má ekki eiga börn í sínu nærumhverfi og sé beinlínis sent langt í burt í sjálfsagða heilbrigðis­þjónustu þá eigi skilyrðis­laust að bíða húsnæði á þeim stað. Fólk á ekki að þurfa að fara á taugum við að redda sér húsnæði lengst í burtu í ofanálag við allt annað kringum meðgöngu.“

Mannlíf hefur sent fyrir­spurnir á heilbrigðis­ráðuneytið um skort á gistiplássi fyrir fólk sem þarf að sækja heilbrigðis­þjónustu á Akureyri og mun fjalla um svör ráðuneytisins, berist þau á annað borð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp