Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Skrýtið hve margir á Íslandi hafa þörf fyrir að tala niður fólk sem það þekkir ekki“

Ísdrottningin, Ásdís Rán Gunnars­dóttir, hefur verið á milli tannanna á Íslendingum síðan hún var kornung. Hún hefur marga fjöruna sopið síðan hún kom fyrst fram á sjónar­sviðið sem fyrirsæta á unglings­aldri. Ásdís er nú komin til Íslands, eftir að hafa meira og minna búið erlendis í fjölmörg ár, aðallega í Búlgaríu. Í kjölfar alls kyns ævintýra, verkefna og viðskipta flutti hún aftur heim í kjölfar Covid-tíma­bilsins og er sest hér að í bili. En þó að hún sé komin heim á klakann er augljóst að Ásdís er ekki ákveðin í að setjast hér alfarið að.

Hún segist aldrei meðvitað hafa gert í því að vera umdeild. Hún telur að það stafi frekar af því að hún segi skoðanir sínar umbúða­laust og hafi alltaf gert. Hún segir það einfald­lega vera hennar stíl og að það sé ekki að fara að breytast í bráð.

„Ég er bara ekki með filter og mér er alveg sama. Ég vil koma til dyranna eins og ég er klædd og ég hef alltaf verið þannig. Ef einhver þarf að tala illa um mig þá verður bara að hafa það, ég ætla ekki að fara að ritskoða mig,“ segir hún og er örlítið hugsi yfir því hvers vegna fólk hafi svo mikla þörf á að tala aðra niður.

„Mér hefur alltaf fundist skrýtið hve margir á Íslandi hafa þörf fyrir að tala niður fólk sem það þekkir ekki. Kannski er það smæðin, en á Íslandi er að mínu mati of algengt að fólk vilji gera lítið úr þér, alveg sama hvað þú ert dugleg eða stendur þig vel. Þú færð ekki viðurkenningu fyrir þín störf fyrr en þú gerir eitthvað erlendis. Þá allt í einu breytist stemmingin og ég fann það mjög vel eftir að ég fór að gera góða hluti í öðrum löndum. Ég er ekki að vorkenna sjálfri mér og veit að það er mjög margt frábært fólk hér og ég á að margt fólk sem vill mér vel. En ef þú vekur athygli á Íslandi er mjög algengt að fólk vilji troða ofan á þér og tala þig niður,“ segir Ásdís og bætir við að hún finni mun á kynjunum.

„Karlarnir eru meira „líbó“, en íslenskar konur hafa dáldið mikið verið að hafa sterkar skoðanir á mér og oft neikvæðar.“

Viðtalið má lesa í heild sinni í nýju blaði Mannlífs og sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið