Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fyrsta fórnarlamb bílavæðingar á Íslandi: „Mun það tvísýnt, hvort konan afber þetta áfall“

Bankastræti á fyrri hluta 20. aldarinnar.
Banka­stræti á fyrri hluta 20. ald­ar­innar. Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Eldri kona, Ólöf Margrét Helga­dóttir var á gangi í Banka­stræti við
gatnamót Ingólfs­strætis grunlaus um að brátt gerðist atburður sem yrði sá fyrsti í Íslands­sögunni. Árið var 1919 og liðin 15 ár frá því að fyrsta bifreiðin kom til landsins. Ólöf varð fyrir því hræðilega óhappi að verða fyrir bifreið og látast vegna þess. Var hún fyrsta manneskjan til að látast í bifreiða­slysi á Íslandi. Ökumaðurinn var nýbyrjaður að keyra og ók á röngum vegar­helmingi með þessum hrotta­legu afleiðingum.

Blessuð sé minn­ing hennar

Morgun­blaðið skrifaði eftir­farandi frétt um slysið en Ólöf var enn á lífi er fréttin fór í prentun.

Bifreiðar­slys. í gærkvöldi ók bifreið ofan á gamla konu í Banka­stræti. Kastaðist hún ofan í götuna, og fóru fremri hjól bifreiðarinnar yfir hana og meiddu stórkost­lega. Annað hjólið fór yfir brjóstið, en hitt yfir fótinn um ökla og braut hann. Mun það tvísýnt, hvort konan afber þetta áfall. Bifreiðar­stjórinn var nýr maður í þeirri atvinnu­grein, og er fullyrt af þeim mönnum, sem á horfðu, að hann hafi ekið hægra megin á götunni — eða þeim megin, sem bannað er að aka. Bifreiðin kom að neðan, en slysið vildi til rétt hjá horninu á Banka­stræti og Ingólfs­stræti. Konan, sem fyrir slysinu varð, heitir Ólöf Helga­dóttir og á heima í Þing­holtsstræti 28. Læknis var þegar vitjað í gærkvöldi, en hann gat eigi gert annað en bundið um fótbrotið og gefið henni innsprautu. Í morgun var hún svo flutt á sjúkra­húsið.

Í Lögréttu nokkrum dögum síðar var birtust stuttar tilkynnignar á borð við trúlofun, brúðkaup og svo andlát. Um andlát Ólafar stóð:

Dáin er 30. f. m. hjer í bænum frú Ólöf Helga­dóttir, gömul kona í Þingholtsstr. 28, og varð hún fyrir því slysi daginn áður, að bíll ók ofan á hana við húshorn og meiddi hana svo, að hún beið bana af.

Ólöf var 66 ára er hún lést og var frá Skógar­gerði í Norður Múlasýslu fyrir austan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning