Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Segir ríkið og Seðlabankann stunda opinbera glæpastarfsemi: „Þetta eru lánin sem ekki má afnema“

Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir mennta- og barna­mála­ráð­herra

Fyrr­verandi formaður Hagsmuna­samtaka heimil­anna, Ásthildur Lóa Þórs­dóttir, núverandi þingmaður Flokks fólksins, segir í grein sinni sem leit dagsins ljós í Morgun­blaðinu, að „Þetta er ekkert annað en opinber glæpa­starfsemi.“

Í greininni ber Ásthildur saman annars vegar 25 ára 40 milljóna króna verð­tryggt og samkonar lán, óverðtryggt.

Hún bendir á að aðgerðir Seðla­banka og ríkis­stjórnar nú að ýta alltof mörgum út í verð­tryggð; lán sem mega vera til 25 ára:

„Greiðslu­byrði óverðtryggðs láns á 7% vöxtum til 25 ára er 283.000 á mánuði og sú upphæð á að haldast óbreytt út láns­tímann, þó vaxta­breytingar geti vissulega haft áhrif, bæði til hækkunar og lækkunar. Verð­tryggða lánið er hins vegar á 2,3% vöxtum og fyrsta greiðslan af því er 177.000 krónur og það er þessi munur sem freistar margra, en eftir aðeins fimm ár er afborgun verð­tryggða lánsins búin að ná afborgunum af því óverðtryggða og þá byrjar ballið fyrir alvöru.“

Ásthildur bendir á að eftir áratug ár sé afborgun verð­tryggða lánsins komin í 450.000 krónur og eftir­stöðvar þess hafa hækkað um 28,6 milljónir; á sama tíma og eftir­stöðvar óverðtryggða lánsins hafa lækkað um níu milljónir.

Bætir við:

„Eftir 15 ár er afborgun verð­tryggða lánsins komin upp í 723.000 krónur. Til að standast greiðslumat fyrir svo háum afborgunum þarf fólk að hafa tvær milljónir á mánuði í laun. Þessi lán eiga að vera fyrir þau sem ekki standast greiðslumat fyrir óverðtryggðu láni og það er ólíklegt að lægstu laun eða örorku­bætur verði 2 milljónir að 15 árum liðnum þegar afborgun óverðtryggða lánsins er enn þá 283.000.

Á þessum 15 árum er höfuð­stóll verð­tryggða lánsins kominn upp í 77,4 milljónir á meðan höfuð­stóll óverðtryggða lánsins hefur lækkað um milljón á ári í 25 milljónir. Munurinn er þrefaldur.“

Bendir á að eftir 20 ár hafi óverðtryggða lánið lækkað enn; komið í 14,3 milljónir þegar verð­tryggða lánið stendur í 65,6 milljónum króna:

„Þegar þarna er komið eru einungis fimm ár eftir af láns­tímanum þannig að lántakandinn þarf að greiða niður 65 milljón króna höfuðstól á aðeins fimm árum, enda hækka afborganir upp frá því sífellt þannig að síðustu þrjú ár láns­tímans fara mánaðarlegar afborganir frá 1,5 milljónum upp í í 1,9 milljónir í síðustu afborgun.

Síðasta afborgun óverðtryggða lánsins er aftur á móti 283.000 eins og allar hinar 299.“

Ásthildur segir að þegar allt kemur til alls að óverðtryggði lántakandinn hafi borgað um 85 milljónir króna; sá með verð­tryggða lánið borgar hins vegar 215 milljónir króna:

„Þetta eru lánin sem þeim, sem „ekki standast greiðslumat“ fyrir óverðtryggðum lánum, er boðið upp á. Þetta eru lánin sem ekki má afnema þrátt fyrir harða baráttu Flokks fólksins, Hagsmuna­samtaka heimil­anna og fremstu verkalýðs­foringja landsins. Þetta eru lánin sem allar ríkis­stjórnir undan­farinn áratug hafa varið með kjafti og klóm. Þetta er ekkert annað en opinber glæpa­starfsemi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning