Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Mamma, mig dreymdi svo hroðalegan draum“

Mynd. Skjáskot/RÚV
Mynd. Skjáskot/RÚV

Árla morguns mánudaginn 16. janúar 1995 féll snjóflóð á þorpið í Súðavík á meðan flestir voru í fasta­svefni. Í blindbyl og svartamyrkri hófu heimamenn leit að sínum nánustu, ættingjum og vinum við hrikalegar aðstæður.

Í bók Egils St. Fjeldsted Þrekvirki er rætt við 40 manns sem annað hvort voru á heimilum sínum þegar flóðin skullu á þeim eða tóku þátt í björgunar­störfum með einhverjum hætti. Í þessum spegli verður sögð saga þeirra sem bjuggu við Túngötu 4 í Súðavík á þeim tíma sem flóðið féll.

Túngata 4

Mynd / Skjáskot/RÚV

„Að Túngötu 4 bjó ungt par, Sigríður Rannveig Jóns­dóttir og Þorsteinn Örn Gestsson ásamt
tveimur dætrum; Lindu Rut (1989) og Hrafnhildi Kristínu (1993–1995), sem var 15
mánaða gömul. Parið keypti Túngötu 4 í desember 1994 og flutti inn um miðjan
mánuðinn. Nutu þau jóla og áramóta á nýja heimilinu þar sem systurnar fengu hvor
sitt herbergið. Áður bjuggu þau í fjölbýlis­húsi á Aðalgötu 2 sem ekki varð fyrir
skemmdum í snjó­flóðinu.

Sigríður Rannveig hafði búið í Súðavík frá sex mánaða aldri. Þorsteinn Örn
flutti til Súðavíkur 1982 en móðir hans, Hrafnhildur Kristín Þorsteins­dóttir
(1945–1995), lést í flóðinu ásamt fóstur­föður hans, Sveini Gunnari Salómons­syni.

Fjöl­skyldan var heima að horfa á sjónvarpið laugardagskvöldið 14. janúar. Á
meðan naut Sigríður Rannveig þess að hafa Hrafnhildi litlu í fanginu og fá kossa frá
henni allt kvöldið. Síðar hugsaði Sigríður Rannveig til þess að þær áttu aðeins eftir
að vera saman í einn og hálfan sólar­hring eftir þetta kvöld og því engu líkara en
dóttirin væri að kveðja hana. Þegar sunnu­dagurinn rann upp fannst Sigríði
Rannveigu hún þurfa að gera eitthvað skemmtilegt með fjöl­skyldunni. Klæddust allir
sínum hlýjustu fötum, fóru út og gerðu snjóhús í stóran skafl við hliðina á húsinu. Eftir
dágóðan tíma voru allir orðnir eins og snjó­karlar og foreldrunum minnis­stætt að löng
augnhár Hrafnhildar Kristínar voru þakin snjó og kinnarnar rauðar eins og epli.

Um kvöldið var hringt í foreldra barna í leik­skólanum og þeim tilkynnt að
skólahald félli niður næsta dag vegna veðurs. Af þeim sökum lá ekkert á að koma
stelpunum í háttinn og bökuðu mæðgurnar vöfflur rétt fyrir miðnætti og fóru síðan
allar saman í bað. Systurnar hjúfruðu sig upp að móður sinni í hjóna­rúminu á meðan
hún söng fyrir þær. Þetta var í síðasta skipið sem Sigríður Rannveig hafði þær báðar
í örmum sínum. Stuttu síðar færði Þorsteinn Örn þær sofandi yfir í herbergin sín án
þess að þær rumskuðu.

Allt frá því að veðrið tók að versna um kvöldið var Sigríður Rannveig óróleg og
spurði Þorstein Örn endur­tekið hvort hætta væri á snjóflóði. Svaraði hann því til að
engin hætta væri á ferð, annars væri almanna­varna­nefndin á staðnum búin að láta
þau vita. Lét hún þar við sitja en fór margoft að svefn­herbergis­glugganum og horfði
upp í hlíðina þrátt fyrir ekkert skyggni.

Loftþrýstingur sprengdi þakið af húsinu

Mynd. Skjáskot/RÚV

Sigríður Rannveig sofnaði loks um klukkan 05:00 en vaknaði aftur tæpri einni
og hálfri klukku­stund síðar í verstu martröð sem hægt er að hugsa sér. Loft­þrýstingur
sprengdi þakið af húsinu og um leið þeyttist hún upp í loft og heyrði sprengingu og
hávaða sem var ólíkur öllu sem hún hafði áður heyrt. Á meðan horfði hún á
svefn­herbergið og rúðurnar splundrast. Örskots­stund síðar æddi flóðið á húsið og
um leið sá hún stóra snjóköggla koma æðandi á móti sér.

Innra með sér öskraði hún: „Ég vissi að það kæmi snjóflóð“. Nánast á sama augna­bliki tók hrammur flóðsins hana með sér. Á þeirri stundu fannst henni að hún væri að kafna og taldi víst að hún myndi deyja en náði strax að ýta þeirri hugsun frá sér og hugsa í staðinn: „Ég verð að lifa!“ Byrjaði hún þá að reyna að klóra sig upp á yfirborð flóðsins en kraftarnir sem
toguðu í hana úr öllum áttum voru slíkir að hún gafst nánast upp.

Á meðan hún barst með flóðinu fannst henni sem hún sæi ljós, sem trúlega kom frá höfninni. Síðan varð allt svart þar til hún rankaði við sér nærri póst­húsinu. Hún horfði þá upp í loftið og sá bara snjókomu en um leið fann hún að fæturnir voru fastir undir þungu fargi. Sigríður Rannveig náði að losa sig með erfiðis­munum og tók þá eftir því að hún var eingöngu klædd í rifinn náttgalla. Þegar henni tókst að standa upp sá hún bara snjó og brak allt í kringum sig. Snerist hún þá í hringi um sjálfa sig og hugsaði: „Hvar á ég að leita?
Hvar eru stelpurnar mínar?“

Berfætt og ísköld

Í námunda við sig heyrði hún í Þorsteini Erni, manni sínum, og án þess að
hugsa sérstak­lega út í það tók hún því sem gefnu að hann væri einnig að leita að
börnunum. Þegar hún hafði gengið berfætt og ísköld um næsta nágrenni í dágóðan
tíma kom hún auga á konu í hvítum náttkjól sem kom gangandi í áttina að henni, reyndist það vera Wieslawa Vera Lupinska úr Túngötu 7.

Í fyrstu taldi hún víst að nágranni sinn væri kominn til að hjálpa sér að leita en þegar hún sá skelfingar­svipinn í andliti hennar gerði hún sér grein fyrir að húsið hennar og Bellu Vestfjörð hafði einnig orðið fyrir snjó­flóðinu.

Ákváðu þær að reyna í sameiningu að finna hjálp og gengu að símaklefa sem
stóð fyrir neðan innra hornið á póst­húsinu. Þegar þangað kom var kuldinn farinn að
segja verulega til sín þannig að Sigríður Rannveig átti í erfið­leikum með að standa
upprétt.

Harkaði hún af sér og burstaði snjó af símtækinu sem hún vissi að var búið
að vera fullt af smápeningum í langan tíma og því hægt að hringja frítt innan sama
svæðis­númers. Byrjaði hún á að hringja ítrekað í 4422, sem hún taldi vera
síma­númerið hjá lögreglunni á Ísafirði, án þess að fá svar. Daginn eftir fékk hún að
vita að rétt númer var 4222.

Á milli þess að hringja í rangt númer reyndi hún að ná sambandi við tengda­foreldra sína og aðra sem hún taldi að gætu hjálpað sér. Seinna fékk hún að vita að tengingin við síma­klefann var farin í sundur.

Þegar enginn svaraði ákvað Wieslawa Vera að fara og leita að hjálp en Sigríður Rannveig var þá orðin svo máttfarin að hún treysti sér ekki til fylgja henni og skildu þá leiðir. Þegar hún var orðin ein hugsaði hún hvort hún ætti að reyna komast til foreldra sinna sem bjuggu í um það bil 150 metra fjarlægð, í Túngötu 11. Hún var meðvituð um að þangað kæmist hún ekki nema skríðandi á fjórum fótum.

Fann til vanmáttar

Mynd. Skjáskot/RÚV

Á meðan hún hugsaði þetta hneig hún niður. Fætur hennar voru þá orðnir svo dofnir úr kulda að hún fann ekki lengur fyrir þeim. Auk þess var andlitið og allur líkaminn marinn, skorinn og alblóðugur. Í raun hlýddi líkaminn ekki lengur vilja hennar. Á meðan hún sat og hugsaði næstu skref tók hún eftir bíl nálægt síma­klefanum og reyndist hann vera ólæstur. Settist hún í bílstjóra­sætið og leitaði að lyklunum til að koma honum í gang og fá hita, en fann þá hvergi.

Fannst henni eins og hún væri að missa stjórn á hugsunum sínum og fann til vanmáttar að geta ekki leitað að börnunum. Á meðan hún barðist við hugann leit hún í kringum sig og tók eftir sjúkra­kassa sem í voru álteppi og sára­umbúðir. Klæddi hún sig úr blautum og
rifnum nátt­fötunum og vafði teppinu utan um sig og setti umbúðir yfir stærstu skurðina.

Eftir það færðist yfir hana doða­kenndur svefn og vissi hún lítið af sér þegar hún lagði höfuðið á bílflautuna. Lá hún þannig í ótilgreindan tíma þar til Guðjón Marteinn frá Tröð bankaði á hliðar­rúðuna og um leið og Sigríður Rannveig skrúfaði niður rúðuna sagði hann: „Guð, þú ert að deyja“. Hún svaraði: ,,Nei, ég er ekki að deyja!“ Treysti hann sér ekki til að fara einn með hana yfir götuna í skjól í Shellsjoppuna. Hljóp hann fyrst þangað og náði í annan mann til að aðstoða sig.

Sporin til hennar voru þung

Þrátt fyrir að vega­lengdin yfir götuna væri aðeins 25–30 metrar fannst henni það taka
eilífð að komast þann spöl. Þorsteinn Örn var þá kominn í sjoppuna ásamt fleira fólki
sem tók á móti henni, dúðaði í öll tiltæk föt og nuddaði hita í hana inni á skrif­stofunni.

Einn þeirra sem kom í Shellsjoppuna skömmu eftir að Sigríður Rannveig var borin þangað var faðir hennar, Jón Ragnarsson (1944–2016) sem bjó ásamt fjöl­skyldu sinni í Túngötu 11 sem stóð nálægt jaðri flóðsins. Þegar hann frétti af flóðinu fór hann á snjósleða niður í hrað­frystihús þar sem hann frétti að flóðið hefði tekið hús dóttur hans.

Fór hann beina leið þangað, þar sem aðeins stóðu eftir tveir húsgaflar, féll ráðalaus niður á hnén og grét. Þaðan fór hann aftur að heimili sínu og fór með fjöl­skylduna niður í hrað­frystihús. Fljótlega eftir það barst honum til eyrna að dóttir hans væri í sjoppunni. Eins og gefur að skilja voru honum sporin til hennar þung, vitandi um angist hennar á meðan hún beið frétta af báðum börnunum og tengda­foreldrum sínum.

Ólíkt Sigríði Rannveigu man Þorsteinn Örn ekki eftir þegar snjó­flóðið féll á heimili þeirra. Fyrsta minning hans var að standa í hríðarbyl og myrkri við hliðina á ótilgreindum vegg, sem hann hélt að væri heimili sitt. Gekk hann líkt og í svefni nokkra hringi í kringum vegginn í leit að inngangi. Þegar hann áttaði sig betur á aðstæðum leit hann niður eftir líkama sínum og sá að hann var nakinn, blóðugur og með klaka­hröngl á líkamanum. Um leið fann hann hvernig kuldinn nísti inn að beini.

Svo tók hann eftir ljósi og gekk í áttina að því en þegar hann nálgaðist heyrði hann konu hrópa. Þegar hann kom nær sá hann Berglindi Maríu Kristjáns­dóttur, nágranna sinn frá Túngötu 5, sitja ofan í holu og kalla á börnin sín þrjú sem voru týnd. Hann leit betur í kringum sig og sá að þau voru nálægt póst­húsinu, aðeins nokkra metra frá síma­klefanum og bílnum þar sem Sigríður Rannveig var að krókna úr kulda.

Leitarhundarnir

Um hádegisbil voru leitar­hundarnir búnir að marka fjölmarga staði þar sem búið var
að setja upp starfs­stöðvar og mest var leitað. Á þeim þurftu björgunar­menn að moka
gífurlegu magni af snjó sem var seinlegt, sérstak­lega í ljósi þessi að snjóflóðaýlar
takmörkuðu fjöldann inni á svæðinu.

Af þeim sökum fór Arnar Þór Stef­ánsson án aðstoðar­manns að Túngötu 4 með
leitar­hundinn Hnotu, þar sem systranna Lindu Rutar Sigríðar­dóttur 5 ára og
Hrafnhildar Kristínar Þorsteins­dóttur 16 mánaða var saknað.

Aðkoman var í einu orði sagt hrikaleg, aðeins stóðu uppi enda­gaflarnir og lítill hliðar­veggur ofan til sem hallaði inn í húsið, og steypu­styrktar­járn héldu föstum við grunninn í einu horni. Rúm Lindu Rutar hafði staðið í horninu undir stórum glugga. Um leið og hundurinn kom að húsinu fór hann beint að þessum stað og ákvað Arnar Þór að moka aðeins undan
veggnum. Honum til mikillar undrunar var Linda Rut þar ótrúlega vel á sig komin eftir
að hafa verið grafin í um það bil fimm klukku­stundir.

„Ég er sprelllifandi“

Í viðtali við dagblað tíu árum eftir að snjó­flóðið féll sagðist Linda Rut muna eftir að
hafa vaknað og litið upp og séð ljós. Síðan hafi hún heyrt kallað: „Linda, ertu þarna?“ Svaraði hún þá: „Ég er sprell­lifandi“. Eftir það var hún sett á sjúkra­börur og komið
undir læknis­hendur í hrað­frysti­húsinu.

Foreldrar Lindu Rutar, Sigríður Rannveig Jóns­dóttir og Þorsteinn Örn Gestsson
sem björguðust með ótrúlegum hætti fyrr um morguninn biðu frétta af dætrum sínum.

Þau höfðu verið flutt úr Shellsjoppunni skömmu eftir að stjórnstöð var sett upp í
hrað­frysti­húsinu. Af ókunnum ástæðum var Þorsteinn Örn fluttur í hrað­frystihúsið en
Sigríður Rannveig á sjúkra­börum um borð í Fagranes. Þar var henni komið fyrir einni
í klefa og hún látin nær afskipta­laus, fyrir utan að gert var að fjölmörgum skurðum
víðs vegar um líkamann.

Í hádeginu kom bróðir hennar um borð og sagði að mæðgurnar Bella Aðal­heiður og Petrea Vestfjörð hefðu fundist látnar. Sagði hann henni einnig þá gleði­frétt að Linda Rut hefði fundist alheil í snjó­flóðinu. Bætti hann svo við að verið væri að undirbúa að flytja hana úr Fagranesinu yfir í hrað­frystihúsið þar sem hún gæti hitt dóttur sína. Grét Sigríður Rannveig þá líkt og hún hafði aldrei áður gert um ævina. Skugga bar þó á tíðindin þar sem enn átti eftir að finna Hrafnhildi Kristínu litlu og afa hennar og ömmu.

„Mamma, mig dreymdi svo hroðalegan draum“

Það fyrsta sem Sigríður Rannveig sá þegar hún kom í sjúkra­rýmið var Linda Rut liggjandi á borði. Þegar hún kom nær sá hún að dóttir hennar var snjóhvít og helköld viðkomu. Stuttu seinna sagði Linda Rut við móður sína: „Mamma, mig dreymdi svo hroða­legan draum. Það kom snjór inn um gluggann hjá mér og ég lá bara í rúminu. En svo komu mennirnir og náðu í mig.“

Fljótlega eftir hádegi fannst Hrafnhildur Kristín Þorsteins­dóttur látin nálægt þeim stað
sem Linda Rut systir hennar hafði fundist á lífi um morguninn. Hún hafði orðið 1 árs september árið á undan og var alnafna ömmu sinnar.“

Hægt er fræðast nánar um atburðina í bók hans Þrekvirki. Bókin prýðir fjölda mynda og er hægt að nálgast hana í helstu bókabúðum og hjá höfundi – sjá fésbókar­tengil.

Heimildir:

Egill St. Fjeldsted. 2021. Þrekvirki. Egill St. Fjeldsted. Reykjavík.

Ópr. Skýrsla Kristjáns Bjarna Guðmunds­sonar.

Ópr. Skýrsla Kristjáns Bjarna Guðmunds­sonar.

Viðtal. Höfundur við Berglindi Maríu Kristjáns­dóttur, 22. september 2021. „Biðin var að buga okkur“. DV 21. janúar 1995, bls. 28–29.

Viðtal. Höfundur við Sigríði Rannveigu Jóns­dóttur, 30. ágúst 2021. ,,Það eru lífin sem skipta öllu“. Morgun­blaðið 19. janúar 1995, bls. 4.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið