Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Reykvíkingur tekinn með barnaníðsefni

Maðurinn játaði skýlaust sök

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Reyk­víkingur hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir vörslu á barnaníðs­efni, samkvæmt dómi sem kveðinn var upp í Héraðs­dómi Reykja­víkur.

Samkvæmt ákæru hafði Reyk­víkingurinn í vörslum sínum sjö ljós­myndir og þrjú myndbönd sem sýndu börn á kynferðis­legan og klám­fenginn hátt. Myndefnið fannst við húsleit á heimili hans í Reykjavík 6. maí 2024 og var geymt á tölvu­búnaði og snjall­tækjum sem lögregla lagði hald á.

Maðurinn játaði skýlaust sök samkvæmt ákæru og féllst jafnframt á að tiltekin tæki yrðu gerð upptæk. Með vísan til játningar hans og rann­sóknargagna taldi dómurinn sannað að hann hefði gerst sekur um brotið.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefur ekki áður sætt refsingu og að hann játaði brotið bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Á móti vó alvarleiki brotsins, enda var þaððar um að ræða vörslu myndefnis sem sýnir börn á kynferðis­legan hátt.

Refsing hans var ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað skilorðs­bundið til tveggja ára. Haldi hann almennt skilorð á því tímabili fellur refsingin niður.

Jafnframt voru HP-tölvuturn, Samsung-farsími og Samsung-spjald­tölva gerð upptæk. Þá var honum gert að greiða 353.400 krónur í málsvarnar­þóknun skipaðs verjanda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra