Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íslensk kona myrt: „Lögreglan vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafnhildar“

Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir. Mynd/skijáskot. RÚV
Hrafn­hildur Lilja Georgs­dóttir. Mynd/ski­já­skot. RÚV

Engin niður­staða hefur fengist í rannsókn á morði íslenskrar stúlku sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu árið 2008, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða­deild Ríkis­lögreglu­stjóra. Hrafnhildur var myrt á hótel­herbergi þar sem hún starfaði sem framkvæmda­stjóri. Hún var stungin með hníf og lamin í höfuðið með barefli.

Faðir Hrafnhildar sagði árið 2009 að formlegri rannsókn á morðinu væri hætt án þess að morðinginn hafi fundist. Þrír hafi þó enn réttar­stöðu grunaðra samkvæmt lögreglu­skýrslu sem hann fékk í hendurnar á þeim tíma.

Upplýsingar frá utan­ríkis­ráðuneytinu eru þær, að þrátt fyrir að formlegri rannsókn væri lokið, verður málinu haldið opnu ef að frekari vísbendingar skyldu berast. Ræðis­maður Íslands í Dóminíska lýðveldinu, sem hafði verið í vikulegu sambandi við lögregluna þar í landi á þeim tíma, sagðist myndi fylgjast áfram með gangi mála.

Lést af völdum höfuðhöggs

Hrafnhildur starfaði sem hótel­stýra á íbúðar­hótelinu Extreme Cabarete og bjó jafnframt þar. Þegar ekkert hafði spurst til hennar fór vinkona hennar inn á herbergi til hennar og var Hrafnhildur þá látin.Hrafnhildur fannst látin í herbergi sínu og leiddi krufningin í ljós að hún hefði látist af völdum höfuð­höggs. Hrafnhildur var 29 ára, barnlaus og ógift.

Rafael Calderon, yfirmaður lögreglunnar í Puerto Plata, staðfesti það að Hrafnhildur hefði látist eftir þungt höfuðhögg. Hann segir að líklega hafi hún verið slegin í höfuðið með einhvers konar kylfu. Grunn stungusár eftir hníf voru einnig á líkama hennar.

Reynt að þagga niður málið

Junior Enrique, rannsóknar­blaðamaður dagblaðsins El Nuevo Norte í Cabarete segir lögregluna hafa reynt að þagga málið niður eftir að það kom upp með því að segja fjöl­miðlum fyrst að um sjálfs­morð hafi verið að ræða.

Honum hafi hins vegar borist myndir af líki Hrafnhildar sem bentu ótvírætt til þess að hún hafi verið myrt. Myndirnar voru birtar á fréttavef dagblaðsins en eftir það viðurkenndi lögreglan fyrst að um morð hafi verið að ræða. Enrique segir mynd­birtingunni að þakka að lögreglan hafi rannsakað málið betur.

Þegar haft var samband við lögreglu til að kanna ásakanir blaða­mannsins, afsakaði hún svörin sem upphaf­lega gefin voru fjöl­miðlum og sagði málið nú rannsakað sem morð.

Fyrstu stig rannsóknar

Fjórir voru hand­teknir í tengslum við málið á sínum tíma, þrir karlmenn og ein konu. Var eitt þeirra grunað um morðið, en hin þrjú talin vita málavöxt. Tvö þeirra voru starfs­menn hótelsins sem Hrafnhildur vann hjá á Cabarete-ströndinni, en tveir voru kunningjar hennar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Dóminíska lýðveldinu tóku 9 lögreglu­menn þátt í rann­sókninni auk ríkis­lögreglu­stjóra.

Hrafnhildur var myrt í strand­bænum Cabarete í Dóminíska lýðveldinu á sunndagskvöldi en fannst ekki fyrr en eftir hádegi daginn eftir.

Lögreglan grunar að Hrafnhildur hafi átti í ástar­sambandi við hinn meinta morðingja, Franklin Genao Alias og að morðið hefði verið „ástríðu­glæpur.“

Sá grunaði

Í fyrstu var haldið að félagar í alþjóð­legu glæpa­samtökunum Hells Angels hefðu átt þátt í morðinu, en þeir höfðu verið að koma sér fyrir í smábænum Cabarete í Dóminíska lýðveldinu, en svo virtist ekki vera.

Maðurinn sem grunaður var um morðið á Hrafnhildi heitir Frederick Franklin Genao. Hann var yfir­heyrðu af lögreglunni í Puerto Plata, en svo ekkert meira.

Auk hans voru í haldi lögreglu þau Kelvin Corniel Fermín sem talinn var fyrrum kærasti Hrafnhildar og starfs­stúlka á hótelinu, Paola Jimenez Rodriguez.

Samkvæmt frétta­vefnum El Nuevo Norte var rannsakað hvort þau síðarnefndu hefðu verið í vitorði með meintum morðingja Hrafnhildar.

Á ferðalagi um heiminn

Hrafnhildur hélt í ferðalag um heiminn í apríl 2008. Á bloggsíðu sem hún hélt úti sagðist hún vera að ferðast án tiltekinnar stefnu eða enda­dagsetningar. Hrafnhildur hóf ferðalag sitt í Ástralíu. Á leið sinni til Dóminíska lýðveldisins kom hún víða við, meðal annars í Dubai, Oman og New York. Til Dóminíska lýðveldisins kom hún svo um miðjan júlí og hóf störf á hótelinu um svipað leyti. Þar ætlaði hún dveljast út janúar en fram­haldið var óákveðið.

Íslensk stjórnvöld brugðust fjölskyldunni

Í gær á Vísi, sagði móðir stúlkunnar, að íslensk stjórn­völd hefðu brugðist fjöl­skyldunni með því að beita sér aldrei fyrir rannsókn málsins. Hún vill að málið verði opnað á ný og rannsókn tekin upp, en morðinginn gengur enn laus.

Karl Steinar Valsson, yfir­lögreglu­þjónn alþjóða­sviðs ríkis­lögreglu­stjóra horfði á viðtalið í gær og segir að í kjölfar þess hafi lögreglan ákveðið að óska eftir upplýsingum um málið.

„Lögreglan á Íslandi vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafnhildar Lilju Georgs­dóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Lögreglan mun senda fyrir­spurnir út og óska eftir upplýsingum um málið. Þetta segir yfir­lögreglu­þjónn alþjóða­sviðs ríkis­lögreglu­stjóra sem telur lögregluna ekki hafa þær upplýsingar sem hún óskaði eftir í málinu á sínum tíma.“

Árið 2013, fimm árum eftir morðið, gagnrýndu foreldrar Hrafnhildar rann­sóknina og segjast aldrei hafa haft trú á henni eða því að morðinginn myndi nást. Þau sögðu þá að sú staðreynd að málið sé óleyst hafi gert þeim nánast ókleyft að syrgja dóttur sína. Þau þurfi að sjá að allt sé reynt til að upplýsa hver myrti Hrafnhildi og þannig geti þau syrgt hana á eðlilegan hátt.

Heimildir:

Elísabet Inga Sigurðar­dóttir. 16. ágúst 2022. Lögreglan mun skoða gögn í máli Hrafnhildar Lilju og óska eftir upplýsingum frá Dóminíska lýðveldinu. Vísir.

Innlent. 24. september 2008. Hrafnhildur lést af völdum höfuð­höggs – Fjórir í haldi. Vísir.

Kastljós. 01. janúar 2013. Þrá að finna morðingja dóttur sinnar. RÚV.

Styrktar­sjóður Hrafnhildar. 25. september 2008. Einn grunaður um morðið, fjórir yfir­heyrðir. MBL

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið