Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að Guð blessaði og blessar Ísland“

Flestir Íslendingar yfir tvítugu muna hvar þeir voru staddir þegar Geir H. Haarde, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, bað Guð að blessa Ísland. Augna­blikið er greypt í minni þjóðarinnar og felur í sér hrun þessarar litlu þjóðar sem á þeim tíma taldi sig eiga allt, geta allt og vita allt.

Fyrir fjórtán árum, þann 6. októ­ber 2008, á­varpaði Geir H. Haarde, þá for­sætis­ráð­herra, þjóðina og lét þessi fleygu orð falla í lok ræðu sinnar: „Guð blessi Ís­land.“ Orðin urðu fleyg sem tákn fyrir kreppuna á Íslandi og hafa síðan þá verið einskonar einkennisorð fyrir hrunið. Að sögn Geirs áttu orðin bara að vera „vinaleg kveðja“ til þjóðarinnar en ekki trúarleg bón.

Guð leiðir okkur

Agnes Sigurðar­dóttir, biskup Íslands, er hins vegar í engum vafa um hver það var sem leiddi íslensku þjóðinar upp úr efnahags­hruninu mikla:

„Það var huggun og styrkur í orðum forsætis­ráðherra þegar hann bað Guð að blessa Ísland. Í fordæma­lausu fjármálaöng­stræti þjóðarinnar og stórs hluta heimsins reiddi forsætis­ráðherra sig á trúna og Guð. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Guð blessaði og blessar Ísland,“ sagði Agnes í fyrra í samtali við Frétta­blaðið.

Klukkan 16 mánudaginn 6. október 2008 ávarpaði Geir íslensku þjóðina í sjónvarpi. Þar lýsti hann þeim efnahags­erfiðleikum sem Ísland stóð frammi fyrir. Síðar um daginn lagði hann fram frumvarp að neyðar­lögum á Alþingi.

Efnahagsleg óveðursský höfðu um nokkur skeið safnast saman yfir landinu þangað til allt hrundi og forsætis­ráðherra hélt hina sögulegu ræðu í sjón­varpinu. „Á þann hátt, með íslenska bjartsýni, æðruleysi og samstöðu að vopni, munum við standa storminn af okkur,“ sagði Geir undir lok ræðunnar áður en hann bað Guð að blessa Ísland. 

Bankarnir hrundu eins og spilaborg

„Góðir Íslendingar ég hef óskað eftir að fá að ávarpa ykkur á þessari stundu.“ Á þessum orðum hófst ávarp Geirs, þáverandi forsætis­ráðherra, 6. október 2008.

Í ljósi mikils lausafjár­vanda íslensku bankanna fékk ríkið heimild til að taka yfir fjármála­stofnanir í vanda. Næstu daga hrundu stóru viðskipta­bankarnir hver af öðrum. Fjármála­eftirlitið tók yfir stjórn Lands­bankans og Glitnis 7. október og Kaupþings aðfara­nótt 9. október.

Gengi krónunnar hríðféll í efnahags­þrengingunum sem fylgdu, gjaldeyris­höft voru sett á, atvinnu­leysi snarjókst og ríkis­stjórnin hraktist frá völdum. Tímabil góðærisins leið skyndi­lega undir lok og fara þurfti í vinnu endur­sköpunar, uppbyggingar og niðurrifs.

Kaupahéðnar og útrásar­víkingar, sem fyrir hrunið vöktu aðdáun og öfund, urðu þjóð­níðingar í augum margra þegar sjónar­spilið féll um koll í svipti­byljum alþjóðlegrar fjármála­kreppu.

Forsetanum brugðið

Geir segir að það hafi ekki legið fyrir endanlega fyrr en kvöldið áður að hann þyrfti að flytja ávarpið. Lokaorð Geirs, „Guð blessi Ísland,“ hafa lifað með þjóðinni. Orðin voru fyrst og fremst falleg loka­kveðja, sagði Geir. Fjórtán ár eru nú liðin frá örlaga­þrungnu ávarpi hans til íslensku þjóðarinnar, þegar íslenska banka­kerfið riðaði til falls. „Kjarni málsins var auðvitað hinn efnislegi boðskapur sem ég var að flytja. Þetta var nú auðvitað fyrst og fremst falleg loka­kveðja,“ sagði Geir í samtali við RÚV.Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, rifjaði síðar upp að hann var staddur á kennara­stofunni í Háskólanum í Reykjavík, þegar hann heyrði ávarp Geirs í sjón­varpinu. Það hafi verið þá sem Guðni áttaði sig á alvörunni.

„Þá fyrst áttaði maður sig kannski á alvöru málsins. Þessi dagur er auðvitað einn magn­þrungnasti dagur sögu okkar Íslendinga í seinni tíð. Banka­kerfið rambaði á barmi hruns og hrundi svo með braki og brestum. Hrunið hafði áhrif á fjölda fólks. Margt fólk sem hafði ekkert til saka unnið þurfti að þola miklar búsifjar. Og hrunið hafið áhrif á íslenskt samfélag og íslensk stjórnmál, segir Guðni fullviss um að ýmsan lærdóm mátti draga af hruninu:

Þrátt fyrir allt sem miður fór tókst að gera margt vel hér á þeim árum sem í hönd fóru þótt ýmislegt hefði mátt gera enn betur. Við þurfum að ná þessu gullna jafnvægi: Að hafa heilbrigt sjálfs­traust en fyllast ekki drambi. Það er kannski einn helsti lærdómur hrunsins.“

Hér má horfa á „Guð blessi Ísland“ ávarp Geirs í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning