Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Rökrétt að Guðrún Hafsteinsdóttir leysi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur af hólmi“

Ólafur Arnarson segir í pistli á Hringbraut að „vart verður við marg­víslegan skjálfta í Sjálfstæðis­flokknum vegna skipunar í ráðherra­embætti. Við myndun núverandi ríkis­stjórnar fyrir tæpu ári kom verulega á óvart að gengið væri fram hjá fyrsta þingmanni Suður­kjördæmis við úthlutun ráðherra­stóla. Guðrúnu Hafsteins­dóttur hafði verið lofað ráðherra­tign þegar hún var fengin til að bjóða sig fram í efsta sæti á lista flokksins og losa flokkinn þannig við Pál Magnússon sem hafði verið í uppreisn gegn flokks­forystunni vegna þess að gengið var fram hjá honum við ráðherra­skipan í upphafi síðasta kjör­tímabils.“

Ólafur Arnarson.

Hann bætir við að „Guðrún Hafsteins­dóttir notaði kjördæma­vikuna um daginn vel. Hún heimsótti stuðnings­menn flokksins í kjör­dæminu en lét ógert að nýta vikuna til að ferðast til sólar­landa eins og sumir þingmenn og ráðherrar gerðu. Heyrst hefur að Guðrún hafi fengið eindregna hvatningu sjálfstæðis­manna í kjör­dæminu um að sækja ráðherra­embættið fast.“

Ólafur nefnir að „margir trúnaðar­menn flokksins í Suður­kjördæmi eru mjög ósáttir við ástandið. Suður­kjördæmi hafði síðast ráðherra á vegum Sjálfstæðis­flokksins árin 2013 til 2016. Það var Ragn­heiður Elín Árna­dóttir sem kom fáu í verk á sínum ráðherra­ferli. Þess vegna tókst Páli Magnúsyni að fella hana í prófkjöri haustið 2016, en hann var þá nýgenginn í Sjálfstæðis­flokkinn. Engu að síður bar hann sigurorð af Ragnheiði Elínu með svo afgerandi hætti að hún dró sig endanlega út úr stjórn­málum en Páll leiddi lista flokksins í fimm ár, án þess að komast að sem ráðherra.“

Þá bendir Ólafur á að „í aðdrag­anda síðustu kosninga lagði forysta Sjálfstæðis­flokksins hart að Guðrúnu Hafsteins­dóttur að gefa kost á sér í fyrsta sæti flokksins í Suður­kjördæmi. Hún var hikandi en lét slag standa þegar henni var heitið ráðherra­embætti yrði flokkurinn áfram í ríkis­stjórn. Áður hafði henni verið boðið annað sæti á lista Viðreisnar í kjör­dæminu en valdi að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðis­flokkinn þar sem rætur hennar liggja. Því kom það mikið á óvart þegar tilkynnt var að hún ætti að koma inn í ríkis­stjórnina eftir 18 mánuði í síðasta lagi. Samkvæmt því gæti það dregist fram í byrjun júní á næsta ári.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Hann færir í tal að „gefið hefur verið í skyn að hún taki þá við embætti dómsmála­ráðherra af Jóni Gunnar­syni. Þetta þykir mörgum galin hugmynd. Jón Gunnarsson hefur staðið í stórræðum í sínu ráðuneyti frá því að hann tók við embætti og hefur engan veginn lokið við mikilvæg verkefni sem hann vinnur nú að hörðum höndum. Bent er á að dómsmál séu ekki sérsvið Guðrúnar, en hún er aftur á móti sá þingmaður sem hefur yfirburðar­reynslu og þekkingu á málefnum iðnaðar. Guðrún Hafsteins­dóttir hefur verið hluthafi og forsvars­maður iðnfyrirtækis í Hvera­gerði í aldar­fjórðung og gegnt hlutverki formanns Samtaka iðnaðarins í sex ár og að auki setið þar í stjórn enn fleiri ár. Í raun og veru er alveg út í hött að hún skuli ekki gegna embætti iðnaðar-, háskóla- og vísinda­ráðherra í núverandi vinstri stjórn, úr því að Sjálfstæðis­flokkurinn er í þeirri ríkis­stjórn, í ljósi þeirrar miklu reynslu og þekkingar sem Guðrún býr yfir.“

Að mati Ólafs er algerlega „rökrétt að Guðrún Hafsteins­dóttir leysi Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur af hólmi sem iðnaðar-háskóla- og vísinda­ráðherra á nýju ári. Áslaug hefur enga reynslu eða þekkingu á því sviði og hefur ekki komið miklu í verk á þeim ellefu mánuðum sem liðnir eru frá því að hún tók við embættinu. Helst er til að tína áform hennar um að koma upp sjóði til að útdeila fjármunum til samstarfs háskóla landsins í stað þess að hafa forystu um sameiningu þeirra og fækkun úr sjö í tvo. Sjóðasukk hefur aldrei átt upp á pall­borðið í Sjálfstæðis­flokknum, alla vega ekki hjá kjósendum þess flokks. Nú heyrist að Áslaug Arna hugleiði að bjóða sig fram til embættis vara­formanns Sjálfstæðis­flokksins á komandi lands­fundi.“

Ólafur segir væntanlegt framboð Áslaugar Örnu koma á „óvart og er ekki talið líklegt til árangurs fyrir hana; getur það verið hugsað til að styrkja stöðuna gagnvart ráðherra­uppstillingu flokksins á komandi mánuðum?

Beri flokkurinn ekki gæfu til að nýta krafta Guðrúnar Hafsteins­dóttur þar sem hennar styrkur liggur og eftirláta Jóni Gunnars­syni erilsamt embætti dómsmála­ráðherra er óvíst að von sé á góðu fyrir hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning