Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Mathias Wilson er ný Norðurlandameistari í eldsmíði – Beate Stormo keppti fyrir hönd Íslands

Eldsmíði er elsta iðngrein mannkynssögunnar.
Eldsmíði er elsta iðn­grein mann­kyns­sög­unnar. Mynd: theartcareerproject.com-skjáskot

Mathias Wilson er nýr Norður­landa­meistari í eldsmíði.

Síðdegis í dag lauk Norður­landa­meistara­mótinu í eldsmíði á Safna­svæðinu í Görðum á Akranesi, með úrslitum og verðlauna­afhendingu. Sagt var frá því á vef Skessu­horns. Keppt var í þremur flokkum á mótinu; byrjenda, sveina og meistara en alls voru keppendur 15 talsins. Fimm þjóðir sendu keppendur á mótið en það var Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk. Um er að ræða elstu iðngrein sem til er.

Byrjenda­flokkur keppti á föstu­daginn, keppt var í sveina­flokki í gær en í meistara­flokki í dag en lauk keppninni um nónbil. Þema keppninnar í ár var ankeris­smíð. Í byrjenda­flokki varð hinn danski Sören Hammer þriðji, Nestori Widenoja frá Finnlandi annar og hinn sænski Magnús Nilson sá fyrsti. Í flokki sveina var  Emil Lindqvist frá Svíþjóð í þriðja sæti, Daninn Kasper Reinholdt í því öðru og Finninn Sami Niinilampi bar sigur úr býtum.

Föngu­legur hópur verð­launa­hafa.

Að sögn Skessu­horns var mesta spennan fyrir úrslitum í meistara­flokki en Beate Stormo frá Kristnesi í Eyjafirði keppti fyrir hönd Íslands en hún var eina konan í keppninni. Sem ríkjandi Norður­landa­meistari hafði hún titil að verja. Smíði hennar fór hins vegar ekki eins og hún hafði vonað en náði hún þrátt fyrir það þriðja sætinu í keppninni. Sá sem hlaut silfrið var hinn norski Mikael Wunderlich en nýr Norðurlandameistar í eldsmíði er Svíinn Mathias Wilson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið