Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Bretar hertaka Ísland: „Okkur þykir leiðinlegt að gera þetta ónæði“

Breskir hermenn á móturhjólum í Reykjavík
Breskir her­menn á mót­ur­hjólum í Reykja­vík

Aðfara­nótt 10 maí árið 1940 urðu lögreglu­verðir og aðrir nátt­hrafnar í Reykjavík, varir við flugvél sem sveimaði yfir borginni. Stuttu síðar sigldu fjögur bresk herskip inn sundin og lögðust á ytri höfnina. Klukkan var fjögur um nóttina. Fljótlega rann upp fyrir fólki ljós. Búið var að hertaka Ísland.

Tíminn sagði frá atburðum næturinnar daginn eftir og var ljóst að Ísland yrði aldrei samt. Bretarnir gengur mjög hratt og hreint til verks og á undra­hraða voru þeir búnir að handtaka þá þjóðverja sem þeir náðu í og setja upp varð­stöðvar víða og loka á öll samskipti út á við. Fer Tíminn mildari höndum um Bretana en miðlar eins og Þjóð­viljinn á þessum tíma sem kallaði hernámið „gerræði brezka hervaldsins.“ Hér fyrir neðan má lesa brot úr frétt Tímans um málið:

„Bretar hertaka Ísland

Enska stjórnin lofar því að láta herliðið hveria héðan strax og styrjöldinni lýkur og
að hafa engin afskipti af innan­landsmálum

Stjórn Íslands mótmælti hertökunni

Hinir þýðingar­miklu og sögulegu atburðir, sem gerðust hér í gær, fóru í aðal­atriðum fram á þessa leið: Klukkan 3.45 í fyrrinótt urðu lögreglu­menn, er á verði voru í Reykjavík, og bæjarbúar, sem enn voru á ferli, varir við flugvél á sveimi yfir bænum. Litlu síðar sigldu fjögur brezk herskip hér inn sundin og lögðust á ytri höfnina klukkan 4. Voru það tvö beitiskip og tveir tundurspillar. Eftir nokkurt hringsól yfir bænum settist flugvélin í
grennd við herskipin. Reyndust tvær sjóflugvélar vera með í förinni. Rétt um kl. 5 í gærmorgun sigldi annar tundur­spillirinn inn á innri höfnina og lagðist við hafnar­bakkann framan við skipa­afgreiðslurnar. Stigu þá af skipsfjöl allmargir smáflokkar hermanna, er þegar dreifðust um bæinn. Tóku þeir sér varðstöðu við ýmsar byggingar og á gatna­mótum. Brezku ræðis­mennirnir hér tóku á móti herliðinu við land­göngubrúna.

Fáliðuð sveit hermanna, um 25 manns, tók bústað þýzka ræðis­mannsins við Túngötu þegar á sitt vald, en fólk það, er þar var, til fanga. Var ræðis­maðurinn og fjöl­skylda hans og starfslið flutt á skipsfjöl siðar um morguninn. Áður en brezku hermennirnir réðust til inngöngu í ræðismanns­bústaðinn höfðu þeir nokkurn viðbúnað úti fyrir. Þykir líklegt, að ræðis­manninum hafi, meðan á þessu stóð, unnizt tími til að eyði­leggja plögg og skjöl, er hið þýzka starfslið ógjarna vildi láta falla í hendur óvinanna, því að vart varð reykjar í einni stofu bústaðarins. Fyrverandi aðal­ræðismaður Breta hér var í för með löndum sínum við töku bústaðarins. Að lokinni hertöku hússins komu Englendingar fyrir sendi­tækjum í garðinum úti fyrir og héldu um hríð stöðugu skeyta­sambandi við herskipin. Einka­bifreið þýzka ræðis­mannsins stóð í fyrri nótt á Túngötunni móts við Landakotsspítalahn. Stóð hún þar óhreyfð í allan gærdag. En í gærkvöldi seint komu enskir hermenn, tóku hana og óku henni brott. Þá réðust herflokkar til inngöngu í þau gistihús bæjarins, er Þjóð­verjar bjuggu í, svo sem Herkastalann, Hótel Heklu og Hótel Ísland. Voru hinir þýzku menn, er þar fundust, teknir til fanga og fluttir niður á hafnar­bakka, og síðan í annað beiti­skipið.
Margir Þjóð­verjar voru hand­teknir annars staðar í bænum, flestir á heimilum sínum eða
dvalar­stöðum, en nokkrir annars staðar, þar sem þeir höfðu leitað sér, hælis eða jafnvel
freistað undankomu. Var öðru hvoru um morguninn verið að koma með slíka fanga á vörubílum niður á hafnar­bakka. Einn Þjóðverja tóku Bretar til dæmis höndum austur í Svína­hrauni, og mjög fljótt eftir landgöngu fyrstu liðsveit­anna voru bifreiðar sendar austur að Litla Hrauni að sækja þýzka menn, er þar voru í haldi.

Við töku gistihús­anna viðhöfðu brezku hermennirnir ýmsar varúðar­ráðstafanir, komu vélbyssum fyrir í grennd við þau, eins og þeir byggjust við mótspyrnu, og biðu þess albúnir að hefja skothríð, ef til þyrfti að taka. Borið mun það hafa við að Íslendingar, er bjuggu á þeim gistihúsum, þar sem Þjóð­verjarnir voru flestir, væri einnig teknir höndum og fluttir niður á hafnar­bakka. En er við nánari eftirgrennslan kom í ljós að um Íslendinga var að ræða, voru  þeir látnir lausir og beðnir afsökunar á óþægindunum, er þeim voru bökuð.
Þjóð­verjar þeir, sem hand­teknir voru, munu hafa skipt hundruðum, enda mun í þeim hópi hafa verið nær allir þýzkir menn, er hér voru. Örfáir Þjóð­verjar munu þó hafa sloppið hjá
handtöku. Landsíma­húsið var brotið upp af brezkum hermönnum nálægt kl. 5.15 og tóku þeir þar aðsetur í afgreiðslu­sölunum og var fáum eða engum Íslendingum leyft að koma í húsið, útvarp simtöl og skeyta­sendingar út úr bænum bannaðar. Símtöl innanbæjar
leyfð. Kl. 3 í gærdag var starfs­fólki leyfður aðgangur að síma­stöðinni og síma­samband komst á um allt land. Um sama leyti voru salar­kynni útvarpsins einnig fengin í hendur starfs­liði þess. Við allar benzíngeymslur og olíu­stöðvar voru varðmenn skipaðir og einnig var pósthúsið þegar tekið á vald hersveit­anna. Hafnar­húsið var gert að bráðabirgða­bækistöð land­göngu­liðsins. Hótel Ísland var tekið í þágu hjúkrunar­sveita, er á land voru settar, og flutt þangað hjúkrunar­tæki ýmiskonar, sjúkra­börur, lyf og annað þess háttar. Síðar um daginn flutti hjúkrunar­liðið bækistöðvar sínar í íþróttahús f. R. við Túngötu. Við loftskeyta­stöðina var einnig sett herlið. Hingað og þangað um bæinn
voru hermenn á verði við ýms götuhorn og höfnina. Öll umferð út úr bænum var skjótlega
bönnuð í nokkrar klukku­stundir og fámennar sveitir tóku sér varðstöðu á Hafnar­jarðar­veginum utan í hálsinum, skammt sunnan við Foss­vogsbrúna, og á Suður­lands­brautinni á Elliða­árbrú. Var þar grannur kaðall með rauðu merki strengdur yfir brúna, en hermenn gættu. Einnig var varðlið sett við flugskýlið í Vatna­görðum og umferð bönnuð um brautina niður að skýlinu. Eftir fáar stundir var bifreiða­umferð leyfð um vegina út frá Reykjavík, en brezkir varðmenn höfðu gát á ferðum manna, aðgættu fólk og farangur í bifreiðum og viðhöfðu svipaða varúð, sem von gæti verið óvina. Er á daginn leið, varð þó eftirlit varðmanna ekki jafn strangt.

Undir eins og hinar fyrstu hersveitir voru stignar á land, var ávarp frá yfir­foringja herleiðangurs fest upp á ýmsum stöðum í bænum og úthlutað meðal vegfarenda. Ávarp þetta eða tilkynning hljóðaði svo, orðrétt og stafrétt:“

Tíminn birti svo tilkynningu Breta í heild sinni en athygli vekur hversu kurteisi Bretinn er og ætti það svo sem ekki að koma neinum á óvart, þeim sem þekkja til þjóðarinnar. Hér má lesa tilkynninguna:

„TILKYNNING.
Brezkur herlíðs­afli er kominn snemma í dag á herskipum og er núna í borginni. Þessar rádstafanir hafa verið gerðar bara til þess að taka sem fyrst nokkrar stöður og að verða á undan Þjóð­verjum. Við Englendingar ætlum að gera ekkert á móti Íslenzku lands­stjórninni og Íslenska fólkinu, en við viljum verja Íslandi örlög, sem Danmörk og Norvegur urðu fyrir.
Þessvegna biðjum við yður að fá okkur vinsamlegar viðtökur og að hjálpa okkur. Á meðan við erum að fást við Þ0jóðverja, sem eru búsettir í Reykjavík eða annarstaðar á Íslandi, verður um stundar sakir bannað
(1) að útvarpa, að senda símskeyti, að fá símtöl.
(2) að koma inn í borgina eða að fara út úr henni fyr nokkra klukkantíma.

Okkur þykir leiðinlegt að gera þetta ónæði; við biðjumst afsökunar á því og vonum að það
endist sem fyrst.
R. G. STURGIS, yfir­foringi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá