Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Björn: „Virðist sem stofnunin réttlæti tilvist sína með því að elta uppi sjómenn á litlum bátum“

Björn Þorláksson.
Björn Þor­láks­son.

„Ég varð af tilviljun vitni að óformlegu spjalli starfs­manns Fiskistofu og sjómanns hjá stóru útgerðar­félagi á dögunum,“ ritar Björn Þorláksson í athyglis­verðri grein.

“Sjómaðurinn: „Þið vitið það alveg á Fiskistofu, vegna brott­kastsins, að um leið og eftirlits­maður frá ykkur er farinn af stóru skipunum þá drögum við fram rörið og hendum fiski villevekk.“

Starfs­maður Fiskistofu: „Jájá, en ég fæ borgað fyrir mína stikk­prufu og þið veiðið verð­mætasta fiskinn. Er það ekki bara win-win?“

Sjómaðurinn. „Eina leiðin til að stöðva brottkast er að það sé einn eftirlits­maður frá Fiskistofu um borð í öllum skipum 40 metrar að lengd eða stærri allan sólar­hringinn.“

Starfs­maður Fiskistofu: „Nei, það gengur ekki. Við þurfum að sofa. Það yrðu þá að vera tveir og það yrði allt of dýrt.“

Sjómaðurinn: „Þetta verður alltaf svona á meðan kvóta­kerfið er við lýði.“

Starfs­maður Fiskistofu: „Jájá, við gerum bara gott úr þessu.“

„Björn útilokar ekki að „ummæli starfs­mannsins hafi fallið í hálf­kæringi. En starfs­menn ríkisins gagnast almannahags­munum lítt án samfélagslegrar ábyrgðar. Fagleg fjarlægð ætti að vera keppikefli milli eftirlits­aðila og þeirra sem sæta eftirliti, jafnt í frítíma sem á vinnutíma. Að gera grín að lögbrotum styrkir ekki tiltrú okkar á að eftirliti sé best sinnt hjá ríkis­starfs­mönnum.“

Hann bætir við að „ef rýnt er í opinber gögn frá Fiskistofu virðist sem stofnunin réttlæti tilvist sína með því að elta uppi sjómenn á litlum bátum. Smælingjarnir fá kæru fyrir sín brot á sama tíma og alkunna er að hinir stóru og voldugu fremja miklu alvarlegri brot sem hefur nánast verið sameinast um að líta undan.“

Hann segir einnig að „drónar Fiskistofu svífa yfir smáfiskunum. Stór­fiskarnir sleppa á meðan. Saga Íslands í hnotskurn. Spurningar vakna um hvort áhafnir ríkis­rekinna eftirlits­stofnana hafi borið af leið.

Hjá MAST hefur stjórn­sýsla ítrekað skapað undrun og hneykslun. Hjá Umhverfis­stofnun sagði yfirmaður eitt sinn að það væri pólitísk ákvörðun en ekki í verka­hring starfs­manna að bjarga heiminum. Nú er Vega­gerðin til umræðu og villur í opinberri rannsókn eftir alvarlegt slys. Makindaleg hugsun þar sem störfin fara að snúast um hag starfs­fólksins en ekki almenning er aumingja­skapur og hefur leitt til vantrúar á kerfin okkar þótt sumt sé vel gert. Sérhygli of margra opinberra starfs­manna er mein sem þarf að ræða og uppræta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning