Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Sindri Þór sýknaður í héraðsdómi Reykjavíkur – Ingó veðurguð áfrýjar

Ingó veðurguð vann meiðyrðarmál gegn Sindra Þór á dögunum
Ingó veð­urguð vann meið­yrð­ar­mál gegn Sindra Þór á dög­unum

Héraðs­dómur Reykja­víkur sýknaði í dag Sindra Þór Sigríðarson í meiðyrða­máli Ingólfs Þórarins­sonar.

Stefndi Ingólfur Sindra fyrir meiðyrða vegna fimm ummæla hans í athugasemda­kerfum á vefmiðlum sem og á samfélags­miðlum. Voru ummælin látin falla sumarið 2021 eftir að ásakanir á hendur Ingólfi birtust á samfélags­miðlum.

Auður Björg Jóns­dóttir, lögmaður Ingólfs segir í samtali við Rúv að niður­staðan komi sér á óvart og að henni verði áfrýjað. Var máls­kostnaður felldur niður en dómurinn hefur enn ekki verið birtust á vef héraðs­dóms.

Krafðist söngvarinn að fimm ummæli Sindra yrðu dæmd dauð og ómerk en þau beindust að meintum kynferðis­brotum Ingólfs. Þvertók Ingólfur fyrir að hafa brotið af sér kynferðis­lega og að hafa haft kynferðismök við táninga, er aðal­meðferð málsins hófst um síðustu mánaðarmót. Sagðist hann hafa orðið fyrir gríðar­legum áhrifum vegna nafn­lausra frásagna og ekki síst vegna ummæla Sindra. Í kjölfarið hafi fjölmargir afbókað hann á skemmtanir og aukreitis hafi fáir bókað hann frá því að málið kom upp, af ótta við að verða fyrir aðkasti á samfélags­miðlum.

Rök Sindra Þórs fyrir dóminum voru þau að ummæli hans hefðu ekki í öllum tilfellum beinst að Ingólfi með beinum hætt heldur hafi þau verið gagnrýni á þá „meinsemd” í íslensku samfélagi og það réttarfar að full­orðnir karlmenn geti sængað hjá börnum á aldrinum 15-17 án nokkurrar refsingar.

Fram kom í málflutningi lögmanns Sindra að ummælin séu partur af þýðinga­mikilli samfélagslegri umræðu um kynferðis­brot, vald­níðslu og þöggunar­menningu. Krafa sé gerð til manna sem eigi sér langa sögu af ólíðandi kynferðislegri hegðun, að þeir stígi til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis