Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Eðlilegt að töluðu sé íslenska og svo þyrftu bara þeir sem ekki kunna hana að læra hana“

Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur harmar það hvernig enska sé nú töluð á flestum viðburðum frekar en íslenska. Í það minnsta er það hans upplifun undan­farið. Hann segist hafa farið á ýmsa viðburði á Íslandi svo sem kvikmynda­hátíð og ljóða­lestur og í nær öllum tilvikum hafi verið töluð enska. Hann bendir á að ástæðan sé yfirleitt sú að einn eða tveir í salnum töluðu ekki íslensku. Eiríkur skrifar um þetta á vef sínum.

„Síðustu vikur hef ég sótt alls kyns menningar­viðburði – farið á kvikmynda­hátíð (þar sem viðtöl voru við leikara og leik­stjóra eftir myndirnar), ljóða­upplestra, tónleika, panela og meira að segja hátíðar­kvöldverð. Það sem allir þessir viðburðir áttu sameiginlegt er að þeir fóru fram að miklu leyti á ensku. Og þá er ég ekki endilega að tala um lögin sem voru sungin eða kvik­myndirnar sem voru sýndar – það var merkilegt nokk meiri tungumála­breidd þar. En kynningar á lögum og viðtöl og ræður og þar fram eftir götunum – þetta var allt á ensku. Oftar en einu sinni var það í kjölfar þess að sá sem stýrði viðburðinum spurði einfald­lega – „Er einhver í salnum sem talar ekki íslensku?“ (á ensku) og þegar í ljós kom að einhvers staðar í salnum leyndist einhver sem ekki skildi málið var skipt yfir í ensku. Sennilega er óþarfi að taka fram að ég hef aldrei heyrt neinn spyrja svona af sviði hvort það sé einhver í salnum sem ekki skilji ensku – og sennilega er það sjaldan. Kannski eru jafnvel fleiri á Íslandi sem ekki skilja íslensku en sem ekki skilja ensku,“ segir Eiríkur.

Hann segist þó sjálfur sekur um þetta. „Eitthvað af þessum viðburðum skipulagði ég vel að merkja sjálfur. Og í einu tilviki var það ég sem benti kynninum á að sennilega yrði hann að tala ensku. Í mörgum þessara tilvika, kannski öllum, var ágætis ástæða til þess að tala ekki íslensku heldur ensku – og ekki í boði að þýða jafn óðum eða sinna íslensk­unni á annan máta,“ segir Eiríkur.

„Og þetta er víðar. Ég býð gjarnan í mat og það er sennilega oftar en ekki einhver í hópnum sem ekki talar íslensku og þá fer matar­boðið fram á ensku. Á kaffi­húsinu Heima­byggð, sem ég sæki oft í viku, fer öll afgreiðsla undantekningalítið fram á ensku – frá „good morning“ til „need a receipt?““

Hann segist uggandi yfir stöðu íslensku meðal ungmenna. „Ég – einsog margir foreldrar – býsnast stundum yfir því hvað börnin mín, aðallega það eldra, nota mikla ensku í sínu lífi (einu sinni reyndum við að múta syninum og vini hans til að sletta ekkert í einn sólar­hring – þeir fengu fimm sénsa og entust samt ekki nema í rúman klukku­tíma, og þögðu bara megnið af honum). En ég held satt best að segja að miklu stærri hluti míns lífs fari fram á ensku en þeirra. Mér finnst það svolítið sorglegt – ég vildi gjarnan að það væri bara eðlilegt að t.d. kynnar töluðu íslensku og svo þyrftu bara þeir sem ekki kunna hana að læra hana eða sætta sig við að skilja kannski ekki allt. En í mörgum þessara tilfella er staðan bara aðeins flóknari og ég sé enga almennilega lausn sem felur ekki sér einhvers konar útskúfun eða dónaskap í garð gesta eða þannig kröfur í garð viðburða­haldara sem erfitt (eða ómögulegt) er að fjármagna. Eða sem myndu gera flækju­stigið það hátt að það nennti enginn að skipuleggja þá lengur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning