Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Minning: Jóhannes Björn Lúðvíksson 1949-2022

Jóhannes Björn Lúðvíksson
Jóhannes Björn Lúð­víks­son Mynd: skak.is

Við vorum átta ára gamlir þegar fundum okkar bar saman í fyrsta sinn. Ég var nýfluttur inn í Vaðnes­hringinn sem var umvafinn af Laugavegi, Klappar­stíg, Hverfis­götu og Smiðju­stíg, en hlaut síðar nafngiftina Sirkus­reiturinn og nefnist í dag, Hjarta­torg. Jóhannes Björn var að sýsla hjá dúfnakofa sem eldri bróðir hans hafði reist í bakgarðinum. Ég staldraði við þegar hann leit upp með glettnis­svip og spurði: “Hvað heitir mamma þín”? Vinskapur okkar átti eftir að þroskast og þróast og var afar náinn alla tíð. Þarna myndaðist sterkur vinahópur með auðugt ímyndunarafl, sem hélt uppi öflugu félags­starfi. Við bárum einnig út dagblöð og seldum “Íslenska fyndni”. Jónína, móðir Jóhannesar Bjarnar sá það fljótt í hendi sér að best væri að opna húsið við Hverfis­götuna, sem varð okkar miðstöð næstu árin. Stofnað var knattspyrnu­félagið “Samherjar” sem atti kapp við önnur hverfis­félög, borð­tennis­klúbbur, “bridge” klúbbur, tafl­klúbbur “smámeistara” og enda­lausir götu­leikir, þar sem hápunkturinn var að hlaupa Vaðnes­hringinn undir einni mínútu. Næsti nágranni okkar var “Billiardstofan” við Klappar­stíg sem var bönnuð innan sextán ára. Okkur langaði að prófa snókerinn og svindluðum okkur inn bakdyramegin, á neðri hæð. Eigendurnir gripu okkur yfirleitt, en sáu fram á að þarna færu framtíðar­spilarar.

Jóhannes Björn var góðum gáfum gæddur, óvenju hugmynda­ríkur, og hafði sterkar skoðanir á flestum hlutum. Í stað þess að ganga mennta­skólaveginn lagðist hann í bóklestur, einkum skáldsagna og ljóða, og naut þess að leiða mig inn í þá veröld með sinni einstöku frásagnar­gáfu. Það tók oft á tíðum óratíma fyrir mig að komast heim eftir ferðalag frá eldhúsi, inn í stofu, fram á gang og út á götu. Enda­spretturinn niður tröppurnar tók yfirleitt lengstan tíma. Húsið hafði margar vistar­verur og ýmislegt átti sér stað sem ekki var einfalt að útskýra. Jónína, sá fleira en flestir og las stundum framtíð fólks í gegnum kaffi­bolla. Gunnar, “Skáldið”, félagi okkar tjáði mér nýlega að konan sem var á kreiki væri fyrr­verandi eigandi hússins, sem minnti mig á söguna um það, þegar tvíburarnir, eldri systur Jóhannesar Bjarnar voru litlar, sáu þær konuna og upplýstu að hún væri að fela sig á bak við píanóið, sem stóð fast upp við vegg. Ég fór aldrei upp í ris.

Síðar, þegar við stunduðum nám saman á Suður-Englandi, fengum við mikinn áhuga á indverskri matargerð og leituðum uppi slíka matsölu­staði. Við ákváðum að þroska og þróa okkar bragð­lauka til þess að ráða við aukinn styrk­leika. Við pöntuðum sterkasta réttinn sem þurfti sólar­hrings fyrirvara, en auðvitað tók nokkra daga að fá eðlilegt bragðskyn til baka. Á tímabili stóð ég í þeirri meiningu að ég hefði fengið gat á magann. Okkar vinskapur varð til þess að ég gat leitað til Jóhannesar Bjarnar þegar mig vantaði ljóð við lög sem ég var að semja eða vinna með. Einnig er minnis­tætt framhalds­leikritið, “Innrásin frá Markab”, sem hann samdi fyrir þætti sem ég vann fyrir Ríkis­útvarpið á sínum tíma. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Róberti, syni Jóhannesar Bjarnar og Þóru Ásbjörns­dóttur, þegar ég kenndi honum í Foss­vogsskóla, og hef fylgst vel með honum í gegnum árin. Ekkjunni, Beth Sue Rose, kynntist ég síðar þegar ég dvaldi hjá þeim hjónum í nokkra daga, á heimili þeirra í New York, á leið minni til Kaliforniu og Japan.

Jóhannes Björn hafði mikinn áhuga á manntafli og var afar öflugur skákmaður. Hann varð unglinga­meistari Reykja­víkur í skák 16 ára að aldri og tók þátt í alþjóð­legu skákmóti í Hollandi, fyrir Íslands hönd. Það hlaut að koma að því að hann gæfi út bók, og ungur að árum gaf hann út ljóða­bókina “Blástjörnur”. Síðar ritaði Jóhannes Björn þá merkilegu bók “Falið vald”, sem má segja að hafi sett ‘hrunið 2008’ í hnotskurn löngu áður en það átti sér stað. Það kom því ekki á óvart að hann yrði kallaður heim frá New York sem samfélags­rýnir hjá sjónvarpi og fjöl­miðlum, til þess að kafa ofan í kjölinn og taka ríkan þátt í þeirri umræðu og uppbyggingu, sem átti sér stað í kjölfar hrunsins. Blessuð sé minning Jóhannesar Bjarnar.

Sverrir Guðjónsson

HORFNIR DRAUMAR (höf: Sverrir Guðjónsson)

haustið fellur að
brátt flæðir veturinn yfir
blóð­rauðir runnar
á snævi þakktri jörð

ég opna hellinn til hálfs
horfi til hafs
gegnum hvít ríslandi lauf
sem hvísla í golunni

kertið hefur brunnið ofan í kviku
síðasta andvarp logans
fyllir vitin höfgum ilmi
löngu horfinna drauma

Minningar­grein þessi birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs sem nálgast má í Bónus og Hagkaup fríkeypis. Þá má einnig lesa blaðið í rafrænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis