Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Langveikur 11 ára drengur safnar áheitum: „Mjög duglegur strákur, þrátt fyrir veikindin“

Erik er afar duglegur drengur.
Erik er afar dug­legur drengur. Mynd: Aðsend

Hinn 11 ára gamli Erik Valur hleypur í Reykja­víkur­maraþoninu um næstu helgi og safnar áheitum fyrir góðgerðar­samtökin Mia Magic. Erik Valur er lang­veikur.

Hið árlega Reykja­víkur­maraþon Íslands­banka fer fram næst­komandi laugardag, á Menningar­nótt en þar safna hlauparar áheitum fyrir ýmiskonar góðgerðar­samtök.

Erik Valur Kjartansson er einn þeirra en hann mun hlaupa svokallað skemmtiskokk en það eru þrír kíló­metrar. Erik er lang­veikur en eldri bróðir hans, Jón Sverrir, sem einnig er lang­veikur hefur hlaupið í nokkur skipti í hlaupinu og mun Erik hlaupa bróður sínum til heiðurs.

Hleypur fyrir bróður sinn

Bræðurnir eru báðir með sjúk­dóminn CVID eða Common variable immunodeficiency sem er einhversskonar ónæmis­galli og þurfa þeir að fara í lyfjagjöf á þriggja vikna fresti. Jón varð 18 ára nýlega en fær undanþágu til að fara í síðustu lyfja­gjöfina sína með bróður sínum á Barna­spítalanum á næstunni. Af þeim sökum ætlar Erik að verðlauna stóra bróður sinn öll skiptin sem hann hefur hlaupið og hlaupa sjálfur til styrktar Mia Magic. Mamma þeirra, Þórunn Eva G Páls­dóttir stofnaði samtökin árið 2021 en hún gaf út bókina Mía fær lyfja­brunn ásamt Bergrúni Írisi Sævars­dóttur, í þeim tilgangi að hjálpa börnum sem þurfa á lyfja­brunni að halda. Og nú stefnir Þórunn Eva á að gefa út aðra Míu bók, Mía fer í Tívolí. Hlaupa­styrkur Eriks fer í að kosta útgáfu bókarinnar en stefnt er á að hún komi út fyrir jól.

Jón Sverrir

Mannlíf heyrði í bræðrunum Erik og Jóni og spjallaði við þá um hlaupið og þann styrk sem þeir finna hjá hvorum öðrum.

„Ég ætla að hlaupa þrjá kílómetra,“ sagði Erik þegar blaða­maður Mannlífs spurði hann út í hlaupið. „Hann er mjög virkur, hefur ekki hlaupið áður í maraþoninu en er mjög duglegur strákur, þrátt fyrir veikindin,“ segir Jón Sverrir um litla bróður sinn.

Falleg fjöl­skylda

Markmið Eriks er að safna 250.000 en þegar þetta er ritað hefur þegar náðst að safnast 52% af þeirri upphæð. Eru bræðurnir ekki bjartsýnir á að þetta náist fyrir hlaupið?

„Jú, við erum mjög bjartsýnir á þetta, það eru fleiri hlauparar að hlaupa fyrir Míu Magic samtökin og mér sýnist þeir flestir vera búnir að ná markmiðum sínum. Mér finnst þetta ganga mjög vel en hver styrkur hjálpar voða mikið,“ sagði Jón Sverrir og Erik tók undir.

Sjálfur hefur Jón hlaupið nokkrum sinnum áður í Reykja­víkur­maraþoninu. „Já, ég hef hlaupið nokkrum sinnum fyrir Einstök börn en það eru komin nokkur ár síðan síðast.“

Duglegir að hvetja hvorn annan

Á hlaupa­styrkssíðu Eriks má sjá ljós­myndir af honum en á einni þeirra heldur hann á þremur bikurum. „Fyrir hvað eru þeir?“ spurði blaða­maður Erik.

„Þeir eru fyrir badminton, ég er þrefaldur Íslands­meistari í badminton,“ svaraði Erik og Jón Sverrir bætti við: „Já, hann er allur í badminton og golfi,“ greini­lega stoltur af litla bróður.

Bræð­urnir eru góðir vinir.

Nú styttist í að þeir bræður fari í sína síðustu lyfjagjöf saman á Barna­spítalanum þar sem Jón Sverrir varð nýlega 18 ára gamall. Bræðurnir segjast finna fyrir miklum stuðningi vegna hlaupsins hjá bekkjar­félögum og vinum. „Það eru mjög margir, til dæmis í skólanum mínum, sem vita af bókinni en ég fór með hana á bóka­safnið í skólanum mínum og það eru mjög margir búnir að lesa hana og koma til mín og spyrja mig hvað þetta er og fleira,“ sagði Erik glaður í bragði. Blaða­maður spyr hvort þeir bræður styðji ekki líka hvorn annan. „Jú, við erum mjög duglegir að hvetja hvorn annan áfram,“ svaraði Jón og Erik tók vel undir það.

Aðspurðir hvort hann sé ekki spenntur fyrir hlaupinu sagðist Erik vera það. „Jú, mjög spenntur! Ég ætlaði að hlaupa 5 kílómetra ef það væri hægt en það er bara hlaupið í þrjá kílómetra, 10, 21 og 42 kílómetra. Ég ákvað þá að taka hlaupa bara aðeins minna og fara þrjá kílómetra.“

En hafa bræðurnir einhver sérstök lokaorð fyrir lesendur Mannlífs?

„Já, bara, endilega styðjið mig í hlaupinu,“ svaraði Erik.

Þeir sem vilja styrkja þennan duglega strák geta lagt inn hlaupa­styrk hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið