Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dahmer þó!

Jeffrey Dahmer, skrímsli.
Jeffrey Dahmer, skrímsli.

Dahmer, Dahmer, Dahmer. Þú varst nú meiri karlinn.

Þar sem að ég get verið ákaflega áhrifa­gjarn þegar það kemur að vinsælum kvik­myndum og þátta­röðum varð ég auðvitað að horfa á Dahmer – Monster: The Jeffrey Dahmer Story, þrátt fyrir afleitan titil.

Þættirnir hafa verið að gera allt vitlaust undan­farnar vikur en þeir þykja einstak­lega vel leiknir og vel gerðir.

Ég verð þó að viðurkenna að ég hef ekki alltaf verið áhrifa­gjarn því ég neitaði á sínum tíma að horfa á Titanic þegar hún var hvað vinsælust, eða ekki fyrr en þremur árum eftir að hún kom út enda gat maður ekki kveikt á útvarpinu á þess að heyra þetta skelfi­lega lag My Heart Will Go On.

Ógleym­an­legt lag. Því miður eða sem betur fer.

Og svo fannst mér þá eins og ég myndi gefast upp fyrir ægivaldi tískunnar ef ég myndi leyfa mér að horfa á þessa mynd.

En já, það er önnur Ella.

Hvor er hvað?

Ég hef alltaf haft áhuga á raðmorðingjum eða kannski frekar sálfræðinni á bakvið illvirkjum þeirra.

Reyndar hefur maður alveg lesið yfir sig um slík skrímsli og þurft að taka pásu svo maður ældi hreinlega ekki af ógeði. Því þetta er auðvitað um alvöru fólk, alvöru fórnar­lömb og alvöru skrímsli en ekki bara skáldaðar sögur.

Rosalega góður leik­ari – Evan Peters hér í American Horror Story.

Jeffrey Dahmer er meistara­lega vel leikinn af Evan Peters sem áður hafði getið af sér gott orð fyrir leik í American Horror Story þáttunum.

Leikarinn nær að túlka hinn tilfinninga­kalda furðufugl Dahmer sem drap að minnsta kosti 17 karlmenn, flesta svarta og samkyn­hneigða, þar til hann var loksins stöðvaður árið 1991.

Annan leiksigur er að finna í þættinum en Richard Jenkins leikur hinn ráðalausa föður Jeffrey, Lionel Dahmer, sem gerði allt sem honum datt í hug til að hjálpa syni sínum að „verða að manni“ en Jeffrey hélst hvorki í skóla né vinnu. Rauðu flöggin voru allt umlykjandi en faðirinn hunsaði þau öll.

Leik­sigur hjá Richard Jenkins sem faðir Jeffrey Dahmer.

Var svo algjör­lega sigraður þegar hann heyrði hverslags skrímsli sonurinn var og hefði lengi verið. Vert er að minnast einnig á Niecy Nash sem lék Glendu Cleveland, nágranna Jeffrey sem hringdi ítrekað í lögregluna vegna ópa og ólyktar sem kom frá íbúð Dahmers, án árangurs. Lögreglan hreinlega nennti ekki að sinna útköllum enda voru þetta bara einhverjir fátæklingar.

Frábær leik­kona í frá­bærum þáttum.

Þættirnir eru stórgóðir en þeir eru erfiðir áhorfs, verð að taka það fram.

En ef maður kemst í gegnum fyrsta þáttinn án þess að leggjast í fóstur­stellinguna vegna illsku heimsins, ættirðu að geta horft á restina.

Í fyrsta þættinum fylgjumst við með einu fórnar­lamba Dahmers sem bíður honum heim til sín; áhorf­andinn veit í hvaða tilgangi en fórnar­lambið ekki.

Þannig fylgjumst við með í hægagangi, samskiptum veiði­mannsins við bráðina, vitandi hvað er í vændum en vitum bara ekki hvenær það kemur eða hvernig. Ég viðurkenni að ég þurfti að láta sólar­hring líða áður en ég horfði á næstu þætti en sé ekki eftir því að hafa horft á þá alla.

Frábærir en erfiðir þættir um lífið en þó aðallega dauðann í fátækra­hverfi í Banda­ríkjunum, afskipta­leysi lögreglunnar og skrímslið sem græddi á því.

Pistill þessi birtist í nýjasta tímariti Mannlífs sem hægt er að nálgast ókeypis í Bónus, Hagkaup og N1, á höfuð­borgar­svæðinu. Lesa má vefútgáfu blaðsins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning