Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Apabóla komin til landsins: Fólki ráðið frá kynmökum við ókunnuga

Fyrstu tilfelli apabólu hafa nú greinst hér á landi.

Samkvæmt vef RÚV greindust tveir karlmenn með veiruna úr fyrsta prófi í gær. Sýnin verða send erlendis til endanlegrar greiningar. Á vef Land­læknis kemur fram að yfir­gnæfandi líkur séu á því að greiningin sé rétt. Að sögn er hvorugur mannanna alvarlega veikur en smitin má rekja til ferðalags í Evrópu.

Líkt og hefur komið fram í frétta­tilkynningu sóttvarna­læknis er apabóla ekki talin bráð­smitandi veiru­sjúkdómur, heldur smitist hún aðallega við nána og lang­varandi snertingu. Eru kynmök þar sérstak­lega tilgreind, sem og dropasmit frá öndunar­vegi. Smit eru einnig sögð geta borist með hand­klæðum, rúmfötum og fatnaði.

Samkvæmt vef Land­læknis geta um þrjár vikur liðið frá því smit verður, þar til sýktur einstaklingur hættir að smita. Apabóla veldur meðal annars blöðrum á húð og er smithætta yfirstaðin um leið og síðasta blaðra á húð er gróin. Sýktur einstaklingur þarf að vera í einangrun meðan hann er smitandi. Þeir sem hafa verið útsettir fyrir smiti þurfa að vera í smitgát í allt að þrjár vikur.

Á vef Land­læknis segir ennfremur:

Allir sem fá bólur eða blöðrur á húð, sérstak­lega á kynfærum eða svæði aðlæg kynfærum, eru hvattir til að fara í einangrun og hafa samband símleiðis við húð- og kynsjúkdóma­deild eða göngu­deild smit­sjúkdóma Land­spítala eða heilsu­gæsluna til að fá nánari ráðleggingar um greiningu og meðferð. Enn og aftur er fólk hvatt til að forðast náin samneyti við ókunnuga þ.m.t. kynmök, sérstak­lega á ferðum sínum erlendis.

Unnið er að því að fá veirulyf og bóluefni hingað til lands, sem sögð eru geta gagnast völdum einstaklingum gegn sýkingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá