Embætti landlæknis hefur fellt niður starfsleyfi sex lækna og takmarkað starfsleyfi þess sjöunda eftir athugun á málum 13 lækna. Málin komu til skoðunar eftir að Heimildin óskaði upplýsinga frá embættinu í tengslum við alþjóðlega rannsókn á læknum sem höfðu misst starfsleyfi í einu landi en héldu því í öðru.
Í sjö af þeim 13 málum sem tekin voru til skoðunar taldi embættið tilefni til aðgerða. Sex starfsleyfi voru felld niður en eitt takmarkað.
Rannsóknin, sem Heimildin tók þátt í ásamt OCCRP, The Times, VG og fleiri fjölmiðlum, leiddi meðal annars í ljós sex staðfest dæmi um lækna sem höfðu gilt starfsleyfi á Íslandi þrátt fyrir að hafa verið bannað að starfa annars staðar.
Landlæknir segir að enginn læknanna sjö hafi verið við störf hér á landi þegar ábendingarnar bárust. Fyrri rannsókn Heimildarinnar sýndi þó að minnst tveir læknar höfðu starfað hér eftir að hafa misst starfsleyfi erlendis.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir