Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Skotmaðurinn ætlaði að láta lögregluna bana sér: „„Óhugnanlegt“ að horfa í augu ákærða“

Skotsár í rúðu
Skotsár í rúðu Mynd: Gunnar Gunnarsson

Fram­burður lögreglu­manna, sem mættu á vettvang þegar 44 ára karlmaður hóf skotárás í Dalseli á Egils­stöðum í lok ágúst í fyrra, ber ekki að öllu leyti saman, né saman við tækni­skýrslur. Þeir eru þó sammála um að skot­maðurinn hafi hvað eftir annað hundsað skipanir þeirra um að leggja niður vopn. Þá hafi staðið greinileg ógn af framferði mannsins.

Aðal­meðferð í málinu hélt áfram í dag í Héraðs­dómi Austur­lands. Karl­maðurinn er ákærður fyrir að hafa ógnað þáverandi sambýlis­konu sinni með skamm­byssu á heimili þeirra í Fellabæ þann 26. ágúst í fyrra. Eftir það ók hann yfir í Dalsel á Egils­stöðum þar sem fyrrum eigin­maður sambýlis­konu hans bjó ásamt tveimur sonum þeirra. Ruddist maðurinn inn vopnaður hagla­byssu og skamm­byssu og skaut úr þeim bæði innandyra og utan. Lögreglan mætti á staðinn og skipaði honum að leggja niður vopn. Endaði það á því að lögreglan skaut hann í kviðinn. Er hann meðal annars ákærður fyrir tvær manndrápstilraunir en hann neitar þeim parti ákærunnar.

Bar ekki saman um fjöldi skota

Þing­haldið var opið yfir manninum en lokað þegar fyrrum sambýlis­kona hans, synir hennar og fyrr­verandi eigin­maður báru vitni, var þing­haldið lokað. Austur­frétt sagði frá málinu í dag.

Lögreglu­maðurinn sem skaut þann ákærða bar vitni eftir hádegi. Sagðist hann hafa verið heima hjá sér í frívakt þegar hann boð um að vopnast vegna mögulegs byssu­manns og fara með ungri lögreglu­konu sem var ein á vakt. Sótti hún hann og fóru þau fyrst í Fellabæ. Um leið og þeim var ljóst að vopnaði maðurinn væri ekki lengur í Fellabæ heldur í Dalseli á Egils­stöðum, óku þau yfir á Egils­staði. Sagði hann að þau hefðu fengið tilkynningar um skot­hvelli í fleirtölu. Samkvæmt honum lögðu þau lögreglu­bílnum fyrir utan húsið og séð þar inni þann ákærða. Lögreglu­maðurinn hafi svo komið sér fyrir í vari við bílinn með skjöld fyrir framan sig og kallað til ákærða að nú væri vopnum lögregla mætt og sagt honum að leggja frá sér byssurnar. Við það hafi sá ákærði komið út úr húsinu og skotið tveimur skotum sem lögreglu­maðurinn hafi svarað með fjórum til fimm skamm­byssuskotum. Bætti hann því við að hann myndi ekki meira en eldglæringar og hávaða. Sagði hann ennfremur að þetta hefði gerst á 4-5 sekúndum en eftir þetta hafi sá ákærði farið aftur inn í húsið.

Verjandinn þráspurði lögreglu­manninn um framburð hans og ítrekaði lögeglumaðurinn hann aftur og aftur. Lögreglu­konunni og stjórn­andi rann­sóknar tækni­deildar lögreglu voru ósammála framburði lögreglu­mannsins. Sögðu þau að hann hafi ekki verið stað­settur á bakvið lögreglu­bílinn í byrjun. Hann hafi verið heldur nær húsinu eða við vélarhlíf jeppa sem stað­settur var í bíla­stæðinu sem snéri að götunni. Tóm skothylki úr byssu lögreglu­mannsins ásamt öðrum gögnum hjálpaði tækni­deildinni að komast að þeirri niður­stöðu. Lögreglu­konan staðfesti einnig þá stað­setningu. Þá sýndi vettvangs­rannsókn að lögreglu­maðurinn hafi skotoð 10 til 11 skotum í þessari lotu en ekki 4-5 líkt og hann hélt fram. Sagði hann að það væru fréttir fyrir sér.

Aukreitis var deilt um stað­setningu skot­mannsins í réttar­salnum í dag. Sagði lögreglu­maðurinn að hann hefði verið kominn út úr húsinu en sá ákærði sagðist hafa verið í forstofunni. Tækni­deildin komst að þeirri niður­stöðu út frá skot­hylkjum sem fundust á vettvangi, að maðurinn hafi annað hvort verið rétt fyrir innan eða utan dyra­gættina þó líklegra hafi hann verið fyrir innan.

Verjandi mannsins rengdi stað­hæfingu lögreglu­mannsins um að ákærði hafi skotið á undan. Máli sínu til stuðnings lagði hann fram matsgerð dóms­kvadds sérfræðings að utan, um tíma­setningu skota út frá myndbands­upptöku úr lögreglubíl. Samkvæmt henni skutu ákærði og lögreglu­maðurinn fyrstu skotum sínum á sömu milli­sekúndunni. Staðhæfði lögreglu­maðurinn aftur á móti að hann hefði aldrei skotið án þess að fyrst væri skotið á hann. Ekki gat rannsókn íslensku tækni­deildarinnar skorið úr um það. Lögreglu­konan unga sagði hinn ákærða hafa skotið fyrst að lögreglu­manninum en gat svo ekki svarað verjandanum, sagðist ekki geta tjáð sig um það.

Þá var einnig deilt um það í réttar­salnum í dag, hvort skotin hafi verið beint í áttina að lögreglu­manninum. Sagði hann manninn hafa hent byssunni upp og skotið á hann. Orðaði hann það þannig samkvæmt Austur­frétt að þetta hafi ekki verið „viðvörunar­skot í leit að gæs.“ Sagðist hann síðan hafa skotið á móti byssumanninu en sem betur fer hafi hvorugur hitt í látunum. Verjandi þýfgaði lögreglu­manninn um þetta atriði og ítrekaði hann að ákærði hefði vissulega beint byssunni að sér. Sagði lögreglu­konan það hafið yfir allan vafa að maðurinn hefði beint byssunni að þeim. Sagðist hún þó ekki muna nákvæmlega hvernig haldið var á byssunni.

Skotmaðurinn „alveg vitfirrtur“

Eftir þessa skothríð fór maðurinn aftur inn í húsið. Lögreglu­þjónn úr Fjarða­byggð sem kom á vettvang til aðstoðar og unga lögreglu­konan sögðu fyrir rétti að þau hefðu séð ákærða koma gangandi út úr húsinu með vopnin fyrir framan sig. Hann hafi gengið að lögreglubíl sem lagt var á götunni, þar sem lögreglu­maðurinn sem hafði skotið á hann var í vari við. Hafi hann kallað aðvörunar­orðum að manninum sem lagði vopn sitt á húdd bílsins. Skaut lögreglu­maðurinn þá manninn yfir vélar­hlífina.

Taldi lögreglu­maðurinn úr Fjarða­byggð, sem á þessu augna­bliki var búinn að draga sína byssu upp og kominn út á götuna, sagði þetta hafa verið einu leiðina. Sá ákærði hefði verið ógnandi og lögreglu­maðurinn ekki átt undankomu auðið. Sagði hann ennfremur að sá ákærði hefði sýnt það með framferði sínu að hann væri tilbúinn að skjóta á fólk.

Lögreglu­maðurinn sem skaut manninn sagði að það hafi verið „óhugnanlegt“ að horfa í augu ákærða sem hefði verið „alveg vitfirrtur“ og „ekki ætlað að hlýða fyrir­mælum.“ Sagðist hann ekki muna hvort hann hefði fengið upplýsingar um að skot­maðurinn hefði þau plön að láta lögregluna skjóta sig, eftir loka­skotið eða fyrir það. Sagðist hann ekki hafa vitað hvað maðurinn var að hugsa en að lögreglan hafi ekki haft aðra valkosti en að skjóta hann. Hjá verjanda kom fram að hljóð­upptökur úr fjarskipta­miðstöð lögreglu staðfesu að upplýsingar um fyrirætlun skot­mannsins hefðu borist áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá