Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Húsfélag fundar um meintan kattarskít: „Það er verið að greina hvaða köttur á hvaða skít“

Köttur: Mynd úr myndabanka
Köttur: Mynd úr mynda­banka

Upp er komið mál sem skekið hefur íbúahóp í Grafavogi. Dular­fullur kúkur fannst á útisvæði sameignar í blokk einni og er nú eigandans leitað logandi ljósum. Skiptar skoðanir eru um hverskyns kúkur sé á ferðinni.

Heitar umræður sköpuðust á íbúa­grúppu á Facebook nýverið eftir að meðlimur húsfélags brýndi fyrir fólki að taka upp kúk gæludýra sinna í garðinum við blokkina sem íbúarnir búa í. Smá saman hitnaði umræðan og voru skiptar skoðanir um það hvort hundar eða kettir væri að skilja eftir sig skít hér og þar. Barst svo talið að kúkum á svölum sem ku vera vandamál í blokkinni.

Deilan

„Það er svo mikið af lausum köttum á svölunum sem maður sér á hverjum degi, veit ekki hversu oft ég þarf að setja sama köttinn út þegar ég er að lofta í gegn íbúðina með svalir og útihurð opna. Katta­skítur er nefnilega á stærð við skít úr smáhundi,“ skrifaði nokkuð pirraður karlmaður í hópnum.

Konan sem maðurinn var að tala við svaraði að bragði: „Það er mjög óvenjulegt að kettir velji stein­steypt stæði frekar en gras/sand osfrv. Annars hef ég aldrei séð jafn stóran kattar­skit ef þetta er það.“

Karl­maðurinn svaraði og var bara nokkuð léttur á því: „Þú tekur myndir næst og setur 100 krónur fyrir hliðin á til saman­burðar en nei því miður skíta kettir útum allt, barna­vagna, geymslur þegar gluggar eru opnir og í stiga.“

Þessu tekur annar karlmaður í hópnum óstinnt upp: „Kettir kúka vanalega ekki í barna­vagna, né geymslur, frekar í blóm eða álíka hef aldrei nokkurntíman átt kött sem gerir þannig lagað og hef alltaf átt ketti.“

Enn einn karlmaður tjáði sig og var nokkuð harðorður: „Lausa­ganga katta ætti að sjálfsögðu að vera bönnuð. Lausa­ganga fòlks sem pikkar ekki upp skítinn hjá hundunum sínum líka.“

Þá kemur kona ein með athugasemd þar sem hún furðar sig á þessu öllu saman: „Furðulegt að kaupa sér húsnæði þar sem lagt er áhersla á að dýr séu leyfð og kvarta svo á íbúa­síðunni yfir lausa­göngu katta.“

Svar barst fljótlega frá manni í hópnum: „Ekkert sem sagði þegar ég keypti íbúðina að nágrannarnir tæku ekki upp skítinn eftir gæludýrin sín. Hef ekkert á móti gæludýrum. En að nágrannarnir geti ekki hugsað um þau eða pikkað upp skítinn eftir þau er annað.“

Konan svaraði: „Algjör­lega sammála að þér þar, enda er ég ekki að tala fyrir því að skilja eftir hundaskít. Þið nefnið báðir lausa­göngu katta sem hefur lengi verið lögleg. Mér persónu­lega finnst undarlegt að flytja þangað sem mikið af fólki býr og þar sem eru aðeins tvær reglur, önnur þeirra verandi sú að gæludýra­hald er undir öllum kringum­stæðum leyft og kvarta síðan yfir köttunum sem gera engum neitt annað en að vera lausir. Gæludýr=kettir, kettir mega vera lausir en ef þið hafið gaman að því að kvarta yfir því á facebook þá get ég lítið stoppað ykkur.“

Kattar­kona lagði einnig orð í belg: „Ég hef bara séð endalaust af hundaskít þegar ég er að labba með kisuna mína. Hún þvertekur fyrir það að kúka og pissa úti og heldur venjulega í sér þar til við komum inn. Flestar kisur hrifnastat af því að geta mokað vel yfir kúkinn sinn, svo ef það er á miðju ósönduðu/-molduðu svæði er líklegra að það sé eftir hund.“

Ljósmyndin

Síðan birti kona nokkur ljósmynd.

„Þetta blasti við mér þegar ég fór út í morgun. Ég tók þessa mynd til að bæta við þessa umræðu.

Hinn meinti katt­ar­kúkur

Þetta er í þriðja skiptið á mjög stuttum tíma sem það er skítur nákvæmlega á þessum stað og höfum við þurft að hirða hann upp. Ég hef ekkert á móti kisum og finnst þær mjög sætar. Samt svolítið leiðinlegt að þurfa hirða upp skít frá dýri sem maður á ekki þar sem það er enginn sem labbar þarna alveg út á enda nema við og fólkið við hliðina (enginn bruna­stigi út á enda). Og enn verra ef þetta er eftir hund og hunda­eigandi ákveður að skilja þetta eftir,“ skrifaði konan en kúkinn fann hún á steyptu útisvæði sameignarinnar.

Ein konan svaraði að bragði: „Mjööög skrítin hegðun hjá kisu. Ef þetta er alltaf á sama stað þá er þetta líklegast sama kisan… og kisan er líklega ekki að komast lengra/alla leið út í garð. Þið sem eigið kisur og eigið heima á efri hæðunum ættuð kannski að hugsa að halda á þeim út í garð á morgnanna eftir nóttina svo þær komist örugglega alla leið.“

Mannlíf ræddi við íbúa blokkarinnar um stóra kattakúka­málið, sem segist hafa heyrt af því að húsfélag blokkarinnar hafi fundað sérstak­lega um kúkástandið á svæðinu. Þykir íbúanum þær 14.000 kr sem hann borgar á mánuði í húsfé­lagið, ekki nýtast sem skyldi ef fundað sé um gæludýra­kúka á meðan þarfari mál sitji á hakanum. „Það er ekki verið að byggja hleðslu­stöðvar, vegurinn er ekki lagaður, það er verið að greina hvaða köttur á hvaða skít.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning