Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Látinn skákmeistari, dularfullur jakki og draumur sem fór úr böndunum

„Áfram held ég að dreyma um menn sem eru ekki þeir sem þeir þykjast vera“

Egill Helgason
Egill Helgason Egill var blekktur en þó aðeins í draumi

Fjölmiðla­maðurinn Egill Helgason segir frá undarlegum draumi í Facebook-færslu sem vakið hefur kátínu í morguns­árið.

Í drauminum sat Egill til borðs með manni sem hann taldi vera rússneska skák­meistarann Viktor Kortsnoj. Það var ekki fyrr en síðar í draumnum sem Egill áttaði sig á því að maðurinn var svika­hrappur sem þóttist vera hinn kunni skák­meistari.

„Áfram held ég að dreyma um menn sem eru ekki þeir sem þeir þykjast vera,“ skrifar Egill í færslunni.

Í draumnum sat Egill í veislu við Laugaveg ásamt manni sem hann taldi vera Kortsnoj. Skák­áhuga­maðurinn Páll Magnússon sat einnig við borðið. Egill segir að vel hafi farið á með sér og hinum meinta skák­meistara og að hann hafi rifjað upp ýmis afrek hans á skák­sviðinu.

Hann hafi þó ekki treyst sér til að ræða einvígi Kortsnojs við Jóhann Hjartarson, sem Kortsnoj tapaði.

Reyndi að selja honum dýran jakka

Eftir veisluna fór Egill út með manninum, sem ætlaði að fá sér sígarettu. Kortsnoj var þekktur fyrir miklar reykingar. Þá tók maðurinn hins vegar upp á því að reyna að selja Agli skinn­jakka sem hann sagði kominn alla leið frá Jakútíu.

Jakkinn átti að vera ómetanlegur og ætlaður konu fremur en karli. Egill sagðist telja að eiginkona sín gæti haft áhuga á flíkinni, en fór að efast þegar verðið kom í ljós.

„150 evrur, ég spurði aftur – já það var prísinn,“ skrifar Egill.

Verðið þótti honum óvenju lágt og þegar hann skoðaði jakkann nánar komst hann að því að hann var úr ódýru gerviefni og illa saumaður.

Þegar þeir gengu aftur inn á veitinga­staðinn rann upp fyrir Agli að maðurinn væri alls ekki Viktor Kortsnoj heldur yngri maður sem þóttist vera hann. Kortsnoj væri enda látinn.

Ráðið í drauminn

Draumurinn tók síðan enn óvæntari stefnu. Egill lýsir því hvernig húsið, sem minnti hann á hús Máls og menningar, tók að beyglast saman. Hann komst hvorki fram né aftur.

„En það er önnur saga,“ segir Egill að lokum.

Fjölmargir hafa líkað við færslu Egils og hlegið með honum að drauminum en frétta­þulurinn og fjölmiðla­konan María Sigrún Hilmars­dóttir réði drauminn í eftir­farandi athugasemd:

„Jakkinn er ESB. Kortsnoj þjóðar­atkvæða­greiðslan. Hús Máls&Menningar er Ísland“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“