Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hjónin fóru áður þá leið sem Landspítali bendir á: „Fjöldi innskráninga höfðu verið þurrkaðar út“

Gunnar Árnason og Hlédís Sveinsdóttir
Gunnar Árnason og Hlédís Sveins­dóttir

„Það sem er sérstak­lega athyglis­vert er að við erum búin að fara þessa leið sem sjúkra­húsið leggur til. Við gerðum það árið 2015,“ segir Gunnar Árnason, vegna bréfs sem hann og Hlédís, eiginkona hans, fengu frá lögfræðingi Land­spítala, þar sem þeim var hótað lögsókn fyrir að setja sig í samband við heilbrigðis­starfsmenn sem skráðir eru með fjöldann allan af uppflettingum í sjúkra­skrám þeirra. Hjónin sögðu sögu sína í viðtali við Mannlíf í maí síðastliðnum.

Í bréfi frá Ingibjörgu Lárusdóttur, lögfræðingi spítalans, segir meðal annars: „Ég vil vinsam­lega benda ykkur á að ákveðnar leiðir eru til að óska eftir rannsókn mála.“ Þar á eftir koma ábendingar um hvert beina megi málum af þessum toga. Þar er tiltekið að senda skuli athuga­semdir um uppflettingar í sjúkra­skrá á Eftirlits­nefnd um rafræna sjúkra­skrá og/eða Persónu­vernd. Auk þess megi senda athuga­semdir um veitingu heilbrigðis­þjónustu á spítalann eða embætti land­læknis.

Nöfn vantaði í fyrri skrána

Gunnar segir í samtali við Mannlíf að þau Hlédís hafi farið slíka leið árið 2015, þegar grunur þeirra vaknaði fyrst um að eitthvað kynni að vera óeðlilegt í tengslum við uppflettingar í sjúkra­skrám þeirra. Þau telja tilhlýðilegar skýringar ekki hafa komið fram.

„Enda er þetta ekki rétt skrá sem við fengum þá. Seinna fengum við aðra skrá, mun lengri, sem innihélt uppflettingar og nöfn sem höfðu verið fjarlægð úr hinni skránni.“ Hann segir þau ekki hafa fengið skýringar á hinum ólíku uppfletti­skrám. Seinni skráin hafi komið inn um lúguna heima hjá þeim, í umslagi frá Land­spítala, í formi USB-kubbs.

Gunnar segir þau hafa sent fyrir­spurn á aðstoðar­framkvæmda­stjóra lækninga árið 2015. „Áhyggjur okkar voru teknar til skoðunar og því lýst í tölvupóst­samskiptum að þær hefðu verið teknar mjög alvarlega. Málið hafi verið skoðað ofan í kjölinn, eins og tekið var fram að væri ávallt gert þegar slíkar áhyggjur kæmu fram. Í tölvu­pósti erum við síðan full­vissuð um það að eftir þessa skoðun þeirra þurfum við ekkert að hafa neinar áhyggjur af því að neinn óviðkomandi sé að fara inn í okkar sjúkra­skrár. Það hafi verið gengið úr skugga um það, svo við getum bara sofið róleg.“

Gunnar segir að á þessum tíma­punkti hafi hundruðir innskráninga þegar verið framkvæmdar og því ljóst að það hafi verið sýnilegt þeim sem skoðaði málið á sínum tíma.

„Formaður þessarar sjúkraskrár­nefndar, sem á að taka á móti svona málum, er sami aðili og var framkvæmda­stjóri lækninga á þeim tíma sem við sendum okkar erindi.“ Gunnar segir hann ávallt hafa verið inni í öllum tölvupóst­samskiptum.

„Okkur fannst á sínum tíma dálítil fljóta­skrift á þessu, að fá þessu svarað bara svona í stuttum tölvu­pósti, og að það ætti að sannfæra okkur. Seinna sama ár sögðu kunningjar okkar, sem starfa innan heilbrigðis­kerfisins, að við gætum fengið „log-in“ skrána afhenta, sem var ekki gert þegar við spurðumst fyrir um málið fyrst. Við náðum síðan loksins að toga hana út í lok árs 2015. Það er skráin sem við fengum fyrst, sú sem inni­heldur ekki nálægt því allar uppflettingar sem skráin sem við fengum seinna senda gerir.“

Hlédís og Gunnar í við­tali við Reyni Trausta­son í maí.

Furðuðu sig á lækni á líknardeild

Gunnar lýsir því að þegar þau hjónin hafi fengið fyrri skrána afhenta, hafi þau rekið augun í manneskju sem þeim þótti skrýtið að væri að fara inn í sjúkra­skrá þeirra.

„Þannig að við ákváðum að gera athugasemd við þá manneskju; sérfræði­lækni af líknar­deild. Það var bara út af þessu orði, líknar­deild – við rákum bara augun í það. Þessi kona hafði aldrei sinnt okkur. Þá gerðum við aftur nákvæmlega það sem nú er verið að segja að við eigum að gera, í þessu hótunar­bréfi. Við semsagt tölum ekki við lækninn. Við sáum hver þetta var, vitum hver hún er, en við sendum henni ekkert bréf, vegna þess að við fórum bara í sjúkra­húsið sjálft. Sömu menn sátu þá fyrir svörum og í byrjun árs 2015, framkvæmda­stjóri og aðstoðar­framkvæmda­stjóri lækninga. Þeir benda okkur á að í þessari skrá sé hún bara með eina línu; eina uppflettingu. Þeir segjast hafa rætt við þennan lækni og hún hafi gefið þá skýringu að hún hafi bara slegið ranga kennitölu, sem olli því að hún var þarna komin inn í ranga sjúkra­skrá. Hún hafi strax farið út úr henni aftur og því hafi hún í rauninni ekki farið inn í skrána. Þeir staðhæfðu það, samkvæmt því sem hún hafði sagt þeim þegar þeir spurðu hana út í þetta.“

Samkvæmt Gunnari fóru þau hjón á fund framkvæmda­stjóra og aðstoðar­framkvæmda­stjóra vegna málsins, til þess að fara fram á tilhlýðilegar skýringar.

„En þarna vissum við ekki að þetta væri fölsuð skrá. Þessu máli var lokið af þeirra hálfu og við komumst ekkert lengra með það.“ Gunnar bendir á að þarna hafi þau hjónin því ávallt verið að fylgja þeim ferli sem lagt er til í bréfinu sem þau fengu sent nýlega.

„Síðan kemur í ljós þegar við fáum raun­verulegu skrána, í fullri lengd, að fjöldi annarra innskráninga þessarar sömu konu höfðu verið þurrkaðar út í fyrri skránni. Raun­verulega skráin sýnir fleiri línur og að hún fór í raun og veru inn í sjúkra­skrána.“

Ekki óþekkt að læknar opni sjúkraskrár í misgripum

Það skal tekið fram að ekki er óþekkt að læknar opni sjúkra­skrár fólks í misgripum, til að mynda með því að slá inn ranga kennitölu. Það er þó erfitt fyrir leikmann að átta sig á því hvernig slíkt geti ítrekað átt sér stað hjá sama aðila, og þá hvort það þurfi ekki að svara sérstak­lega fyrir það og gefa tilhlýðilegar skýringar.

Einnig getur sama manneskja verið með ótal uppflettingar í sömu sjúkra­skrá, því hver hreyfing í skránni skilur eftir sig eitt fótspor. Þannig verður til fótspor við opnun sjúkra­skrár, annað ef lyf er skrifað út, enn annað ef leita þarf eftir greiningu eða skrá greiningu, og þar fram eftir götunum. Það verður þó að teljast undarlegt að ótal uppflettingar finnist í sjúkra­skrá einstaklings, undir nöfnum heilbrigðis­starfsmanna sem hafa ekki annast viðkomandi eða starfað á deild sem sjúklingur hefur fengið umönnun á.

„Þannig að við getum auðveldlega sýnt fram á að við höfum þegar farið þá leið sem þau benda á. Það gekk nú svona,“ segir Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá