Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fjögurra milljarða íþróttahús Garðbæinga er myglað: „Hrikalegt að sjá þetta“

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki með beinum hætti.

Myglu má finna undir gervi­grasinu í Miðgarði, hinu nýja íþrótta­húsi Garðbæinga sem kostaði bæjar­félagið fjóra milljarða í framkvæmd. „Hrikalegt að sjá þetta,“ sagði bæjar­fulltrúinn Ingvar Arnarsson þegar flæddi inn í húsið í mars­mánuði síðastliðinum en talið er að myglu­sveppurinn hafi Þannig borist inn í húsið.

Sérfræðingar hafa nú fundið út að sveppagró sé að finna í gúmmí­undirlagi gervi­grassins í Miðgarði. Samkvæmt fundar­gerð í bæjarráði er beðið frekari niður­staðna um hversu stórt vanda­málið er en líklegt er talið að fletta þurfi grasinu upp og skipta um undir­lagið.

„Sam­kvæmt ráðlegg­ing­um sér­fræðinga verður jarðvegs­sveppn­um haldið niðri með reglu­legri sótt­hreins­un þangað til gúmmí­und­ir­lag verður fjar­lægt. Fyrsta sótt­hreins­un fór fram laug­ar­dag­inn 15. októ­ber. Reglu­leg sótt­hreins­un mun fara fram á þeim tíma sem ekki eru æf­ing­ar eða kennsla þar sem gervi­grasið er og tryggt verður að öll um­merki sótt­hreins­un­ar verða horf­in áður en notk­un hefst á ný eft­ir hverja hreins­un,“ segir í fundar­gerðinni og er þar lögð áhersla á að heilsu gesta hússins hafi ekki verið ógnað.

Morgun­blaðið greindi frá myglunni í Miðgarði en netverjar ráku augun í hversu fimlega fjöl­miðilinn skautaði framhjá orðinu mygla í umfjölluninnni. Á Twitter veltir Elmar Torfason fyrir sér hvers vegna það hafi verið gert. „Ætli það hafi eitthvað með pólitík að gera að Morgun­blaðið kýs að nefna það sveppagró sem vex í þessu glæsilega knattspyrnu­húsi í Garðabæ en ekki myglu, eins og þegar eitthvað sambærilegt kemur upp í skóla í Reykjavík? Annað hljómar sakleysislegra en hitt,“ segir Elmar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning