Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fleiri regnbogafánar skornir niður – Efna til samstöðu til að „umlykja hvort annað í kærleika“

Regnboga­fánar, einkennis­merki hinsegin samfélagsins, voru skornir niður við bensínstöð Orkunnar í Suður­felli í Breið­holti í nótt, að því er fram kemur á RÚV. Þetta gerist í kjölfar fleiri svipaðra skemmdar­verka sem beinast gegn tákn­myndum hinsegin­leika.

Markaðs­stjóri Orkunnar segir í samtali við frétta­stofu RÚV að leiðinlegt sé að upplifa slíkt.

Fleiri regnboga­fánar hafa verið skornir niður nýlega. Þannig voru fánar skornir niður á Hellu í síðustu viku og um síðustu helgi voru slíkir fánar, sem flaggað var fyrir utan Hjalla­kirkju í Kópavogi, skornir niður og eyði­lagðir í skjóli nætur. Í samtali við Frétta­blaðið sagði Sunna Dóra Möller, sóknar­prestur í Hjalla­kirkju, augljóst að um haturs­glæp væri að ræða. Hún sagðist finna fyrir því að umræðan í samfélaginu í tengslum við hinsegin málefni hefði breyst. „Það er einhvern veginn meiri mótstaða og auknir fordómar í samfélaginu,“ sagði hún.

Í þessari viku voru síðan unnin skemmdar­verk á skiltum tengdum hinsegin dögum.

Í ljós hefur komið að fjórtán og fimmtán ára unglingar voru að verki þegar regnboga­fánarnir voru skornir niður á Hellu. Forstöðu­kona Hinsegin félags­miðstöðvar Samtak­anna ’78 og Tjarnarinnar sagði nýverið að fordómar fyrir hinsegin fólki hefðu aukist meðal unglinga.

Samtökin ’78 hafa efnt til svokallaðrar samtaka­samstöðu, laugar­daginn 27. ágúst. „Við erum að fá svo mikið af leiðinlegum og ljótum fréttum undan­farið að vafalaust erum við öll orðin dálítið þreytt á bæði sál og líkama. Þá eru góð ráð að hittast!“ segir í lýsingu viðburðarins á Facebook. „Hittumst, tölum saman, tökum utan um hvort annað, ventum, trúnóumst, hlustum á músík, fáum okkur drykk og gerum það sem við gerum best: Að umlykja hvort annað í kærleika og fegurð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið