Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Töluvert tjón á álveri Alcoa Fjarðaráls í veðurofsanum: „Við vorum án rafmagns í um tvo tíma“

Álver Alcoa Fjarðaráls
Álver Alcoa Fjarð­ar­áls Mynd: Alcoa.com

Ljóst er að töluvert tjón hafi orðið á álveri Alcoa Fjarðaráls við Reyða­fjörð í skak­veðrinu í fyrradag.

Samkvæmt Austur­frétt er ekki enn alveg ljóst hversu miklar skemmdir urðu á byggingum Alcoa Fjarðaráls á Reyðar­firði í bálviðrinu í fyrradag. Enn er áhersla á að koma starfseminni í samt lag eftir rafmagns­leysi.

„Það er ljóst að talsvert foktjón varð á álverinu, aðallega á klæðningum sem hafa losnað af byggingum. Þetta er samt ekki risatjón eins og sums staðar, hér vantar engar hliðar,“ sagði Dagmar Ýr Stef­ánsdóttir, upplýsinga­fulltrúi álversins í samtali við Austur­frétt í gær.

Hins vegar er ljóst að töluvert tjón varð í kringum Mjóeyrar­höfn og á Hrauni en er í næsta nágrenni við álverið. Þá varð einnig mikið tjón í þétt­býlinu á Reyðar­firði.

Sagði Dagmar að þeim tilmælum hafi verið komið til starfs­fólks álversins að halda sig innandyra í fyrradag en þar var nóg að gera eftir að rafmagnið fór af álverinu.

„Veðrið fyrir utan var eitt, annað var rafmagns­leysið innanhúss. Slíkt skapar mikið álag hér. Við vorum án rafmagns í um tvo tíma. Síðan tekur tals­verðan tíma að koma fram­leiðslunni á rétt ról. Það er enn okkar aðal­áhersla, þess vegna höfum við ekki kannað skemmdirnar nákvæmlega enn. Við gerum það þegar veðrið verður að fullu gengið yfir. Okkur er efst í huga hrós til starfs­fólksins sem stóð vaktina. Það var meira en að segja það og fólkið stóð sig frábærlega. Eins er vert að hrósa Landsneti og Lands­virkjun fyrir skjót viðbrögð þegar rafmagnið fór,“ sagði Dagmar Ýr.

Þá segir hún að það bæti einnig í álagið að vegna lokunar vegarins yfir Fagradal hafi vakta­skiptin í álverinu ekki geta farið fram með eðlilegum hætti, „Við höfum gott fólk á fjörðunum sem hjálpar til við að leysa þá af sem ekki hafa komist til vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp