Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Í hvernig þjóðfélagi búum við?“

Björn Birgisson.
Björn Birg­is­son.

Margir hafa undan­farið velt fyrir sér á hvaða leið íslenskt samfélag sé um þessar mundir. Einn þeirra er Björn Birgisson, þjóðfélags­rýnir í Grindavík, en hann tekur saman á Facebook nokkur helst fréttamál undan­farið og spyr „Í hvernig þjóð­félagi búum við?“

Björn skrifar:

„**********

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Fram­sóknar, viðhefur rasísk ummæli í vitna viðurvist og vanvirðir svo forsætis­nefnd Alþingis með því að neita að mæta hjá nefndinni og gera grein fyrir máli sínu. Bjarni Benediktsson hvatti hann ekki til að mæta, enda Sigurður bara ráðherra en ekki blaða­maður.

**********

Birgir Ármannsson blessaði þá vanvirðingu og felldi bara niður frekari mála­rekstur, sami Birgir og blessaði kosninga­svindlið í Borgarnesi í fyrra­haust með þeim orðum að það hafi ekki breytt vilja kjósenda eða úrslitum. Það hafði áhrif á 10 þingmenn og vilja kjósenda þeirra.

**********

Lögreglan á Akureyri er gengin í skæruliða­sveit Samherja og tekur nú fyrir alla þá sem voga sér að gagnrýna starfs­hætti Samherja jafnt innanlands sem utan og formaður Sjálfstæðis­flokksins telur sjálfsagt og eðlilegt að Akureyrar­löggan brjóti lög um blaðamenn sem hann sjálfur setti.

**********

Kynferðis­glæpamenn æpa skæl­brosandi „ást og friður“ og biðjast innilega afsökunar á brotun sínum og guma af því að þeir séu nú aldeilis orðnir flottir og breyttir menn. Ást og friður og fyrir­gefðu svo innilega að viðurstyggilegar fýsnir mínar eyðilögðu lífið þitt.

**********

Nú er að því unnið hörðum höndum að skýrslunni um einka­væðingar­tilburðina við söluna á Íslands­banka verði stungið undir stól og aldrei birt í heild sinni. Frestun birtingar á frestun ofan bendir eindregið til þess að þöggunar­tilburðir séu á teikniborðinu.

**********

Lilja Alfreðs­dóttir lýsir því skæl­brosandi yfir að hún hafi gert bestu vinkonu sína að þjóð­minjaverði, hún sé svo hæf og flott í starfið. Allir sem hafa faglega þekkingu á safna­starfi í landinu eru Lilju ósammála. Hefði kannski átt að auglýsa starfið og henda svo vinkonunni í starfið segir Lilja nú!

**********

Ríkis­lögreglu­stjóri þarf að segja sig frá fyrstu rannsókn á áformum um hryðju­verk hérlendis því faðir hennar er vopna­safnari og vopnasali og hans nafn kemur fram í rannsókn málsins, en líklega héldu flestir íslendingar að hérlendis fyrir­fyndust hvorki vopna­safnarar né vopna­salar.

**********

Erfitt væri að skálda þennan skít – en hann er víst enginn skáld­skapur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning