Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dóttir Erlu var aðeins 11 vikna: „Ég hafði aldrei brotið af mér áður og var komin með nýfætt barn“

Erla Bolladóttir –
Erla Bolla­dóttir – Mynd: Kazuma Takigawa

Í nýju helgar­blaði Mannlífs segir Erla frá því hvernig hún lærði á póst­ávísanir til þess að taka út peninga. Hún vann á þessum tíma hjá Ritsímanum og hún nýtti sér vitneskju sína og kunnáttu og tók þannig ólöglega út peninga. Síðar var hún sett í gæslu­varðhald út af því máli. Hún segist hafa orðið skelfingu lostin og sagt eins og var og svo var hún sett aftur inn í klefann og látin vera þar í nokkra daga.

Dómur féll.

„Ef það hefðu bara verið póstsvikin þá hefði ég fengið skilorðs­bundinn dóm af því að ég hafði aldrei brotið af mér áður og var komin með nýfætt barn. Þannig að ég veit ekki hvaða dóm ég fékk fyrir það því ég fékk þrjú ár fyrir meinsæri.“

„Getur verið“ og „manstu hvort“

Þarna er komið að Guðmundar- og Geirfinns­málinu. Hver er fysta snertingin þar?

„Þegar þeir voru loksins búnir að taka mig til yfirheyrslu þá var ég tilbúin til að segja þeim allt. og ég bara fór beint í það. Og það var einhverra klukku­tíma yfirheyrsla og síðan var allt vélritað og svo mátti ég fara. Þá sagði Sigur­björn Víðir: „Það er kannski ein spurning í viðbót.“ Ég var látin setjast niður aftur og var ofsalega róleg,“ segir Erla sem segir að Sigur­björn Víðir hafi spurt hvort hún þekkti Guðmund Einarsson. „Ég gat nefnt Guðmund Einarsson sem ég þekkti en það var ekki hann. Og svo byruðu þeir að spyrja mig.“

Þeir sögðu að þetta væri eitt­hvað sem þeir þekktu í sínu starfi og að þeir gætu hjálpað mér að rifja þetta upp.

Hún segir að yfirheyrslan hafi tekið nokkra klukku­tíma. „Þeir sögðu mér að þegar fólk yrði vitni að einhverju hræðilegu og fengi áfall þá græfi það minninguna og gæti ekki munað. Þeir sögðu að þetta væri eitthvað sem þeir þekktu í sínu starfi og að þeir gætu hjálpað mér að rifja þetta upp. Þá voru þeir búnir að spyrja mig allt út í tímabilið þegar Guðmundur hvarf og hvað ég hafði verið að gera þá og alveg niður í liggur við klósett­ferðirnar.“

Dóttir Erlu og Sævars var 11 vikna á þessum tíma og hafði Erla miklar áhyggjur. „Ég vissi ekki hvar hún var og þeir gátu ekki sagt mér hvar hún væri. Hún var það eina sem skipti máli í lífinu.“ Viðtalið við Erlu má lesa í heild sinni í nýju helgar­blaði Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning