Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Breyta reglum um bílpróf

Þá er talið að breytingin muni draga úr álagi

Bílar í umferð
Bílar í umferð Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Eyjólfur Ármannsson innviða­ráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini sem fela meðal annars í sér að læknis­vottorðs verður ekki lengur sjálf­krafa krafist vegna endurnýjunar ökuskírteinis fyrr en við 75 ára aldur. Áður tók sú krafa gildi við 65 ára aldur.

Fram kemur í tilkynningu frá stjórn­völdum að breytingin hafi verið unnin í samvinnu við heilbrigðis­ráðuneytið og sé markmið hennar að einfalda umsóknar­ferlið og gera það mannlegra og nútímalegra. Heilbrigðis­ráðuneytið bendir á að heilsa fólks hafi almennt batnað samhliða hækkandi lífaldri og að reynslan sýni að læknis­vottorð hafi nær undan­tekninga­laust verið samþykkt hjá þessum aldurs­hópi við endurnýjun ökuskírteina.

Þá er talið að breytingin muni draga úr álagi á heilbrigðis­kerfið með því að fækka óþarfa vottorða­skrifum heimilis­lækna og auðvelda eldri ökumönnum ferlið við endurnýjun ökuréttinda.

Áfram gildir þó megin­regla umferðar­laga um að ökumenn skuli ávallt tryggja að þeir séu líkamlega og andlega færir um að stjórna ökutæki.

Fleiri breytingar voru einnig gerðar á reglu­gerðinni. Þar á meðal færast tímamörk til að ljúka verklegu ökuprófi úr sex mánuðum í tólf mánuði eftir að bóklegt próf hefur verið staðist. Þá er kveðið á um fimm ára gildis­tíma starfs­leyfa ökuskóla og skýrari reglur um endur­menntun atvinnu­bílstjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra