Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Meðstofnandi Google talinn tengjast Jeffrey Epstein en finnst ekki – Hvar er Larry Page?

Larry Page
Larry Page Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinar bandarísku Jómfrúar­eyjur hafa ekki náð að stefna meðstofnanda Google, Larry Page, vegna mögulegra tengsla hans við barna­níðinginn Jeffrey Epstein, vegna þess að hann finnst ekki, samkvæmt skjölum alríkisdóms­stóla.

Daily Mail segir frá því að dómsmála­ráðherra bandarísku Jómfrúar­eyja segi að rann­sakendur hafi reynt að finna út hvar Page býr, svo hægt væri að birta honum stefnuna. Eftir að þeir fundu fjögur möguleg heimiiisföng, sem engin voru gild, hafa saksókn­arar farið fram á að alríkis­stjórnin leyfi að Page verði boðaður í gegnum Alphabet, móður­félag Google, þar sem hann situr enn í stjórn þess.

Á sjálfur einkaeyjur

Tillagan um að stefna Page með „öðrum hætti“ var lögð fram síðastliðinn fimmtudag og er hluti af máli þar sem Jómfrúar­eyjar halda því fram að JPMorgan hafi auðveldað Epstein að halda úti kynlífsmansals­hring með því að sjá um greiðslur hans til samverka­manna sinna og fórnar­lamba.

Dvalar­staður Page er að mestu á huldu en í desember var sagt að hann hefði eytt mestum hluta Covid-faraldursins á einum af hans einka­eyjum sem farið hafa fjölgandi innan bandarísku Jómfrúar­eyja.

Page keypti eyjuna Hans Lollik og minni nágranna­eyju hennar, Little Hans Lollik, árið 2014 fyrir 23 milljón dala eða um einn milljarð króna.

Hans Lollik

JPMorgan

Saksókn­arar segja að Epstein „kunni að hafa vísað eða reynt að vísa Page á JPMorgan.“

Samkvæmt skjali í blaðinu segir að Larry Page, meðstofnandi og meðeigandi Alphabet Inc, sem er móður­félag Google, sé eigna­mikill einstaklingur sem Epstein hafi mögulega vísað eða gert tilraun til þess að vísa á JPMorgan.

Page er einn af þó nokkrum viðskipta­mönnum og milljarðamæringum sem hin Karabíska ríkis­stjórn hefur stefnt vegna ásakana um tengsl við JPMorgan og Epstein. Saksókn­arar Jómfrúa­eyja höfðu áður stefnt fyrrum framkvæmdar­stjóra JPMorgan, Jes Staley, hinum meðstofnanda Google, Sergey Brin og fyrrum framkvæmdar­stjóra Disney, Michael Ovitz.

Málið kom upp aðeins vikum áður en núverandi forstjóri JPMorgan, Jamie Dimon verður látinn taka pokann sinn, síðar í mánuðinum.

Bankinn er sakaður um að sjá um 55 reikninga Epsteins á árunum 1998 til 2013, mörgum árum eftir að hann var fyrst hand­tekinn fyrir að níðast á fjórtán ára stúlku árið 2006.

Þá hefur fjöldi kvenna sakað Epstein um kynferðis­lega misnotkun sem fram fór meðal annars á einkaeyju hans, Little St. James, sem notuð var sem miðstöð mansals­hrings þar sem Epstein flutti inn stúlkur undir lögaldri svo hægt væri að misnota þær kynferðislegar. Fjöldi þekktra manna áttu vingott við Epstein, þar á meðal Andrés breta­prins, Bill Gates, Stephen Hawkins og Bill Clinton.

Jeffrey Epstein lést í fang­elsi 2019 en opin­beru dán­ar­or­sökin er sjálfs­víg en margt bendir til morðs.

Stephen Deckoff, athafna­maður og fjár­festir hefur nú keypt eyju Epsteins og hyggst breyta henni í lúxus dvalar­stað.

Árið 2021 var sagt frá því í fréttum á Fiji að Larry Page hafi gefið Fiji-eyjum Covid-sjúkra­gögn í faraldrinum, samkvæmt miðlinum Insider en fréttin hvarf á dular­fullan hátt. Þar sást Page á eyjunni Namotu. Heimildir sögðu Insider að heilbrigðis­yfirvöld á Fiji hafi beðið um að fréttin yrði tekin niður, því upplýsingarnar hafi aldrei átt að koma fyrir sjónir almennings.

Enn er óvíst hvar Page er stað­settur síðan hann var á Fiji en leitin heldur áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár