Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Aukið ofbeldi kemur Ólínu ekki á óvart: „Nú síðast í gær varð ég að slökkva á Ríkissjónvarpinu“

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir

Ólína Kjerúlf Þorvarða­dóttir, fyrrum alþingis­maður, segir sér ekki koma á óvart að ofbeldi á meðal ungmenna sé að aukast. Í færslu á Facebook síðu sinni segir Ólína börn verða fyrir skefja­lausu ofbeldis­innrætingu. Hún tekur sem dæmi, tölvu­leiki, kvik­myndir og samfélags­miðla á borð við TikTok. „Nú síðast í gær varð ég að slökkva á Ríkis­sjónvarpinu þegar mér var boðið upp á að „skemmta“ mér yfir saka­málamynd þar sem verið var að búta fólk í sundur, plokka úr því augun og festa þau á band,“ segir Ólína í færslunni.

Færsluna er hægt að lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Í nótt voru tveir 14 ára unglingar hand­teknir eftir að hafa ráðist af handahófi á fólk í miðborginni og veitt því áverka, svo flytja þurfti tvennt á bráða­móttöku. Fréttinni fylgdu þær upplýsingar að ofbeldi meðal ungmenna væri að aukast.

Ég er satt að segja ekki mjög undrandi á þessu, svo óæskilegt sem það er og uggvekjandi. Ef við lítum í kringum okkar á þá skefja­lausu ofbeldis­innrætingu sem börn og ungmenni verða fyrir hvarvetna þar sem afþreying er í boði, hvort sem litið er á kvik­myndir, tölvu­leiki eða það efni sem gengur á samfélags­miðlum eins og TikTok o.fl. Nú síðast í gær varð ég að slökkva á Ríkis­sjónvarpinu þegar mér var boðið upp á að „skemmta“ mér yfir saka­málamynd þar sem verið var að búta fólk í sundur, plokka úr því augun og festa þau á band.

Ég er ein af þeim sem þoli ekki ofbeldi – mér verður líkamlega illt af því að horfa á gróft ofbeldi í kvik­myndum. Klisjan um að maður geti sjálfur valið sitt áhorf hefur oft dunið á mér, ég þurfi ekki að kveikja á sjón­varpinu, þurfi ekki að fara í bíó frekar en ég vilji og þar fram eftir götum. Ekkert af þessu eru þó sanngjörn mótrök, því þegar „menningin“ hefur hreiðrað um sig gegnsýrir hún allt sem fyrir verður og valið er ekki raun­verulega til staðar.

Börn og unglingar eru sérstak­lega útsett fyrir dægur­menningu sem beinist að þeim sem aldurs­hópi. Ofbeldis­fullir tölvu­leikir sem beinast að þeim sem markhópi eru fram­leiddir eins og enginn sé morgun­dagurinn. Í lokuðum kreðsum unglinga­menningarinnar vill verða lítið eftirlit og þar getur orðið mög óæskileg gerjun. Gömul saga og ný.

Mér er full alvara þegar ég segi að hér þurfi að reisa við skorður. Sérstak­lega hef ég áhyggjur af eitruðum karlmennsku­hugmyndum ungra manna sem mér sýnast standa í beinu sambandi við þann kynja­halla sem sjá má í skóla­kerfinu, þar sem ungir menn eru orðnir í minni­hluta – jafnvel orðnir færri en þriðjungur sumstaðar – og fækkar stöðugt.

Ég hef enga töfra­lausn, en held samt að það væri æskilegt ef stjórn­völd félags- menningar- og mennta­mála settu af stað stefnu­mótunar­vinnu til þess að sporna gegn ofbeldis­menningu og menntunar­skorti meðal ungra karlmanna. Eitt það fyrsta sem þyrfti að skoða í því sambandi væri það afþreyingar­efni sem ungu fólki stendur til boða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning