Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Karl Th um 90 ára afmæli Guðbergs: „Er ekki vænlegra að skrifa um áhrifavalda sem auglýsa gloss?“

Guðbergur Bergsson rithöfundur fagnaði 90 ára afmæli sínu í gær. Karl Th Birgisson blaða­maður er hissa á að lítið hafi verið fjallað um afmæli Guðbergs, sem er án efa með merkari rithöfundum íslenskrar bókmennta­sögu.

Segir:

„Fólk undrast eðlilega hvers vegna stór­afmæli Guðbergs eru ekki gerð skil í fjöl­miðlum. Ég undraðist líka hvers vegna ekki var fjögurra síðna blaðauki um Hrafn í Mogganum, sem var þó eiginlega skilgetið afkvæmi blaðsins. Svarið við hvoru tveggju er sennilega flókið.“

Bætir við:

Guð­bergur Bergsson.

„Eitt klisju­svarið er yngra fólk á ritstjórnum, sem ber ekki skynbragð á söguna né heldur að það sem er sagt núna verður mikilvæg sagnfræði eftir 30-40 ár. Mikil­vægari skýring (og nú myndi Guðbergur glotta) er markaðurinn. Það er dýrt að stækka blöð og hver vill auglýsa í kringum mærð um Guðberg eða lýsingar á Hrafni?

Er ekki vænlegra að skrifa um áhrifa­valda sem auglýsa gloss?“ spyr Karl Th og heldur svo áfram:

Kathar­ine Graham.

„Sem dregur okkur að annarri skýringu. Eigendum fjölmiðla. Það er kúnst að eiga fjölmiðil, ekki síður en að skrifa þá. Þar þarf nefnilega fleira að komast að en debet og kredit. Lesið ævisögu Katherine Graham á Washington Post, sem stóð með sínu fólki í gegnum Watergate þótt nánast gervallt valda­kerfið, stjórn­málamenn og auglýsendur, væri í símanum og hótaði öllu illu.“

Segir að lokum:

„Þó er þetta ekki einhlítt heldur. Ríkis­útvarpið – sem ætti að vera óháð markaðnum, en er það ekki, og þar sem ennþá eru fáeinir sem vita sitthvað um sögu og menningu – hefði fyrir tveimur árum átt að hefja undir­búning þátta um Guðberg. En ekki einu sinni þar er minnzt á einn af okkar helztu núlifandi höfundum. Og nú er ég orðinn alveg uppi­skroppa með skýringar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning