Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Birgitta Haukdal hannar bangsa handa börnunum: „Þannig að krakkarnir geti átt sinn eigin Ljónsa“

Birgitta Haukdal er margt til lista lagt -Ljósmynd: Instagram
Birgitta Haukdal er margt til lista lagt -Ljósmynd: Instagram Mynd: Trausti Hafsteinsson

Afmælis­barn dagsins er engin önnur en söngkonan ljúfa frá Húsavík, Birgitta Haukdal Brynjars­dóttir en hún er 43 ára í dag.

Á Glatkistunni stendur að Birgitta hafi gerst söngkona Írafárs haustið 1999 og sló þar heldur betur í gegn. Hún varð síðar fulltrúi Íslands í úrslitum Eurovision keppninnar 2002, hefur komið að margs konar tónlistar­verkefnum og hefur auk þess gefið út þrjár sóló­plötur. Birgitta hefur jafnframt vakið athygli fyrir barna­bækur sínar um Láru.

Mannlíf heyrði í Birgittu og spurði hana hvort og þá hvernig hún myndi halda upp á daginn.

„Afmælis­dagurinn fór nú bara allur í vinnu en mín gæti nú beðið einhver nice afmælis­kvöldverður þegar ég kem heim, með fólkinu mínu. En annars verður þetta bara mikil rólegheit og lítið partý­stand.“

En hvað er afmælis­barnið með á prjónunum á næstunni?

„Það er nú ýmislegt. Við erum á fullu að undirbúa Þjóðhátíð en ég ætla að koma fram þar á sunnudags­kvöldið. Ég var á Borgar­firði eystri um síðustu helgi, á Bræðslunni og það var alveg klikkað, alveg hrikalega skemmtilegt. Ég hafði aldrei komið þangað áður og mig langar ótrúlega að fara þangað aftur á þessa hátíð, bara í útilegu,“ svaraði Birgitta hress. En það er fleira sem hún er með á prjónunum en tónlistar­hátíðir.

„Ég kem vonandi með tvær Lárubækur í haust og svo er ég með jólatónlistarbók sem seldist upp í fyrra og við ætlum að reyna að koma henni aftur í gang. Svo hef ég verið að vinna við að búa til Ljónsa bangsa úr Láru bókunum, þannig að krakkarnir geti átt sinn eigin Ljónsa. Ég hef nefnilega oft verið spurð að því hvort hægt sé að kaupa Ljónsa þannig að ég ákvað að fara í þetta ferli, hef verið núna í nokkra mánuði að hanna hann og búa til,“ sagði Birgitta og bætti við að hún vonaðist til að hann kæmi úr fram­leiðslu fyrir jól.

Mannlíf óskar Birgittu innilega til hamingju með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið